Samvinnan - 01.04.1971, Síða 28

Samvinnan - 01.04.1971, Síða 28
dæmis hefur fjöldi trygninga lækkað úr 2,5 niðrí 1,2 á fáum árum, og sennilega er talan komin ofaní 1,0 núna. Þessi þróun er svo skelfileg, að við hljótum á næstu árum að fá algera stökkbreytingu, annað- hvort með fullkominni friðun eftir að menn hafa gert sér hættuna ljósa, eða við eigum eftir að sjá á eftir þorskinum einsog síldinni. Við höfum mörg dæmi um það, að afli í Jónas: Ég sló þessu svona fram, að um tvær leiðir væri að velja. Annaðhvort tækjum við höndum saman við þær þjóðir,- sem skilja vandamálið, og frið- uðum þá fiskstofna sem væru í hættu, eða við hrepptum ör- lög Nýfundnalendinga. Hildur: En nú er alltaf verið að vara við ofveiði á ýmsum tegundum, laxi hér, þorski þar, hval annarsstaðar, en það virð- ist enginn gegna þessu. Ráðum við því í raun og veru, hvort hægt er að snúa þessu við? Eða erum við bara að tala? Bjarni Bragi: Það er töluvert mikið til i því, að við séum bara að tala, vegna þess að hver sá sem vill taka svonalagað undir samfélagsstjórn er alltaf talinn harðstjóri, en hinir sem leika vilja lausum hala eru ævinlega studdir bæði af ein- staklingshyggju- og sérgróða- sjónarmiðum og jafnvel lika af úthöfum hefur horfið eða minnkað verulega, til dæmis í Norðursjónum. Ég held því, að ef ekki verður brugðið við skjótt, þá muni fiskibæir á ís- landi hafa svipað yfirbragð og til dæmis fiskibæir i Skotlandi og Englandi, þar sem áður var mikið athafnalíf, en nú ríkir kyrrstaða og deyfð. Hildur: Er þetta á valdi okkar sjálfra? félagshyggjumönnum sem telja sig sýna visst frjálslyndi með slíkri afstöðu. Geir: Hér má bæta þvi við, að til að koma fram breytingum verður að hafa áhrif á al- menningsálitið eða að minnsta- kosti stórar stéttir og áhrifa- hópa; með öðrum orðum þarf að breyta skoðunum þessara aðilja. Hér held ég sé komið að grundvallaratriði, sem er það að beita þeirri félagslegu tækni sem felst í upplýsinga- herferðum eða með neikvæðu orði áróðursherferðum i þágu ákveðinna mjög aðkallandi markmiða, einsog til dæmis að vernda fiskstofna og stöðva rányrkju hafsins eða taka fyrir mengun. Hér þarf til félagslega og sálfræðilega tækni. Hildur: Eru það ekki þessar aðferðir, sem við verðum að tileinka okkur á næstu árum, til að fá fólk til að breyta um hugsunarhátt eða finna nýjar aðferðir til að opna augu manna fyrir því sem er að gerast. Jónas: Það þarf skipulagða starfsemi til að sýna fólki framá, hvar rányrkja er stund- uð, þannig að menn liti þessa hluti öðrum augum en þeir gera nú. Menn eru alls ekki sammála um, hvað sé rányrkja og hvað ekki, hvar gengið sé á höfuðstól náttúrunnar og hvar ekki. Víða er ræktun tvímæla- laust rányrkja, þó hún sé mjög víða það gagnstæða. Þorbjörn: Er það ekki svo að þjóðum við norðanvert Atlants- haf hafi ekki tekizt að koma sér saman um takmörkun fiskveiða? Að Norðmenn neiti til dæmis stöðugt að taka þátt í „skömmtun“ fiskimiða? Bjarni Bragi: Það hefur náðst samkomulag um síldina, en þessar stofnanir hafa aðeins haft heimild til að ræða mögu- leika á hugsanlegu kvótakerfi fyrir þorsk og aðrar fiskteg- undir, en ekki haft neitt vald til að semja um það eða ræða framkvæmdaatriði sem raun- hæfa möguleika. Ágúst: Nú er mikið talað um skuttogara. Þá er spurningin, þegar við öflum okkur tækja, með tilliti til framtiðarinnar, til að ná meira magni aflans til okkar áður en aðrar þjóðir ná honum, hvort stefnan sé ekki röng, hvort við séum ekki að bæta tækni okkar til að geta gengið enn frekar á höf- uðstól náttúrunnar. Steingrímur: En hvaða áhrif hefur það, ef okkur tekst að fá viðurkennda 50 eða 100 eða 200 sjómilna fiskveiðilögsögu? Bjarni Bragi: Það hefði fyrst og fremst þau áhrif, að við fengjum vettvang þar sem við Geir: Eigum við að reyna að gera okkur i hugarlund, hvern- ig sambýlishættir muni breyt- ast framtil ársins 2000? Hildur: Ég held að farið verði að miða við kokkhús, sem margir noti saman, og allir, sem noti sama kokkhús, verði heimamenn. Þorbjörn: Ekki held ég nú, að fjölskyldan verði liðin undir lok árið 2000. gætum ráðið þróuninni sjálfir. Að svo miklu leyti sem það er líffræðileg eða „ecologísk“ heild, sem það er að sumu leyti og öðru leyti ekki, þá erum við búnir að fá þar grundvöll til að beita skipulagi og hagræð- ingu á auðlindir, sem við byggj - um á. Annars eru skuttogarar ekki nein voðaleg tæki. Þeir eru fyrst og fremst hagkvæm- ari tæki. Annars verður þetta ekki gott fyrr en við förum að yrkja hafið. íslendingar hafa ævinlega verið að yrkja það sem bezt hefur verið, jörð- ina, kvæði o. s. frv. Þorbjörn: Getum við ekki hugsað okkur að landhelgis- hugtakið verði orðið töluvert úrelt árið 2000? Menn verði hættir að tala um 50 og 200 milur, vegna þess að það eru ekki nema sumir hlutir sem falla undir svo og svo margar milur útfyrir landið, en á hinn bóginn verði komin samstaða og samvinna milli strandþjóða um yfirstjórn hafsins. Þá verði lika farið að byggja miklu meira á beinni ræktun í haf- inu. Bjarni Bragi: Stephan G. sagði eitthvað á þá leið, að enginn maður væri það stór í sinni samfélagshyggju, að hann næði yfir alla jörðina. Maður yrði að byrja á því að vera góður borg- ari síns eigin samfélags. Há- stemmt tal Nixons núna um, að heimurinn þurfi að nýta þessi dásamlegu tækifæri, er í rauninni ekki annað en hjóm, meðan ekki er kominn þessi vettvangur. Auðvitað verður að byrja á þvi að færa út áhrifa- svæði einstakra landa meðan þjóðirnar eru einu stjórntækin eða stjórnkerfin sem um er að ræða, en jafnframt verðum við linnulaust að vinna að sam- stjórn á þessum stofnum sem fara milli landa og á almennu líffræðilegu ástandi hafsins. Ágúst: Heldurðu þá að búið verði að brjóta niður öll hverfi einbýlishúsa hér í Reykjavík? Steingrímur: Ég held að fjöl- skyldan verði ennþá kjarninn, en vitanlega verða einnig önn- ur form. Menn verða frjálsir að því að búa með öðrum hætti ef þeir kæra sig um það. Sigurður: Já, auðvitað verða lifnaðarhættir miklu fjölbreyti- legri, einsog áður var vikið að. Tvær leiðir Sambýlishættir 28

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.