Samvinnan - 01.12.1967, Side 43

Samvinnan - 01.12.1967, Side 43
 EFTIR MAGNÚS TORFA ÓLAFSSON haust. Þar var það herinn sem stillti til friðar, og nú er svo að sjá sem herinn stjórni í reynd mestum hluta Kína. Rauðir varðliðar eru aftur komnir á skólabekk, og vax- andi áherzla er lögð á það í blöðum að fela reyndum for- ustumönnum sem lent hafa á villigötum en séð að sér og bætt ráð sitt ábyrgðarstörf á ný. í þessu efni er enn einu sinni fylgt gamalkunnri reglu Maós sem hann orðar svo: „Eining — gagnrýni og sj álfsgagnrýni — eining.“ Hér hefur verið gerð laus- leg grein fyrir nokkrum stór- atburðum menningarbylting- arinnar, en slíkur annáll segir auðvitað ósköp lítið um hvað að baki býr. Það er þó aðal- atriðið. Lítum aftur til stríðsáranna, þegar Maó Tsetúng og Ljú Sjásí bjuggu sinn í hvorum hellisskúta í Jenan og var inn- angengt á milli. Þaðan stjórn- uðu þeir baráttunni gegn Jap- önum og lögðu grundvöllinn að sigri kommúnista í borgara- styrjöldinni við heri Sjang Kaiséks. Maó var foringinn og hugsuðurinn en Ljú næstráð- andi hans og skipuleggjandinn, sá sem hafði þræði flokkskerf- isins í sínum höndum. Eftir sigurinn 1949 hélzt sama verka- skipting. Forusta Kommún- istaflokks Kína hefur í aldar- fjórðung að mestu verið skip- uð sömu mönnum og þeir hald- ið svo vel saman að fádæmi má telja. Nú er þessi gamal- reynda forusta splundruð. Á skrúðgöngum Rauðra varðliða eru ásamt glansmyndum af Maó bornar níðstengur þar sem Ljú er sýndur í líki hunds, svíns eða ófreskju. í kínversk- um blöðum er hann aldrei nefndur annað en Krústjoff Kína, og er vandfundið verra skammaryrði þar í landi. Hvað veldur þessum um- skiptum? Valdastreita, segja sumir, ágreiningur um afstöðuna til Sovétríkjanna, segja aðrir, misjafnt mat á hættunni af bandarískri árás, hinir þriðju. Maó og fylgismenn hans halda því fram að um stéttabaráttu sé að ræða. Maó hefur tekið upp kenninguna um harðn- andi stéttabaráttu eftir sigur sósíalistískrar byltingar, sem Stalín notaði til að réttlæta hryðjuverk sín. Um afstöðu Ljú og hans manna vitum við hreint ekki neitt. Gagnlegra til skilnings en slík leit að einhverjum alls- herjarsamnefnara flókinnar atburðarásar er að kynna sér aðdragandann. ?laó Tsetúng spjallar viö Vang Júfan úr jyrirmyndar olíuborunarflokki.

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.