Samvinnan - 01.12.1967, Qupperneq 4
HVERS VEGNA
ekki
SAMBYGGT
útvarp/sjónvarp?
GRAND FESTIVAL
23” eða 25”
KRISTALTÆR MYND OG HLJÓMUR
• Með innbyggðri skúffu
fyrir plötuspilara
• Plötugeymsla
• Ákaflega vandað verk, — byggt
með langa notkun fyrir augum.
• Stórt útvarpstæki með 5 bylgjum,
þar á meðal FM og bátabylgju.
• Allir stillar fyrir útvarp og
sjónvarp í læstri veltihurð
• ATHUGIÐ, með einu handtaki
má kippa verkinu innan úr
tækinu og senda á viðkomandi
verkstæði — ekkert hnjask með
kassann, lengri og betri ending.
ÁRS ÁBYRGÐ
Fást víða um land.
Aðalumboð:
EINAR FARESTVEIT & CO
Vesturgötu 2.
uppeldis- og sálarfræði? Ef
kennarar við sama fræðslustig
eiga að vera í mismunandi
launaflokkum, verða þá ekki
einnig að gilda mismunandi
einkunnastigar fyrir nemend-
urna? Varla er hægt að ætl-
ast til sama námsárangurs af
nemendum kennarans í 17.
launaflokki og hins hálærða í
20. fl. (sbr. kröfur háskóla-
menntaðra kennara). Þetta
þyrfti þá að rannsaka nánar,
t. d. í sambandi við einkunnir
á landsprófi.
Nei, kennarar eiga sameig-
inlega að berjast fyrir því, að
öll kennslustörf verði svo vel
launuð og mikils metin, að
skólarnir geti valið úr hæfi-
leikamönnum, í stað þess að
sóa kröftum sínum í að reyna
að koma samstarfsmönnum
sínum í örlítið lægri launa-
flokk en þeir eru í sjálfir, sem
virðist vera einasta hugsjón
háskólamenntaðra kennara.
Það er líka reginfirra að
barnakennarar þurfi síður á
menntun að halda en aðrir
kennarar og eigi ekki skilin
jafnhá laun. Á engum hvílir í
rauninni meiri ábyrgð en hin-
um fyrstu uppalendum, og því
yngri sem börnin eru, þeim
mun dýpri og varanlegri eru
áhrif kennarans til góðs eða
ills, og getur ráðið úrslitum um
alla síðari skólagöngu nemand-
ans, að fyrstu kynni hans á
menntabrautinni séu jákvæð.
Einn megingalli á skólakerfi
okkar er sá, að á fyrstu náms-
árunum er öllum ætlað að læra
hið sama. Níu ára barn á að
læra námsefni fyrir níu ára
börn, hvorki meira né minna.
Það er í rauninni álíka gáfu-
legt og að skylda öll níu ára
börn til að nota ákveðið númer
af skóm, sem fyndist með því
að taka meðaltal af fótstærð
allra 9 ára barna í landinu.
Andlegur þroski er ekki síður
mismunandi og einstaklings-
4