Samvinnan - 01.10.1970, Blaðsíða 2
ER HEimill VÐBR
I1IEGILEGB IRVGGT?
Samvinnutryggingar hafa lagt rika áherzlu á að hafa jafnan á boðstólum hagkvæmar og nauðsynlegar tryggingar fyrir islenzk heimili og bjóðum nú m.a. eftir-
farandi tryggingar með hagkvæmustu kjörum:
IINNBÚSTRYGGING
^ Samvinnutryggingar bjóða yður innbús-
tryggingu fyrir lægsta iðgjald hér á landi.
200 þúsund króna brunatrygging kostar aðeins
300 krónur á ári i 1. flokks steinhúsi i Reykjavik.
2HEIMILISTRYGGING
a í henni er innbúsbrunatrygging, skemmd-
ir á innbúi af völdum vatns, innbrota,
sótfalls o.fl. Húsmóðirin og börnin eru slysa-
tryggð gegn varanlegri örorku og ábyrgðartrygg-
ing fyrir alla fjölskylduna er innifalin.
HÚSEIGENDATRYGGING
Húseigendatrygging er fyrir einbýlishús,
fjölbýlishús eða einstakar ibúðir, þ.e.
vatnstjónstrygging. glertrygging, foktrygging.
brottflutnings- og húsaleigutrygging. innbrots-
trygging, sótfallstrygging og ábyrgðartrygging.
VERÐTRYGGÐ LÍFTRYGGING
^ er hagkvæm og ódýr líftrygging. Trygg-
ingaupphæöin og iðgjaldið hækkar árlega
eftir vísitölu framfærslukostnaðar. Iðgjaldið er
mjög lágt t.d. greiðir 25 ára gamall maður aðeins
kr. 1.000,00 á ári fyrir líftryggingu oð upphæð kr.
248.000,00.
SLYSATRYGGING
Slysatrygging er frjáls trygging, sem
gildir bæði í vinnu, frítíma og ferðalögum.
Bætur þær, sem hægt er að fá eru dánarbætur,
örorkubætur og dagpeningagreiðslur. Slysatrygg-
ing er jafn nauðsynleg við öll störf.
ÞEGAR TJÓN VERÐUR
Allt kapp er lagt á fljótt og sanngjarnt
uppgjör tjóna. Við höfum færa eftirlits-
menn í flestum greinum, sem leiðbeina um við-
gerðir og endurbætur. Þér getið því treyst Sam-
vinnutryggingum fyrir öllum yðar tryggingum.