Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 3

Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 3
Raufarhöfn, 17. nóv. 1972 Hr. ritstjóri. Það hefur nú heldur brugðið til betri áttar hjá þér í Sam- vinnunni upp á síðkastið hvað lesmálið þar snertir, og má þar sérstaklega nefna 3. og 4. heft- ið þ. á. Þó er eitt, sem alltaf er samt við sig, og það er þetta, sem þar og viðar er kallað „ljóð“, en er að mínu mati argasta rugl í óbundnu máli, og þetta finnst fleirum en mér, sem eitthvert ljóðeyra hafa. Þriðja heftið, sem lítur út fyrir að eiga að vera afmælisrit stórra og gifturíkra tímamóta samvinnuhreyfingarinnar, þeg- ar maður lítur á framsiðu káp- unnar með sína stóru rauðu tölustafi 90 og 70. Ég er alveg sammála hinum aldraða heið- urs- og samvinnumanni, Snorra Sigfsúsyni, fyrrv. skólastjóra, samanber bréf hans í 4. hefti, að vænta hefði mátt undir þessum káputitli einhverra veigameiri atriða úr samvinnu- sögu 90 ára félagsmálahreyf- ingar, sem orðið hefur íslenzku þjóðfélagi jafngifturík og sam- vinnufélögin. En þessi samtals- þáttur í 3ja heftinu er gott innlegg og mjög við hæfi þessa tímarits það að flytja. Þarna er gripið á mörgu og ýmsum myndum upp brugðið, bæði úr fortíð og nútíð, og einnig mjög horft til framtíðar um skipan mála, á grundvelli þeirrar sam- tíðar sem við lifum í. Þarna eru líka saman komnir, að vísu ókjörnir, fulltrúar íslenzkra samvinnumanna og um leið fjögurra stjórnmálaflokka þjóðfélagsins, og þar á meðal tveir af reynsluríkustu sam- vinnumönnum í landinu, sem staðið hafa í fremstu víglínu samtakanna og í fyrirsvari stærstu og áhrifamestu sam- vinnufyrirtækja landsins um áraraðir, og má því eftir þeim taka, meðal annarra. Þetta samtal við ferkantaða hring- borðið hlýtur því að vekja eft- irtekt og umhugsun, a. m. k. samvinnusinnaðra manna, og efla gildi þeirra hugsjóna, sem samvinnustarfi eru tengdar, og að mínum skilningi á það fyrst og fremst að vera hlutverk tímarits samvinnufélaganna, Samvinnunnar. Þótt á mörgu sé gripið og ýmislegt skelegglega fram sett, er hjá ýmsu sneitt um viðhorf nútímans, sem gæti fullkom- lega verið efni í aðrar og þriðju hringborðsumræður, og þá ekki sízt raunhæf viðhorf launa- manna-flokkanna i landinu, „pólitískt“ séð, úr þvi framá- menn þeirra virðast nú allt í einu hafa fengið skilning og áhuga fyrir samvinnumálum, sem vissulega ber að fagna, því þar er um sterkt þjóðfélagslegt afl að ræða, þar sem a. m. k. um 80% vinnandi handa í þjóðfélaginu tilheyra þeim stéttum, sem taka laun fyrir vinnu sína hjá öðrum, sér og sinum til lifsframfæris, og jafnframt með þjónustu sinni skapa verðmæti þjóðfélagsins ásamt mestum hluta hinna 20% þjóðarinnar. Þetta afl get- ur hvenær sem er ráðið öllum málum þjóðfélagsins og stjórn- að þjóðarbúinu, ef samstaða og samvinna um það væri til staðar, en á það hefur hingað til verulega skort. En það verð- ur að gerast með fullri ábyrgð viðkomandi stétta, að hætti samvinnumanna, fyrir velfarn- aði allra þegna þjóðfélagsins, en ekki að hætti byltingar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.