Samvinnan - 01.04.1971, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.04.1971, Blaðsíða 12
Amm mm Einsog boðað var í síðasta hefti, er meginefni þessa heftis helgað umræðu um ísland árið 2000. Hinsvegar var horfið frá því formi sem notazt hefur verið við hingaðtil, þ. e. a. s. flokki greina um efnið, en í stað þess til kvaddur hópur einstaklinga af ýmsum sviðum þjóðlífsins, sem beðinn var að ræða málin af fullri einurð og frá sem flestum sjón- armiðum. Hópurinn sat á rökstólum ívö kvöld og heilan laugardagseftirmiddag. Umræðan, sem birt er hér á eftir, fór fram laugardagseftirmiddaginn og seinna kvöldið, en sleppt er inngangsumræðu fyrra kvöldið, sem fyrst og fremst stefndi að því að hrista hópinn saman og ryðja burt ýmsum hug- myndum sem kynnu að tefja eða trufla meginum- ræðuna. Umræðan fyrra kvöldið snerist einkum um ísland samtímans, lifnaðarhætti og lífsgildi, fé- lagslegí umhverfi, stjórnskipan, skólamál, skemmt- anir, atvinnulíf, listir og vísindi. Umræðan þetta kvöld varð með köflum nokkuð harðsnúin, enda stundum vikið að umdeildum efn- um úr samtíðinni og skoðanir í hópnum ákaflega skiptar. Kom þar stundum, að harðhnútar mynduð- ust, sem ,,leiðbeinandinn“ reyndi að leysa með lagni, en það verkefni hafði með höndum Geir Vil- hjálmsson sálfræðingur, sem hafði samið „verk- lýsingu“ fyrir hópinn í samvinnu við ritstjórann, áður en setzt var á rökstóla. Einsog fram kemur hér á eftir, er leitazt við að fylgja ákveðinni áætlun, þannig að hvert umræðu- efni er rætt í samhengi og síðan horfið að næsta efni. Ætlunin var að draga upp tvær ólíkar framtíð- armyndir, og má segja að það hafi tekizt í stórum dráttum, þó þær séu ekki ýkjaskýrar í einstökum smáatriðum. Önnur þessara mynda var bjartsýn, en hin mjög bölsýn, og ganga þær báðar einsog rauð- ur þráður gegnum alla umræðuna. Tvisvar var bæði í gamni og alvöru gripið til svokallaðrar hugarflugs- tækni (brainstorming), sem var í því fólgin að þátt- takendur létu allt flakka sem þeim kom í hug í sam- bandi við árið 2000, og eru þessir kaflar birtir hér nafnlausir í sérstökum römmum. Umræðan um framtíðina hófst á því, að þátttakendur voru beðnir að segja í örfáum orðum hvernig þeir teldu að per- sónulegum högum þeirra sjálfra yrði háttað árið 2000, og eru þær vangaveltur einnig birtar í sér- stökum ramma. Einsog gefur að skilja er hér um að ræða tilraun til að finna nýja leið til umræðu á síðum Samvinn- unnar, og takist hún sæmilega að dómi lesenda, verður reynt að fara hana endrum og eins í fram- tíðinni, jafnframt því sem reyndar verða aðrar leiðir. Þátitakendur voru 14talsins og komu allirtil leiks fyrra kvöldið, en vegna veikinda gat Svava Jak- obsdóttir ekki komið í tvö seinni skiptin, og var þá Hildur Hákonardóttir til kvödd í hennar stað. Með- fylgjandi hópmyndir voru teknar fyrra kvöldið. ( 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.