Samvinnan - 01.12.1967, Side 24

Samvinnan - 01.12.1967, Side 24
ingspunds, verði að selja það í viðskiptabanka sínum fyrir 120 krónur. Síðan kemur Pétur og Páll í bankann, kaupir pundið fyrir 120 krónur og honum er veittur fullur rétt- ur til þess að nota það til kaupa á þessum varningi eða hinum og möguleiki til bess að leggja á þann varning — misjafnlega mikið að vísu, eft- ir því um hvaða varning er að ræða — en jafnvel svo, að verðið, sem hann greiddi fyrir gjaldeyrinn, fær hann aftur tvöfalt eða vel það. Byggt á sömu forsendum má segja að útgerðin sé að greiða þriðj- unginn af því lúxusflakki, sem ferðagjaldeyrir er keyptur til fyrir 120 krónur pundið. En það er helzt úr hópi þessara Pétra og Pála, þeirra sem njóta þessara sérréttinda, sem maður heyrir oftast raddirnar um ómagana á þjóðarbúinu, sem alltaf séu betlandi um bætur og styrki. Það hefur mikið verið rætt og ritað um togarana, útgerð þeirra og endurnýjun, þar sem elztu nýsköpunartogararnir hafa nú þegar komizt yfir tví- tugsaldurinn. Nefnd hefur um nokkurt skeið verið starfandi fyrir atbeina ríkisstjórnarinn- ar til þess að gera athuganir á og tillögur um gerð og stærð nýrra togara. Mig furðar ekki á því þótt nefndin þurfi lang- an tíma til starfa og hafi ekki skila'ð áliti enn, því að mínum dcmi er ómögulegt að gera til- lögur um gerð eða stærð tog- ara, sem ætla mætti að nálg- aðist það að bera sig við að- stæður síðustu ára. Að vísu verður vart um það deilt, að nokkra kostnaðarliði mætti lækka á nýjum skipum, svo sem olíu, viðhald og e. t. v. eitt- hvað í mannahaldi, en aftur á móti er verð nýrra og full- kominna skipa svo hátt, að eðlilegar afskriftir og vextir munu gera miklu meira en éta upp sparnaðinn, og aflamögu- leikar sennilega lítið meiri en gömlu togaranna. En sé það rétt, sem ég held þrátt fyrir allt, að halda áfram togararekstri á íslandi — að því hníga mörg rök — verður að endurnýja flotann, jafnvel þótt ekki sé fyrirfram séð að um hallalausan rekstur verði að ræða, og þá má ekki lengi bíða úr þessu til þess að endur- nýjun geti farið fram sam- tímis því að gömlu skipin falla úr fatinu, og umfram allt má ekki svelta gömlu skipin í hel fyrr en hin nýju taka við. Gísli Konráðsson. BALDUR GUÐMUNDSSON: ÞRÓUN VÉLBÁTA- ÚTVEGSINS UNDANFARIN ÁR Eftir að ég hefi ráðið það við mig að stinga niður penna og skrifa greinarstúf um vél- bátaútveginn, er mér það ljóst að ég verð að líta um öxl, nokk- ur ár aftur í tímann. Aldrei í lífi íslenzku þjóðarinnar hafa orðið eins miklar sviptingar í uppbyggingu og rekstri vél- bátaflotans og á síðustu 10 árum, enda þótt veruleg breyt- ing hafi einnig orðið þar á næstu tólf árin áður. Eftirfarandi tölur sýna nokk- uð byggingaþróun á tuttugu og tveggja ára tímabili, árin 1945—1966. Hér eru talin fiskiskip með þilfari önnur en togarar og hvalveiðiskip. Á stríðsárunum var ágæt veiði, bæði síldveiði og bolfisk- veiði. Hagur þjóðarinnar batn- aði þá verulega, og þegar leið að lokum stríðsins var hafizt handa undir forustu utan- þingsstjórnarinnar, sem þá sat að völdum, um að semja um byggingu 45 fiskibáta í Svíþjóð. 30 af þessum bátum voru af stærðinni 80—100 rúmlestir, en 15 bátar af stærðinni 51—53 rúmlestir. Siðar samdi Reykja- víkurborg um smíði 5 báta til viðbótar; þannig urðu þessir bátar endanlega 50 talsins. Nýsköpunarstjórnin tók við völdum 21. okt. 1944, og þar með varð hennar hlutverk að hafa endanleg afskipti af þess- um samningi og veita bátunum móttöku. Auk þessa lét hún byggja innanlands nokkra báta af stærðunum 39 og 66 rúmlestir. Strax að stríðinu loknu voru keyptir margir notaðir bátar í Svíþjóð og Danmörku. Allir þessir bátar bættust í fiski- bátaflotann á árunum 1945— 1948. En um leið voru lagðir niður margir gamlir og úreltir bátar, þannig að segja má að bátaflotinn hafi verið að veru- legu leyti endurnýjaður með stærri og betri bátum. Árin eftir 1950 fór aukning bátaflotans hægt, allt fram að 1960. Þó bættust nokkrir bátar árlega við. Þessu réð mest aflaleysi á síldveiðum, sem hófst með árinu 1945 og hélzt óslitið í 17 ár, en árið 1962 fór síldveiðin að glæðast og óx verulega eftir það. Síldarleysisárin voru fiski- bátaflotanum erfið, og gekk á ýmsu með rekstur bátanna. Mörgum bátanna, sem komu nýir eftir stríðið, var ætlað að stunda togveiðar, en urðu að hætta því eftir að fiskveiði- takmörkin voru færð út 1952. Veiðimöguleikarnir minnkuðu í bili, en bátaflotanum var stefnt yfir á þorsknetaveiðar, sem jukust mikið næstu árin. Fyrir sumarið 1954 voru fyrstu astictækin sett í þrjá báta. Þeir voru Mímir frá Hnífsdal, skipstjóri Karl Sig- urðsson; Víðir, Garði, skip- stjóri Eggert Gíslason; Sigurð- ur Pétur, Reykjavík, skipstjóri Bjarni Sigurðsson. Fyrsta síldin, sem vitað er um að veiddist með aðstoð astictækis (áður hafði veiðzt síld með aðstoð dýptarmælis), veiddist á m/b Mími, er bátur- inn var á leið til Siglufjarðar ásamt öðrum bátum, þegar skipstjórinn kastaði nótinni eftir asticinu og fékk 400 tunn- ur í kastinu. Þrautseigja Eggerts Gíslason- ar við að reyna astictækið þetta sumar og framvegis er talin eiga mestan þátt í því, að hve miklu gagni astictækið kom við síldveiðarnar á næstu árum. En hann lét ekkert tæki- færi ónotað og eyddi öllum stundum í að kanna, á hvern hátt það yrði notað svo að það kæmi að tilætluðum notum. Tækniþróun astictækjanna er önnur af tveim ástæðum, sem gerðu síldveiðarnar að þeirri mokstv rs-atvinnugrein, sem þær urðu á næstu árum. Ingvar Pálmason skipstjóri var á ferð í New York vetur- inn 1956, þegar það varð að samkomulagi milli hans og Davíðs Ólafssonar, þáverandi fiskimálastjóra, að Ingvar færi á vegum Fiskifélags íslands vestur á vesturströnd Kanada til þess að athuga flotvörpu, sem verið var að reyna þar. í þessari ferð sá Ingvar kraft- blökkina í notkun, sem varð til þess að Fiskifélag íslands og Haraldur Böðvarsson & Co. á Akranesi keyptu hvor sína kraftblökkina. Sumurin 1956 og 1957 var blökk Haraldar Böðvarssonar & Co. reynd í notkun á m/b Böðvari. En þrátt fyrir að það tókst að draga nótina í blökk- inni, náðist ekki veiðiárang- ur. Blökk Fiskifélagsins var svo reynd á m/s Fanney sum- arið 1958, án þess að árangur næðist. Þrátt fyrir þessar tilraunir voru menn, sem trúðu á að kraftblökkin ætti eftir að koma að gagni, og þar á með- al voru Ingvar Pálmason og Sturlaugur Böðvarsson, sem fram að þeim tíma áttu mest- an þátt í að láta reyna blökk- ina. í júnímánuði 1959 lagði m/b Guðmundur Þórðarson frá Reykjavík af stað til síldveiða norður fyrir land, útbúinn með kraftblökk og hringnót. Skip- stjóri var Haraldur Ágústsson, sem hafði ráðið mestu um stað- setningu blakkarinnar í bát- inn og annað fyrirkomulag í sambandi við nótina. Þegar Haraldur var búinn að vera á veiðum í hálfan mánuð, var hann búinn að ná þeim tökum á notkun blakkarinnar, sem honum og öðrum hefur dugað síðan. í þessu sambandi verður að geta þess að Kanadamenn notuðu blökkina á frambyggða báta, þar sem nægjanlegt rúm er fyrir nótina aftantil á bát- unum. En okkar bátar eru með alla yfirbyggingu afturá, og því miklu minna rúm á aft- urþilfari. Nótin á m/b Guðmundi Þórð- arsyni var staðsett í byrjun aftast á aðalþilfari bátsins. En um sumarið var nótin færð upp á bátaþilfar. Þannig var nótin staðsett á öllum stærri bátum í mörg ár. En eftir að næturnar hafa stækkað og bát- unum er orðið ofviða að hafa þær svo hátt vegna yfirvigt- ar, er aftur farið að koma þeim fyrir á aðalþilfari á sama stað 1944: skip yfir 100 rúmlestir 18 — 2559 rúmlestir bátar undir 100 rúml. 560 — 11725 — 1950: skip yfir 100 rúmlestir 48 — 6905 rúmlestir bátar undir 100 rúml. 538 — 16950 — 1956: skip yfir 100 rúmlestir 46 — 6809 rúmlestir bátar undir 100 rúml. 584 — 19739 1961: skip yfir 100 rúmlestir 92 — 13497 rúmlestir bátar undir 100 rúml. 657 — 23539 — 1966: skip yfir 100 rúmlestir 181 — 40470 rúmlestir bátar undir 100 rúml. 575 — 19101 — 24

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.