Samvinnan - 01.04.1971, Side 39
endi með ósköpum, ef ekki er
sveigt inná hófsamlegri braut-
ir. Þessvegna tel ég algert á-
byrgðarleysi af hendi póli-
tískra afla að stuðla gagnrýn-
islaust að allsherjargagnrýni á
öllu sem gert hefur verið hing-
aðtil. Ég fæ ekki betur séð, og
vona að Andri sé mér sammála,
en að í skólakerfi okkar sé að
breiðast út félagsleg og mann-
fræðileg ragmennska gagnvart
þessum öflum. Þessvegna held
ég að menn einsog Andri hafi
geysilegu ábyrgðarhlutverki að
gegna.
Sigurður: Við erum öll ávext-
ir frönsku byltingarinnar. Ef
þessi sjónarmið hefðu orðið
ofaná á timum hennar, værum
við enn á stigi lénsskipulagsins
og þyrftum sennilega ekki að
hafa neinar áhyggjur af árinu
2000.
Bjarni Bragi: Það hefði orðið
miklu farsælli þróun, ef ekki
hefði orðið frönsk bylting.
Skólakerfið
sem fjölmiðill
Andri: Aðeins örfá orð um
skólakerfið sem fjölmiðil. Ef
við litum á það sem fjölmiðil,
þá fer náttúrlega íhaldssemi
þess fjölmiðils eftir kennurum,
og sálfræðilegar og félagssál-
fræðilegar rannsóknir á kenn-
urum og viðhorfum þeirra er-
lendis benda til þess, að þeir
séu þjóðfélagslega ihaldssamir,
sem þarf ekki að þýða að þeir
séu flokkspólitískt íhaldssam-
ir. Þetta hefur ekki verið rann-
sakað hér, en ég held að gera
megi ráð fyrir svipuðum nið-
urstöðum hérlendis, að kenn-
arar séu semsagt samfélagslega
fremur íhaldssamt afl, en það
þarf ekki að merkja að þeir séu
flokkspólitískt íhaldssamir
samkvæmt litrófinu einsog það
er venjulega skilgreint hér. —
Ég held að árekstrar í skóla-
kerfinu i samræmi við grein
þýzka eðlisfræðingsins í síð-
asta hefti Samvinnunnar séu
hugsanlegir, en það fer áreið-
anlega mikið eftir því, að hvaða
marki skólakerfinu tekst að
námsaðgreina í samræmi við
einstaklingseðli nemendanna.
Það velti semsagt mjög mikið
á sjálfri framkvæmdinni.
Það er líka mitt svar við því
sem Jónas sagði, að ég held að
stjórnendur skólakerfisins eigi
ekki að vera einsog ríkisstjórn-
ir hafa verið hér á íslandi; þær
hafa alltaf verið tiltölulega
aflvana pólitískt séð og átt erf-
itt með að verja sig fyrir hags-
munahópum yfirleitt. Ég býst
við að þetta hafi verið það sem
Bjarni átti við, og ég er nokkuð
sammála því. Ég held að
stjórnendur skólamála, skóla-
stjórar og fræðslumálastjórn
og aðrir slíkir, eigi ekki að
dansa þannig. En það má ekki
verða nein afsökun fyrir því
að neita að viðurkenna ein-
staklingseðlið.
Andri og Siguröur.
Spár og útópíur
(Hugarflugsæfing)
Tilraunaframleiðsla á hálfmanni og hálfapa — For-
sjónin tekur í taumana og refsar mannkyninu með
ægilegum hætti fyrir árið 2000, en síðan verður byrjað
aftur með kjarnann úr því sem mannkynið hefur lært
í þúsundir ára — Gereyðing er hugsanleg, en hefur
ekki verið nefnd hér, sennilega vegna þess að stjórn-
endurnir hafa gefið sér að hún yrði ekki — Styrjöld á
heimsmælikvarða er í öllu falli sennileg — Það er
nokkurnveginn öruggt að þeir sem nú sitja í ráðherra-
stólum á íslandi hljóti að verða farnir úr þeim árið
2000 — Ferðamannastraumurinn hingað hefur meiri
áhrif á okkur næstu 30 ár en nokkuð annað; þá verða
komnir stöðumælar á Hveravöllum og maður fær að
horfa á hverina þar í kortér fyrir 100 krónur; svo
verða komnar rúllutröppur uppá Esju, og á veturna
verða svo öðruhverju auglýsingar í útvarpinu: Reyk-
víkingar, tröppurnar uppá Esju verða ekki mokaðar
í dag — Innflutningur á erlendum aðiljum verður í
algleymingi, þannig að við fáum á engan hátt hamlað
gegn erlendum áhrifum — Árið 2000 verður hægt að
taka drauma uppá segulband — Það verður búið að
reisa plasthimin yfir Esjuna svo ekki þarf að moka
rúllutröppurnar — Árið 2000 samanstendur hver ein-
asta íslenzk fjölskylda af eiginmanni, eiginkonu, einu
barni og einum erlendum þjóðfræðingi — Árið 2000
verður búið að leggja karlmenn niður, því þeir verða
orðnir jafnóþarfir og karldýr hjá sumum fuglateg-
undum — Þá þykir jafnmikill sóðaskapur að hafa bíla
akandi alstaðar á milli húsa einsog það þykir nú að
kasta rusli útá götu — Þá verður bannað að nota harða
skó — Náttúrunni verður stjórnað, ekki endilega veðri,
en allavega gróðurfari — Um aldamótin fær enginn að
deyja drottni sínum í ró og næði, heldur verða kíne-
bíótísk slagsmál um hvern deyjandi mann á allskonar
stofnunum sem búta okkur í þúsund hluta — Fái hag-
fræðingar að ráða munum við deyja drottni okkar
töluvert fyrir árið 2000 — Fyrir árið 2000 verður komið
í ljós að skólakerfið leggur fjórum til fimm sinnum
meira ok á börn að hlýða klukku heldur en venjulegt
fullorðið fólk verður að þola — Árið 2000 verður sál-
fræði orðin gamaldags, en í staðinn komin sálarverk-
fræði — Árið 2000 verða félagsfræðingar búnir að þoka
hagfræðingum úr æðsta áhrifasætinu — Þeir eru þegar
búnir að því: Jóhannes Nordal er félagsfræðingur —
Árið 2000 verður kominn til skjalanna fjölmiðill sem
miðlar hugsunum og áhrifum beint, án þess menn
þurfi að sjá þær eða heyra — Árið 2000 verður komin
þróunaráætlun fyrir alheiminn í einhverjum víðari
skilningi — Kosmísk vitund verður orðin háþróuð —
Þá verður farið að smækka manninn svo allir rúmist
á jörðinni — Þá verður búið að koma upp „kosmóráði"
fyrir alheiminn — Þá verða maurarnir búnir að taka
völdin í heiminum — í menntaskóla lærðum við að
það yrðu rotturnar sem útrýmdu manninum og tækju
völdin — Búið verður að uppgötva líf á öðrum stjörn-
um, til dæmis Júpíter — Þá verða komnir sjónvarps-
þættir um það, að maður eigi ekki í eilífum styrjöldum
við geimverur, heldur getum við heilsað þeim vinsam-
lega — Hálendi íslands verður orðið eitt stórt stöðu-
vatn þar sem erlendum ferðamönnum verður séð fyrir
skemmtibátum og íslenzkir göngugarpar ganga á Arn-
arfell hið mikla — Komin verða til sögunnar tæki sem
minnka aðdráttarafl jarðar — Þá verður farið að