Samvinnan - 01.10.1970, Blaðsíða 10
Thomas Erskine lávarður
(1750—1823), sem var kunnur
málaflutningsmaður, frétti ein-
liverju sinni, að nýlátinn vinur
hans hefði látið eftir sig fjár-
muni sem næmu yfir 200.000
sterlingspundum. Þá varð hon-
um að orði:
„Það er þó í sannleika sagt
dálagleg fúlga til að koma und-
ir sig fótunum hinumegin.“
Fontenelle var einhverju
sinni spurður, hvernig haiin
áliti að eðlismunur kvenna frá
ýmsum löndum kæmi skýrast í
ljós.
„I afstöðu þeirra til ótrús
elskhuga,“ svaraði hann að
bragði. „Franskar konur slá
elskhugann af. Spænskar konur
slá af bæði keppinautinn og
elskhugann. Enskar konur slíta
trúlofuninni. Þýzkar konur
svipta sjálfar sig lífi. En allar
giftast þær öðrum manni.“
Bernard le Bovier de Fonte-
nelle (1657—1757) var höfund-
ur ýmissa rita frönsku upplýs-
íii
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSIÐ
*■
sudurlands-
BRAUT 10
*
SÍMI 83570
ingarinnar og orðlagður fyrir
lífsfjör. Þegar hann var 92 ára
gamall heimsótti hann ákaflega
viðmótsþýða kvensnift, sem
hann hafði mikið dálæti á.
Þegar hún heyrði hver kominn
var, kom hún strax fram í
morgunslopp og sagði við
hann:
„Þér sjáið, herra minn, að ég
fer á fætur fyrir yður.“
„En þér leggizt fyrir annan;
það gerir mig bálreiðan,“ svar-
aði hið fjörmikla gamalmenni.
SNJOHJOLBARÐAR
MEÐ EÐA ÁN
ÍSNAGLA
Þér komizt lengra
Þér hemlið betur
Þér takið betur af stað
á Yokohama
snjóhjólbörðum
TRYGGIÐ
öryggi yðar og annarra
í umferðinni
akið á Yokohama
með eða án ísnaqla
FAST HJA
KAUPFÉLÖGUM
UM LAND ALLT
VELADEILD SIS
ÁRMÚLA 3. SÍMI 38900
8