Samvinnan - 01.12.1967, Page 48

Samvinnan - 01.12.1967, Page 48
Pílagrimar í Asturias á Norður-Spáni. — Nei, ef satt skal segja, er allt þetta tal um trúfrelsi bara til að gera nútímamanneskjur rólegar. Himinninn verður eftir sem áður bara handa fólki einsog þér og mér. Spán að lýðveldi, en árangur þeirra er þó sá, að unnt er að tala um aukið frjálsræði og tilslakanir innan ramma einræðisins. Meðal hinna mest áberandi endurbóta má nefna trúfrelsi fyrir mótmælendur (99,7% af íbúunum eru rómversk-kaþólsk- ir), prentfrelsi (þó ekki algjört), beinar kosningar til þjóðþings- ins, Cortes (þó aðeins einn sjötti hluti þingsæta), verkfallsrétt verkamanna (þó ekki vinnustöðvanir í pólitísku augnamiði) og skerðingu á valdi hinnar fasísku Falangistahreyfingar, einkum yfir stéttarfélögunum, sem hingaðtil hafa verið kúguð. Margir munu með miklum rétti leggja áherzlu á takmarkan- irnar í nefndum umbótum. En ástæða er til að taka eftir, að þessir varfærnislegu tilburðir til umbóta eru þrátt fyrir allt merki þess, að nú eiga sér stað framfarir á Spáni (gagnstætt Portúgal), og auk þess gæti verið ástæða til að minna á, að „sjálfskipað verkefni Francos hershöfðingja var að stöðva bylt- ingar, ekki að hefja þær.“ Spænska borgarastyrjöldin heitir einfaldlega á máli Spán- verja „stríðið“ — einsog ríkislögregluþjónninn í Almendralejo kallaði hana. Borgarastyrjöldin, minningin um þennan tíma- mótaatburð, ógnir hans og hryðjuverk, er enn þann dag í dag skilyrði til skilnings á Spáni einsog hann er. Samt sem áður má greina það nú, að borgarastyrjöldin hefur ekki eins lam- andi áhrif á þjóðarsálina og áður. Það hafa orðið kynslóða- skipti á Spáni. Minna en helmingur núlifandi íbúa hefur lifað ragnarök fjórða tugs aldarinnar, og þessvegna verður ríkis- stjórninni sífellt erfiðara að reka velheppnaðan áróður með hinu þreytandi slagorði „Franco eða ringulreið". Jafnvel sú líffræðilega staðreynd, að sigurvegarinn í „kross- ferðinni gegn bolsévismanum“ er orðinn 74 ára og líkamlega ekki deginum yngri, gerir nauðsynlegt að finna eftirmann hins sterka manns Spánar undanfarin 28 ár. Þær stjórnarskrárbreytingar, sem gerðar voru með miklum meirihluta atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu 14. des. 1966, hafa gert kleifa skiptingu ríkisvaldsins. Franco er áfram rikis- stjóri, en hann hefur falið öðrum forystu ríkisstjórnarinnar. Mestu breytingar á Spáni eru þó ekki stjórnarfarslegar. Þær hafa orðið á efnahags- og félagslegum sviðum. Spánverjar eru raunverulega sú þjóð meðal Vesturlandabúa sem tekið hefur mestum framförum á síðustu 5—6 árum. Þessi þróun er að sjálf- sögðu ekki Franco að þakka, en hún hófst vegna þess að Franco 48

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.