Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 42

Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 42
sagna er máliS með afbrigðum einfalt og fjarri því að vera nokkurt lögfræði- legt vandamál. Á hinn bóginn sýnist gæta einhverrar viðleitni til að gera málið flóknara en efni standa til, og af þeim sökum er greinargerð þessi orðin jafnlöng og raun ber vitni. Þótt mál þetta sé ekkert lögfræðilegt vandamál, er það allrar athygli vert fyrir aðrar sakir. Það er ágætt dæmi um tví- skinnung íslendinga í viðhorfi þeirra til laga og réttar. Það varpar og skýru ljósi á þá andlýðræðislegu þróun, sem flestir finna fyrir, en fæstir eiga kost á að rekja lið fyrir lið. Þá sýnir það og glögg- lega hlut lögfræðinganna í því að rétt- læta þessa þróun — hvernig það er gert með orðalagi, sem er hæfilega framand- legt til að fá á sig yfirbragð þeirrar lög- speki, sem er ofar skilningi venjulegra manna. Af þessu þróast síðan stjórnar- hættir, sem helzt minna á launhelgar. Á þeim kunna engir skil nema „sérfræð- ingar“ — hinir innvígðu. — Með því er hringnum lokað. Hinn lýðræðislega kjörni stjórnmálamaður hefur nú fengið það, sem hann er talinn þurfa til að réttlæta aðgerðir eða aðgerðaleysi. í stað þess að vera fulltrúi kjósenda gagnvart stjórn- kerfinu, er hann orðinn fulltrúi þess gagnvart kjósendum. Skal þetta nú útlistað ögn nánar með hliðsjón af sjónvarpsmálinu og með- ferð þess. í viðhorfi íslendinga til laga og réttar gætir áberandi tvískinnungs. Þeir eru allra manna iðnastir við lagasetning, en að sama skapi ófúsastir til lagafram- kvæmdar. Endurskoðun laga og setning nýrra er það úrræði, sem oftast heyrist nefnt, þegar vanda ber að höndum — sjaldan er hins vegar um það spurt, hvað lagaframkvæmd líði. Sá embættismaður sem framfylgir lögum, er ekki í neinum sérstökum hávegum hafður — hinum er hossað, sem sýnir linkind og slóðaskap. Hann fær það orð að vera laus við smá- smygli, frjálslyndur og umburðarlyndur. Allir kannast við það úr opinberum umræðum, að ekkert þykir sjálfsagðara en ströng lög um verndun fiskistofna — löggjöf, sem hefur að geyma þung viður- lög, ef út af er brugðið. Þegar hins vegar að því dregur, að brotlegir menn eigi að svara til saka, kemur annað hljóð í strokkinn. Að vísu verða þeir menn að sætta sig við formlega málsmeðferð og dóm, þótt engan veginn gerist það mögl- unarlaust. Hitt þykir aftur alger ósvinna að framfylgja slikum dómum, t. d. að innheimta sektir, enda eru fá tækifæri látin ónotuð til að „náða“ landhelgis- brjóta. — Víst mætti nefna fleiri áþekk dæmi, þótt ekki sé tóm til þess hér. Þessi tvískinnungur er og harla aug- ljós í því máli, sem hér er til umræðu. Lög eru sett um skýlausan einkarétt Ríkisútvarpsins til útvarpsrekstrar. Þessi stefna er áréttuð við hverja endurskoðun þeirra. Hins vegar sýnist enginn, sem hlut á að máli, telja neina ástæðu til að framfylgja þessum einkarétti. Núverandi ráðamönnum Rikisútvarpsins virðist vera það svo fjarri skapi, að vandséð er, hvort þeir telji fremur skyldu sína að gæta hagsmuna varnarliðsins eða Ríkisút- varpsins. Áhugaleysi og deyfð er sameiginlegt vandamál allra, sem við stjórnmál fást, og eitt algengasta umkvörtunarefni, þeg- ar opinberum yfirlýsingum og ræðuhöld- um sleppir. Eru til ýmsar skýringar á því, hvað valdi og virðist sú vera sanni næst, að allur þorri manna sjái engan tilgang í stjórnmálastarfi: hann geti hvort eð er engin áhrif haft, og sé þvi ástæðulaust að eyða tíma og erfiði í jafntilgangslausa iðju. Slik viðhorf mót- ast m. a. af því, að menn finna, að lýð- ræðið er með einhverjum hætti óvirkt, en eiga hins vegar sjaldnast kost á að fylgjast svo rækilega með gangi mála, að þeim sé unnt að gera sér glögga grein fyrir, hvað raunverulega valdi. Meðferð sjónvarpsmálsins varpar skýru ljósi á þessa þróun, þannig að af henni má ýmislegt ráða um það, hvernig lýð- ræðisstjórnarhættir úrkynjast stig af stigi, unz þeir verða með öllu óvirkir. Eitt meginatriði lýðræðisstjórnarfars er það, að þjóðfélagsþegnunum á að gef- ast kostur á að hafa áhrif á stefnumótun, og er óþarft að lýsa þvi nánar, hvernig það á að gerast með almennu kjöri full- trúa til löggjafarsamkomu á ákveðnum fresti. Þessari skipan hefur raunar oft verið fundið ýmislegt til foráttu, og það dregið í efa, að hún tryggði lýðræðislega stjórnarhætti í reynd. En við hana verð- ur þó að una eins og sakir standa, hvort sem síðar tekst að finna aðra betri. Nú ber svo við hér á landi, að ríkis- stjórn situr, sem hefur þá yfirlýstu stefnu að láta varnarliðið hverfa af land- inu. Að sjálfsögðu hlýtur eins og hér stendur á að felast í þessari stefnu það sem minna er: að varnarliðið skuli hafa sem minnst áhrif á íslenzkt þjóðlíf, með- an það dvelst hér á landi, þ. á m. að það starfræki ekki jafnöflug áróðurstæki í íslenzku þjóðfélagi og útvarps- og sjón- varpsstöðvar, sem senda út miklu lengri tíma en innlendar stöðvar. Lokun varnarliðssjónvarpsins hefur og verið yfirlýst stefna a. m. k. tveggja stjórnarflokka — Alþýðubandalagsins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, svo og nokkurs hluta Framsóknarflokks- ins. Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir það að Alþingi hafi síðan 1934 þrisvar sinnum ítrekað þá stefnu, að ríkið eigi að hafa einkarétt á útvarpi (síðan 1966 á hljóð- varpi og sjónvarpi), og sú stefna hafi við hverja endurskoðun laganna verið skýrar og ótvíræðar mörkuð, geta emb- ættismenn þeir, sem til framkvæmda eru settir, komið í veg fyrir, að það sé gert. Er þá ekki ófyrirsynju, þótt spurt sé: Til hvers er verið að kjósa til Alþingis? Til hvers eru flokkar að marka ákveðna stefnu? Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar eru bersýnilega með öllu áhrifalausir. Annar kostur lýðræðisstjórnarfars á að vera aðhald, sem það veitir. Æðstu emb- ættismenn stjórnarframkvæmdar (ráð- herrarnir) bera ábyrgð fyrir hinum þjóðkjörnu fulltrúum (þingmönnunum), m. a. með því að ákvarðanir þeirra séu framkvæmdar. Embættismenn bera síðan ábyrgð gagnvart ráðherra. — En hvernig er þessi ábyrgð í reynd? Hvert er að- haldið? í því máli, sem hér er gert að umtals- efni, bregzt Alþingi hlutverki sinu. Það lætur átölulaust, að lög séu þverbrotin og gerðir þess ómerktar. Það auglýsir með því hlutverk sitt sem afgreiðslu- stofnun stjórnkerfisins, og er það í sam- ræmi við það, sem áður sagði, að stjórn- málamaður sá, sem fólkið hefur kosið til trúnaðarstarfa, er ekki lengur fulltrúi þess gagnvart stjórnkerfinu, heldur um- boðsmaður stjórnkerfisins gagnvart kjós- endum. Ef einhver óbreyttur kjósandi skyldi nú vilja veita embættismönnum aðhald, sem hinir kjörnu fulltrúar láta undir höfuð leggjast að gera, t. d. með því að fá staðfestingu dómstóla á ólögmæti að- gerða eða aðgerðaleysis, stoðaði það sjaldnast, því að hann yrði í fæstum til- vikum talinn „réttur aðili“. Sá, sem stefnt væri, yrði væntanlega sýknaður, vegna þess að stefnandinn teldist ekki réttur aðili málsins. Ef þessi almenni borgari vildi hins vegar fara þá leið að kæra hlutaðeigandi embættismann fyrir vanrækslu í starfi, eru litlar líkur á að neitt ynnist við það. Margvíslegar misfellur geta verið í starfi embætismanna, þótt ekki verði af- brot kölluð, þannig að-enginn grundvöll- ur sé til ákæru. Þegar svo stæði á, gætu komið til álita sérstök viðurlög með stoð í lögum um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins (áminning eða brott- vikning úr starfi). Til tíðinda mætti þó telja, ef stjórnvöld létu þannig til skarar skríða gegn embættismönnum, þótt starfi þeirra væri ábótavant í ýmsum greinum, enda yrði þá einatt stéttarfélögum að mæta. í reynd má því telja slikar réttar- farsleiðir útilokaðar. Ef t. a. m. einhver óbreyttur borgari vildi láta á það reyna fyrir dómstólum, hvort starfsemi varnarliðsútvarpsins (hljóðvarps og sjónvarps) væri lögleg, eru engar likur til að dómstólar tækju kröfu hans til greina, þótt sjónarmið stefnandans um ólögmæti stöðvarinnar 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.