Samvinnan - 01.04.1971, Side 19
Baldur: Nú er það vitað mál,
að íslendingar framleiða af-
skaplega mikið af eggjahvítu-
efnum. Getum við ekki einmitt
orðið vanþróuðu þjóðunum til
mjög mikils gagns í framtíð-
inni með þessari framleiðslu,
og eru ekki líkur á að þessar
auðlindir okkar verði jafnvel
auknar með útfærslu landhelg-
innar og fiskrækt?
Jónas: Það fer alls ekki sam-
an, viðhald góðs atvinnu-
ástands á íslandi og þróunar-
pólitík í heiminum. Menn
verða að gera einhverja mála-
miðlun í þessum málum, og til
þess þurfum við að fara að
stíga að minnstakosti eitt skref
í rétta átt, og það er það sem
ég vildi fá að sjá.
Baldur: En fer ekki mjög mikið
af þessum eggjahvítuefnum
núna í að ala skepnur?
Sigurður: Einmitt vegna þess
sem hann sagði, að þetta
tvennt fer ekki saman, góð
lífskjör hérlendis og jákvæð
þróunarpólitík. Vanþróuðu
löndin hafa ekki efni á að
kaupa það sem við erum að
framleiða, og þessvegna eru
eggjahvítuefnin sett í skepnur
Andri: Varðandi það sem kom-
ið hefur fram hjá nokkrum
okkar, þá langar mig til að taka
fram, að ég tel mig mikinn
náttúruverndarmann og ekki
sizt eftir að ég hef horft á með
eigin augum, hvernig farið hef-
ur verið með það gósenland á
jörðu, Kaliforníu, en ég vil
samt taka undir við Bjarna
Braga og fleiri um það, að mér
finnst það vera hreint miðalda-
myrkur að halda því fram, að
það megi alls ekki gera virkjan-
ir vegna þess að þær hljóti að
valda mengun. Þarna verður,
svo ég viki að því sem Jónas
sagði, að reyna að komast að
skynsamlegu samkomulagi,
bæði í þessu máli og i skipu-
lagningu á því, hvernig á að
raða verkefnum í tæknilegri
hagnýtingu á auðæfum jarðar,
þarámeðal því sem verður að
éta. Og þetta með eggjahvítu-
efnin, sem Jónas minntist á,
var mjög mikilvægt atriði,
vegna þess að það er ágætt
dæmi um það, að við verðum
að skoða vandamálið í sam-
hengi við heiminn í heild, en
ekki bara tala um ísland 2000.
Ágúst: Mér fannst koma fram
sem aldar eru til að fita okkur
og nágranna okkar í ríku lönd-
unum, sem hrynja niður úr vel-
ferðarsjúkdómum.
Þorbjörn: Fyrir nokkrum árum
sagði Þórður Þorbjarnarson í
útvarpinu, að gífurlega mikið
magn af þeim eggjahvítuefn-
um, sem við fleygjum núna,
væri hægt að nota í einhvers-
konar eggj ahvítukökur til
manneldis, sem með skynsam-
legri pólitík mætti flytja til
þróunarlandanna.
Bjarni Bragi: Ég hef spurt
hann um þetta, og hann segir
að þetta sé alls ekki hagrænn
möguleiki. Þetta eru svo vél-
væddar verksmiðjur, að við
gætum ekki sjálfir haft mikla
atvinnu af slíkum iðnaði, og
nýtingin verður að vera mjög
reglubundin. Fiskmjöl verður
fyrst og fremst til úr úrgangi,
sem ekki er venjulega manna-
matur, og svo megum við ekki
gleyma því, að þetta hefur á-
samt annarri eggjahvítu lykil-
þýðingu við að hjálpa búfén-
aði til að nýta annað fóður,
þannig að mér finnst það
nokkuð blandið ofstæki að telja
það svo afleitt að fóðra skepn-
ur á þessu.
hjá Andra dálítill misskilning-
ur, sem er mjög algengur, og
hann er sá að telja náttúru-
verndarmenn afturhaldsseggi,
sem ekki vilja neinar framfar-
ir, heldur bara hverfa aftur til
náttúrunnar. Þetta er regin-
misskilningur. Ég held að nátt-
úruverndarstefnan sé jákvæð-
ari en nokkur önnur stefna,
því hún byggist á því að fram-
farir geti orðið og eigi að verða
án þess að valda röskun á því
jafnvægi sem ríkir í náttúr-
unni. Og í því efni eru undir-
stöðurannsóknir svo mikilvæg-
ar, vegna þess að þær hjálpa
okkur til að þekkja hringrás
náttúrunnar til hlítar, svo að
við getum leyft okkur inngrip
í náttúruna, án þess að það
veiti okkur aðeins hagnað
næstu 20—30 árin, heldur einn-
ig um alla framtíð.
Sigurður: Ég held við séum öll
náttúruverndarmenn, en þetta
er bara spurning um leiðir og
skilgreiningu.
Ágúst: Slíka skilgreiningu er
ekki hægt að gefa meðan und-
irstöðurannsóknir á náttúrunni
eru ekki gerðar.
Geir: Við erum hér að tala um
líffræðilega tækni, sem verður
sifellt mikilvægari. Tækni er
ekki bara vélar og rafeindir,
heldur líka líffræðileg, og meira
að segja sálfræðileg og félags-
leg.
Margrét: Það sem við verðum
fyrst og fremst að gera okkur
ljóst þegar við tölum um árið
2000 er, að við megum ekki eyða
öllum auðlindum á þessum
næstu 30 árum og ekki heldur
öllum mat sem hér er hægt að
afla. Það kom hér fram áðan,
að fyrr en síðar kemur að því
að vanþróuðu löndin hafa enga
eggjahvítu og ekkert til að
nærast á. Þar deyja nú þegar
alltof margir úr eggjahvítu-
skorti. Og hér sitjum við í
Norður-Atlantshafi i stærsta
eggjahvítubanka veraldarinn-
ar, einsog menn frá Sameinuðu
þjóðunum hafa bent okkur á.
Ég held að okkur væri í raun og
veru nær að flytja inn fjár-
magn frá alþjóðastofnunum, til
dæmis Alþjóðaheilbrigðisstofn-
uninni eða einhverjum slíkum
stofnunum, til að breyta bú-
skaparháttum okkar með tilliti
til þess að þessi næringarefni,
sem hér er hægt að afla, verði
nýtileg um alla framtíð. Við
verðum að reyna að búa þann-
ig um, að jafnvægið í sjónum
haldist og raskist ekki meira en
þegar hefur orðið, og það verð-
ur ekki gert nema með líf-
fræðilegum athugunum, einsog
Ágúst hefur tekið fram.
Ágúst: Þaravinnslan á Reyk-
hólum er gott dæmi um þetta.
Það er farið í hana án þess
nokkuð sé um það vitað, þegar
búið er að eyða þaranum á stór-
um svæðum, hvort þarinn sem
nýttur er í dag muni vaxa þar
aftur, hve langan tíma sú
hringrás taki og svo framvegis.
Erum við ekki að ganga á þar-
ann með sama fyrirhyggju-
leysi og forfeður okkar eyddu
birkiskógunum?
Steingrímur: í sambandi við
þennan margumtalaða þara, þá
er staðreyndin sú, að varla hef-
ur verið nýtt ein einasta planta
ennþá. Það er verið að undir-
búa viðtækustu undirstöðu-
rannsóknir sem gerðar hafa
verið á þara. Það er fenginn
styrkur frá þvi illa samfélagi
NATO til að gera þessar athug-
anir. — En að því er varðar
tækniþróunina, þá held ég að
gífurlega mikil tækniþróun
verði hér á landi og um heim
allan á næstu þremur áratug-
um. Ég held að þekkingin, sem
safnazt hefur saman, sé svo
stórkostleg. Ég er til dæmis
sannfærður um, að eftir örfá
ár verða komnir svo að segja
mengunarfríir bílar, og að
vetnisorkan verður hagnýtt
fyrir árið 2000. Þá kemur að
því sem Jónas sagði, að það
verður ekki orkuskortur í heim-
inum. Við getum einnig nefnt
tölvuna, sem mun áreiðanlega
verða ennþá máttugri árið 2000
en hún er núna. Hún mun
stuðla að því að auka fram-
leiðni og losa okkur við margs-
konar erfiðleika. Hinsvegar
held ég að hvergi verði meiri
framfarir en einmitt á sviði
líffræðinnar, einfaldlega vegna
þess að þar er þörfin brýnust.
Það knýr allt á með það. Hvers-
vegna haldið þið, að um allan
heim sé verið að margfalda það
fjármagn sem varið er til
grundvallarrannsókna? Það er
ekki víst að Ágúst þurfi að
stunda meiraprófsakstur árið
2000; vel gæti verið að einhver
útvegaði honum fé til að rann-
saka grundvallaratriði um-
hverfisins. Ég er sannfærður
um, að maðurinn bregzt við
þessum vanda einsog öðru.
Hann gerir það kannski dálítið
seint og verður kominn í
nokkra klípu. Ég er sammála
því, að framboð eggjahvítuefna
verður vandamálið, en ég er
það bj artsýnn, að ég held að
farið verði að framleiða jafn-
vel manneldismjöl árið 2000, þó
Þórður Þorbjarnarson telji það
ósennilegt. Neyðin kennir
naktri konu að spinna, og við
verðum farnir að nýta þessa
möguleika og marga fleiri.
Margrét: Ég held að aðaltækni-
framfarirnar verði einmitt
fólgnar í því að finna upp ódýr-
ar aðferðir til að framleiða
eggjahvítuefni úr þeim efnum
sem eru fyrir hendi.
Þorbjörn: Og þá handa miklu
stærri hópum en þeim sem
næst okkur búa.
Bjarni Bragi: En viljið þið
framleiða eggj ahvítuef ni úr
olíu?
Steingrímur: Já, auðvitað verð-
ur farið að gera það.
Bjarni Bragi: En sjáið þið til,
olían er takmörkuð og við verð-
um búnir með hana á svo og
svo löngum tíma.
Steingrímur: Þá verða bara
komnar aðrar orkulindir, til
dæmis vetnisorkan. Þá verður
hætt að nota olíu í bíla og
fleira.
Bjarni Bragi: En hversu áreið-
anlegt er það? Það er eitt sem
ég held að væri gott að koma
hér að. Ég hef stundum verið
hugsi yfir því, að þegar iðn-
Tækniþróunin
19