Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 39

Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 39
að til. Við gerð varnarsamningsins var því og marglýst yfir, að eitt meginmark- mið hans væri, að dvöl varnarliðsins hefði sem allra minnst áhrif á íslenzkt þjóðlíf og þetta hefur síðan verið sú stefna, sem opinberlega hefur verið við- urkennd.4) Þetta verður allt ljósara og fær enn frekari staðfestingu, þegar litið er á 2. gr. viðaukans við varnarsamninginn, sem áður var nefndur. Þar segir í 1. tl. b-lið: „Liði Bandaríkjanna og skylduliði liðs- manna á íslandi ber að virða íslenzk lög og hafast ekkert það að, sem fer í bága við anda þessa samnings, og einkum skulu þeir forðast að hafa nokkur af- skipti af íslenzkum stjórnmálum. Banda- ríkin munu gera viðeigandi ráðstafanir í þessu skyni.“ Dvöl Bandaríkjahers á íslandi hefur lengi verið mikið pólitískt deilumál. Rekstur sjónvarps- og hljóðvarpsstöðvar- innar veitir m. a. aðstöðu til verulegrar íhlutunar um það mál. Með því einu er liðið tekið að hafa afskipti af íslenzkum stjórnmálum, sem er skýlaust brot á um- ræddu ákvæði. Er því augljóst, hversu fjarri fer, að vamarsamningurinn veiti nokkra heimild til þessarar starfsemi. Miklu nær er að álykta, að það séu ekki einungis útvarpslögin, sem banna hana, heldur varnarsamningurinn sjálfur. Þegar þetta er haft í huga, getur 1. gr. samningsins ekki falið annað í sér en aðstaða skuli veitt fyrir nauðsynlegan varnarbúnað og hermenn til þess að halda megi uppi þeim vörnum, sem þurfa þykir. Að sjálfsögðu felst í þessu aðstaða til að hermönnunum séu búin viðunan- leg lífsskilyrði, — að þeir geti eftir því sem unnt er lifað eðlilegu og mennsku lífi. Hitt nær engri átt, að þessi eða önnur ákvæði samningsins eigi að túlka svo rúmt, að hann veiti varnarliðinu aðstöðu til að reka bæði hljóðvarp og sjónvarp fyrir fslendinga og þá um leið aðstöðu til stórfelldra áhrifa í íslenzku þjóðfé- lagi. Ekkert slíkt verður lesið úr ákvæð- um samningsins og hefur ótvírætt aldrei hvarflað að neinum, sem stóð að gerð hans. Raunar ætti ekki að vera nein þörf á að viðhafa mörg orð um þetta: Það stenzt alls ekki, að skýring, sem verður ekki studd við eitt einasta orð í samn- ingnum og fer í bága við augljósan og yfirlýstan tilgang hans geti haft nokk- ur áhrif á skýlaus og ótvíræð ákvæði ís- lenzkra laga — eins og útvarpslaganna. Hér breytir engu, þótt ríkisstjórnir kynnu að hafa lagt blessun sína yfir veitingu hljóðvarpsleyfisins á sínum tíma og er sama að segja, þótt ríkis- stjórnir hefðu skilið lög nr. 88/1966 — sem lögðu sjónvarp undir útvarpslögin og þá væntanlega um leið einkarétt Rík- isútvarpsins — svo, að þau stæðu ekki í vegi fyrir, að varnarliðið héldi fyrri leyfum til hljóðvarps- og sjónvarps- rekstrar. Ekki haggar það heldur neinu, þótt rikisstjórnir kynnu að skilja út- varpslögin nr. 19/1971 þessum sama skilningi. Raunar er ekkert sem bendir til að neinar ríkisstjórnir hafi skilið út- varpslög á þann veg, heldur hið gagn- stæða. Má í þessu samhengi minna á, að fyrst eftir veitingu sjónvarpsleyfisins 1955 var reynt að búa svo um, að send- ingar væru takmarkaðar við flugvöllinn, m. a. var neitað beiðni um stækkun stöðvarinnar 1956. Árið 1961 var hins végar veitt leyfi til að fimmfalda orku hennar, en það var bersýnilega veitt á íöngum forsendum. Hér má og hafa í huga, að yfirlýsing varnarliðsins frá 6. september 1966 um að sjónvarpið yrði takmarkað við næsta nágrenni Kefla- víkurflugvallar hefur reynzt markleysa.5) Annars verður það rætt nánar í 7. kafla hér á eftir, hvaða áhrif aðgerðar- leysi stjórnvalda gæti haft á rétt varn- ai'Iiðsins til hljóðvarps- og sjónvarps- réttar. Utanríkisráðherra hefur þannig enga heimild skv. varnarsamningnum frá 1951 til að veita útvarpsrekstrarleyfi — hvorki leyfi til hljóðvarps né sjónvarps. — Lög nr. 110/1951, sem veita varnar- samningnum lagagildi, koma þannig að engu haldi við að réttlæta þessa ólög- legu starfsemi varnarliðsins.0) 6. Geta stjórnvöld veitt undanþágu frá einkarétti Ríkisútvarpsins eða framselt hann öðrum? Þess hefur verið getið hér að framan, að frá 1934 hafi aldrei verið nein heimild í útvarpslögum til þess að veita undan- þágu frá einkarétti Ríkisútvarpsins eða framselja hann með öðrum hætti. Verð- ur þetta nú rætt örlitlu nánar. Eins og ljóst er af framansögðu, hefur löggjafinn frá upphafi markað þá stefnu alveg ótvírætt, að ríkið (ríkisstjórnin — Ríkisútvarpið) ætti að hafa einkarétt til að reka útvarp á íslandi. Til þess að unnt væri að veita undanþágur yrði að vera heimild til þess í lögunum. Þetta leiðir af sjálfri 2. gr. útvarpslaganna nr. 19/1971 (og 1. gr. eldri laga). Sú aðferð við lagasetningu væri öldungis óeðlileg að áskilja ríkinu fyrst einkarétt ótvíræð- um orðum en bæta svo við ákvæðum, sem bönnuðu undanþágur eða framsal á honum. Á hinn bóginn væri alger nauðsyn að taka berlega fram í lögunum, ef heimila ætti undanþágur eða önnur frávik. Þann- ig er og ávallt farið að í lagasetningu. Má sem dæmi einmitt taka fjarskipta- lögin. Þau áskilja rikinu einkarétt til allra fjarskipta, en heimila jafnframt ráðherra að veita undanþágur, sem nánar eru tilteknar. En getur þá Rikisútvarpið framselt einkarétt sinn? Um slíkt framsal er það almennt að segja, að stjórnarstofnun er ekki heimilt að framselja vald sitt, nema skýlaus heimild sé í lögum.7) Um slíkar heimildir eru ýmis dæmi í lögum, sem ekki er þörf á að rekja hér. Þrátt fyrir þá meginreglu, að framsal stjórnvalds sé óheimilt, hefur þess gætt nokkuð í fram- kvæmd, að embætis- og sýslunarmenn seldu vald sitt í hendur fulltrúum sin- um og aðstoðarmönnum án þess að slíkt hefði beina stoð í lögum .Slíka fram- kvæmd má væntanlega telja venjuhelg- aða a. m. k. í sumum tilvikum. Hér hefur verið rætt um stjórnvald eða opinbert vald og þá athugasemd má gera, að einkaréttur Ríkisútvarpsins til út- varpsrekstrar eigi ekkert skylt við stjórn- vald og þvi ástæðulaust að ræða reglur, sem um það gilda í þessu samhengi. Ef orðin stjórnvald eða opinbert vald. eru skilin svo, að þau feli í sér rétt og skyldu opinberrar stofnunar til ákvörðunar á þeim sviðum, sem henni eru helguð, er auðsætt, að einkaréttur Rikisútvarpsins fellur undir ofangreind hugtök — eða hann má a. m. k. leggja að jöfnu við opinbert vald. Heimild opinberrar stofn- unar — eins og t. d. Rikisútvarpsins — í þessum efnum færi hins vegar eftir þeim reglum, sem henni væru markaðar. Þegar þetta er haft i huga, sýnist sem það væri ef til vill í samræmi við lög, að Ríkisútvarpið fengi öðrum rétt til að endurvarpa eigin útsendingum hvort heldur væri frá sjónvarpi eða hljóðvarpi. Þannig væri Ríkisútvarpinu hugsanlega heimilt að framselja vald sitt og rétt innan þeirra marka, að ekki færi í bága við megintilgang laganna — þann, að Ríkisútvarpið hafi einkarétt til útvarps á íslandi. Hitt er augljóslega óheimilt, að Ríkis- útvarpið framselji einkarétt sinn til ann- ars aðilja, sem er í samkeppnisaðstöðu við það og lýtur að auki yfirráðum er- lendra stjórnvalda. Raunar má segja, að slíkt framsal á valdi feli nákvæmlega það sama í sér og að veita undan- þágu frá einkaréttinum. Er því ekki þörf á að orðlengja um það frekar en þegar hefur verið gert í upphafi þessa kafla. 7. Hefur sjónvarp varnarliðsins lög- helgazt fyrir venju? Þegar haft er í huga, að hljóðvarp varnarliðsins hefur nú verið starfrækt í 20 ár — að vísu andstætt ákvæðum út- varpslaga — mætti e. t. v. hreyfa því, hvort það hafi ekki samt sem áður lög- helgazt fyrir venju. Sjónvarpsrekstur varnarliðsins megi af sömu ástæðu telja löglegan, þótt hann hafi staðið skemur. Hér hafi það í raun og veru gerzt, að venja hafi vikið til hliðar settum laga- ákvæðum. Viðurkennt er, að venja geti orðið grundvöllur réttarreglu, jafnvel með þeim hætti að þoka til hliðar settu laga- ákvæði. Getur þá hvort tveggja gerzt: Réttarvenjan fellir úr lögum tiltekið á- kvæði án þess að ný regla komi í stað- inn eða venjan leiðir til þess, að ný regla verði til, er leysi hina settu reglu af hólmi. í fyrra tilvikinu er talað um, að lög falli úr gildi fyrir fyrnsku (desvetudo) og eru vafalaust til ýmts dæmi um það í ís- lenzkum rétti, þótt mjög sé hins vegar fátítt, að dómstólar hafi viðurkennt brottfall laga fyrir þessar sakir. Skýr dæmi um síðara tilvikið — að venja móti nýja reglu, sem felli brott ákvæði í settum lögum, eru þó enn vand- fundnari. Er t. a. m. mjög fátítt, að slíkt komi til álita í dómsmálum hér á landi og tæpast unnt að benda á, að dómur 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.