Samvinnan - 01.10.1970, Síða 56
Sérhver rannsókn á sér upphafspunkt. Sér-
hverri rannsókn tilheyrir rannsóknari. Sérhver
rannsóknari hefur sitt mat, upphafspunkta,
dulda fyrirvara og leynilegar áætlanir.
Það er nauðsynlegt að skýra nánar frá
einum upphafspunkti rannsóknarinnar. Hann
er mjög nálægur í tímanum: júní 1966.
í júní 1966, viku eftir burtförina frá New
York, var hann staddur í Oak Ridge í Ten-
nessee. Síðar minntist hann bezt hins sér-
kennilega, þjakandi hita, sem lá um hann
þessa daga. Hann vandist þessu aldrei, loftið
var heitt', undarleg þreytutilfinning læddist
alltaf að honum. Hitinn lá kyrr; hann var vit-
laust klæddur, hafði vitlaust matarœði, vitlaus-
ar hreyfingar og venjur, og allt virtist auka
undarlega, nánast móðursjúka tilfinningu hans
fyrir hitanum.
Hann kom þangað tvisvar. Fyrra skiptið um
kvöld, gisti og hélt áfram suður á bóginn
morguninn efl'ir. Fimm dögum síðar kom hann
til baka í sama hitann og sá bæjarféiagið eins-
og það raunverulega var í fullri dagsbirtu.
Honum var sagt, að fólkinu hefði fækkað
eftir stríðið. Einu sinni var þarna miðstöð
atómtilrauna og kjarneðlisfræði, og þeir sögðu,
að vagga atómsprengjunnar stæði þar ennþá,
en um það var hann mjög efins. Þarna höfðu
búið sjötíuþúsund íbúar eða meira, nú voru
margir tæknifræðinganna farnir, aðeins sér-
fræðingarnir voru eftir, teóristarnir, og nú
bjuggu þarna aðeins um tuttuguþúsund hræð-
ur. Þegar hann kom þangað í seinna skipt’ið,
sá hann hversu ömurlegur bærinn var: á miðri
dalflötinni var gríðartorg með rauðum sandi og
litlum húsum í kring, þau voru lág og nútíma-
leg, en myndu fljótt breytast í nútímalega
arkítektúrslömma: sjoppur og smáverzlanir
og skrifstofur og símastaurar og sól og hiti
og bílar, öllu haganlega dreift án minnsta
votts um tilfinningu. Merki bankans var kjarn-
orkusprenging, menn voru stoltir af sessi sín-
um í sögunni. Hvergi var að sjá glóru um
bæjarskipulag; hér ríkt'i hið algjöra frelsi, þar
sem byggja má íbúðarhús hvar sem maður
vill og verzlun hvar sem maður vill. Kjarnann
vantaði: húsaþyrpingin var einsog risi hefði
að gamni sínu kastað um öxl sér nýtízku vill-
um, sandi, stöku trjám, bílum og járnskúrum,
án þess einu sinni að líta við.
Þetta var annar helmingurinn af beenum.
Uppí hlíðinni, í skugga trjánna, voru lúxus-
villurnar, eða það sem átti að vera lúxusvillur.
Hús með grænar eða gular grasflatir, trjá-
garða með vatnsúðara, sem mynda óraunveru-
lega vatnsveggi til varnar gegn hitanum, gula
sandstíga og steinst'eypufleti, gult sandkennt
loft, sem virtist liggja kjurt einsog gulleitt
vatn, umlykjandi villur og menn einsog í stór-
um fiskabúrum, hús sem liggja í dásvefni á
daginn, og þegar myrkrið kemur með söng
engisprettanna vakna þau að nýju með undar-
legum og óraunverulegum krafti.
Það var kvöld, þegar hann kom þangað
fyrst, allt var fínt, og honum fannst hann vera
sterkur og óþreytanlegur; hann fór morguninn
efí'ir, og þegar hann kom til baka var hann
mjög þreyttur. Síðar hugsaði hann: Þetta var
allt vegna þreytunnar. Það er ekki landslagið
eða bærinn. Það er þreytan og hitinn.
Svo sat hann í stóru dagstofunni í viftugust-
inum og strauk hendinni yfir döggvað glasið,
sem líktist glösunum, sem hann hafði séð í
viskíauglýsingunum, og hann vissi að nú var
um að gera að drekka sig upp sem skjótast
og sofna síðan.
Þetta var alveg einsog í fyrra skiptið sem
hann var hérna. Þá höfðu þeir setið hér og
talað um Asíu, og maðurinn gegnt honum
hafði brosað að honum og sagt:
— Samvizka heimsins. Jú rétt, ég hef átt
heima í Svíþjóð. Svíarnir eiga einustu hreyf-
anlegu samvizku í heimi. Þeir ferðast um eins-
og atvinnumóralistar. Þeir minnast aldrei á
þau tilvik, þegar þeir lenda sjálfir í mórölskum
vandamálum. Stríðsflutningar Þjóðverja, Balta-
framsalið. Hvað veizt þú annars um Balta-fram-
salið?
Hann hafði þegar í stað getað svarað með
fimm kröftugum og sláandi röksemdum, en
til hvers var það? Hér sat hann, fyrrverandi
frjálslyndur, frelsaður sósíalisti í fimm ár, og
gat ekki einu sinni útskýrt fyrir sjálfum sér
þessa sérkennilegu fjarlægðar- og þreytutil-
finningu, sem ásótti hann. Hann lá opinn fyrir
árásum, eina vörn hans var abstrakt ,,álit'“,
sem svo auðvelt var að tæta í sundur. Hversu
oft hafði þetta ekki komið fyrir hann? Ef rætt
var um Venezúela, datt Tíbet inní umræðurn-
ar einsog í sjálfsala. Hann vissi ekkert um
Tíbet og þagnaði. Hversvegna hafði hann ekki
farið til Tíbet? Hafði hann bara áhuga á sínu
eigin áliti eða á staðreyndum?
Þeir höfðu rætl um kynþáttavandamálin í
Suðurríkjunum. Það var ganga á leiðinni frá
Memphis til Jackson. Einn hafði verið skotinn.
Þetta var „gangan gegn óttanum". Þeir ræddu
um kynþáttakúgunina, og hann reyndi að skil-
greina pólitíska þróun sína, sem hafði verið
óslitin hreyfing til vinstri, en þetta var samtal
i myrkri, langt frá því raunverulega, og þegar
hann talaði, þá var það með eilítilli blygðunar-
tilfinningu, líkt' og hann notfærði sér hin póli-
tísku vandamál í stað þess að reyna að hafa
áhrif á þau. Þetta var mjög óskynsamlegt af
honum. Hann þurfti ekki að hafa þessa til-
finningu. Hann átti sér vissu: það voru til
kennisetningar, sem sönnuðu þetta. Hann hafði
lært í hörðum mælskuskóla. En hvar var hann
sjálfur í þessu öllu?
Alla sína ævi hafði hann verið á móti þvi
uppnámi, sem aðeins birtist í tilfinningasömum
hlutum, og allan þennan tíma hafði hans eigið
uppnám mestmegnis verið tilfinningasemi.
Hann gat bara ekki fundið leið, sem var hrein
og án samkenndar, og allt sem hann reyndi
virtist auka á svartsýni hans.
Allt þetta stendur í beinu og skýru sambandi
við rannsóknina.
Hann kom til Jackson í Mississippi snemma
á föstudagsmorgun. Hann kom með rútu. Rút-
an fór framhjá mótmælagöngunni á suðurleið-
inni. Hundrað til hundraðogfimmtíu menn, sem
gengu í langri halarófu meðfram veginum.
Bæði þeldökkir og hvítir. Þeir höfðu lagt upp
frá Memphis og ætluðu til Jackson. Þetta var
siðasta sumar mótmælagangna hugsjóna-
manna, óvirkrar mótstöðu, skæreygðra og
fríðra Norðurríkjahugsjónamanna að fara niðrí
Suðurríkin hræðilegu og lýsa yfir samúð sinni;
þetta var sumarið 1966, og menn sungu ennþá
„We shall overcome", án þess að það hljómaði
napurt. Hann þrýsti nefinu að bílrúðunni og
leitaðist við að sjá andlit þeirra, en hraði rút-
unnar var of mikill, og hann sá aðeins ólögu-
lega hvíta flekki, flekki sem sögðu honum alls
ekki neitt. Það hlýtur að hafa verið hræðilega
heitt: leiðin lá yfir víðáttumikla, flata, trjálausa
sléttu, og margir kílómetrar milli lítilla, hrör-
legra bárujárnsskýlanna. Löng, hörð og and-
styggileg leið, sviti og hælsæri. Hann sneri sér
við og horfði inni brosandi andlit: maður, sem
komið hafði í bílinn um nóttina meðan hann
svaf. Hann leit vel út, hafði hlýlegt og brosmilt
andlit.
— The heroes, sagði hlýlega, brosleita and-
litið. Líttu ekki á þá, gefðu skít í þá. Þeir
vilja, að við giápum eða köstum grjóti. Þá
verða þeir píslarvottar, og þá líður þeim vel.
Til fjandans með þá.
Hann svaraði ekki, sat kjur meðan vagninn
þaut áfram. Hann hafði hugsað sér að láta
vagninn stanza, en hann gerði það ekki. Hann
getur örugglega ekki stanzað hérna, hugsaði
hann. Bara á biðst'öðvum eða brautarstöðvum.
Ég get farið með til bæjarins og tekið bíl til
baka. Það er líka eins gott. Þeir eru nógu
margir. Það væri fjandi skrítið, ef ég stanzaði
hér á miðri sléttunni. Ég bíð.
Nú kom daldrag með dökkgrænum, sér-
kennilega rökum litum. Trén voru þakin snikju-
gróðri, villtur vínviður eða klifurplöntur, ó-
kunnar jurtir. Hann gæti spurt um klifurgróð-
urinn. Það varð að samtali. Það varð ágætt.
Það er helvíi'i að ferðast gegnum þessa skóga,
sagði maðurinn. Snákar. Klukkan 10 komu
þeir til Jackson í Mississippi.
Það tók lengri tíma en hann hafði búizt við.
Hann fékk ekkert herbergi. Hann gekk um
bæinn, og bærinn var hreinlegur og nútíma-
legur en engin laus hótelherbergi. Um fimm-
leytið síðdegis var allt komið í lag. Hann fór
í rútu f norðurátt aftur, þar sem hann vildi
ekki eða þorði ekki að taka leigubíl. Þegar
hann komst þangað var það of seint, dagleið-
inni var lokið; honum létti undarlega mikið,
var næstum gripinn kæt'i. Þeir höfðu reynt að
slá tjöldum, en skorti leyfi, og svo kom lög-
reglan með kylfur og táragas og reif tjöldin
upp: það var auðvelt, léttur sigur, þetta var
Per Olov Enquist:
MÁLALIÐARNIR
1. bók: Sumarið
3. kafli
Þýðing: Kristinn Jóhannesson Teikning: Molly Kennedy
54