Samvinnan - 01.10.1970, Blaðsíða 63
6—8 grœnar eða svartar olíjur
diU eða stcinsclja
SÓSA:
2 msk vínedik
6 msk matarolía
salt, pipar, paprika
Þvoíð salatblöðin og raðið þeim í skál. Skerið kartöflumar í bita, tómatana
og eggin í báta og olífurnar í þunnar sneiðar. Smækkið túnfiskinn og blandið
síðan öllu saman í skálina. Hristið sósuna saman í hristiglasi og hellið yfir
salatið, sem síðan er borið fram með ristuðu brauði og kryddaðri olíusósu
(mayonaise).
Kjúklingasalat
1 kjúklingur (um G00 g)
100 g reykt jlesk (bacon)
8 harðsoðin egg
200 g sveppir
V2 agúrka
8 tómatar
1 lítil dós grœnn asparagus
1—2 salathöjuð
SÓSA:
V2 dl rauðvín
IV2 dl maísolía
salt, paprika, hvítlauksdujt
Sjálfsagt er að nota afganga af soðnum eða steiktum kjúklingum í þetta salat
séu þeir fyrir liendi.
Steikið eða glóðarsteikið kjúklinginn. Kryddið hann með salti, pipar og rós-
marin. Kælið og skerið í litla bita. Klippið flesksneiðarnar í hæfilega bita,
steikið þá og látið á pappir, svo að fitan renni af. Hreinsið sveppina og skerið
þá í fjóra hluta, agúrkuna í teninga en eggin og tómatana í báta. Blandið
sósuna saman og liafið hana bragðsterka. Þvoið salatblöðin, þerrið og raðið
í skál. Raðið því sem í salatið á að fara í skálina og hellið sósunni yfir. Berið
salatið fram með ristuðu brauði.
Hvítkálssalat með ananas
200 g hvítkál
V2 dós ananas
100 g olíusósa (mayonaise) krydduð
Skerið hvítkálið í mjóar lengjur eða rífið á grófu rifjárni. Hellið ananassafan-
um yfir og lálið bíða í luktu iláti V>—1 klst. (Ath. að safinn sé ekki of mikill;
þá verður salatið of þunnt). Blandið ananasbitunum og olíusósunni saman við.
Salatið er borið fram með margskonar kjötréttum.
Ávaxtakökur á kaffiborðið
125 g smjör eða smjörliki
3 dl (250 g) sykur
8 egg
5 dl (800 g) hveiti
2 tsk lyjtidujt
2 bananar
1 dl rjómi
HLAVP:
1 dl ávaxtasafi
IV2 blað matarlim
Smyrjið hringmótið og stráið brauðmylsnu í það. Hrærið smjörlíkið lint og
siðan með sykrinum þar til það er létt og ljóst. Hrærið eggjunum í, einu og
einu í senn. Blandið sigtuðu hveiti og lyftidufti varlega saman við og siðan
mörðum banönum og rjómanum. Hellið deiginu í mótið og bakið við um 170
gráður í um 45 mín. Kælið kökuna. Leggið matarlímið í bleyti, bræðið það
og blandið saman við ávaxtasafann, t. d. appelsínu- eða sítrónusafa (djús).
Raðið bananasneiðum ofan á kalda kökuna og hellið hlaupinu yfir þegar það
er byrjað að stífna.
Appelsínuterta
175 g hveiti
IV2 tsk lyjtiduft
saxaðar rúsínur og súkkat
2 egg
150 g sykur
75 g smjör eða smjörlíki
1 appelsína
2V2 dl rjómi (þeyttur)
2—3 mslc appelsínumarmelaði
súkkulaðiplötur
Sigtið hveitið og lyftiduftið. Bætið súkkati og rúsínum saman við. Hrærið
smjörlíkið lint. Þeytið egg og sykur vel saman. Hrærið smjörlíkið smátt og
smátt saman við og blandið hveitinu og appelsínunni varlega í. Bakið deigið
í vel smurðu tertumóti í 25—30 min. við um 200 gráðu hita neðarlega í ofnin-
um. Kælið kökuna og kljúfið hana. Blandið appelsínumarmelaðinu saman við
þeytta rjómann. Leggið kökuna saman með helmingnum af rjómanum og látið
hinn helminginn ofan á. Skreytið kökuna með appelsínuberki, sem skorinn er í
mjóar ræmur, og súkkulaðiplötum.
Eplaterta
150 g smjör eða smjörlíki
i msk sykur
1 egg
1 eggjarauða
5 msk hveiti
5—6 matarepli
1 dl sykur
% l vatn
3 eggjahvítur
6 msk sykur
15—20 möndlur
Hrærið smjörlíki og sykur vel saman og eggjunum í, einu og einu í senn.
Blandið sigtuðu hveitinu varlega saman við og bakið deigið í vel smurðu
tertumóti eða móti sem þolir ofnhila. Hitinn er um 200 gráður en bökunar-
tími um 25 mín. Ef kakan er bökuð í tertumóti er hún losuð úr mótinu og
færð yfir á bökunarplötu eða stálfat. Flysjið eplin, skerið þau í tvennt og
fjarlægið fræhúsin. Hálfsjóðið þau síðan í sykurvatninu. Kælið og raðið þeim
yfir kökuna. Stífþeytið eggjahvíturnar, þeytið þær áfram með helmingnum af
sykrinum og blandið því sem eflir er af sykrinum saman við með sleikju.
Hyljið eplin með hvítunum og stráið möndlunum, sem áður eru skornar langs-
um í 4—5 hluta, yfir. Bakið kökuna við um 180 gráðu liita í um 15—20 mín.
Berið kökuna fram volga eða kalda með þeyttum rjóma eða ís.
61