Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 61

Samvinnan - 01.12.1972, Blaðsíða 61
stjórnmála, bæðí frumsamið, aðsent og að einhverju litlu leyti aðfengið efni. En ekki verður þess vart að neitt blaðið sérhæfi sig né leggi sérstaka visvitandi rækt við neinn þeirra. Um þessa efnis- flokka er þess annars að geta að „at- vinnumál“ taka til greina um alla helztu atvinnuvegi landsmanna — einkum um landbúnað i Tímanum, sjávarútveg í Þjóðviljanum, hvort sem það er af stefnu eða hendingu. En til „félagsmála" telst fjarska blandað efni, greinar um skóla- mál, heilbrigðis og tryggingamál, verka- lýðsmál í Þjóðviljanum o. s. frv. Grein- arnar um „varnarmál", einkum í Morg- unblaðinu, fjalla að mestu um hina um- ræddu flugbrautargerð í Keflavík og fyr- irhugaða endurskoðun varnarsamnings- ins. En undir „stjórnmál“ eru taldar ýms- ar almennar pólitiskar hugleiðingar. Greinar um hin margumræddu um- hverfismál, náttúruvernd og mengun, einkum í Morgunblaðinu, eru hér taldar með öðru efni um „tækni og vísindi", margt af því þýtt. „Ferðaþættir" eru bæði innanlands og erlendis að, en einnig eru þar með talin ýmis fréttabréf og frásagn- ir eftir íslendinga búsetta erlendis, eink- um námsmenn og einkum birt i Morgun- blaðinu. Hér eru aðeins talin þau „við- töl“ sem sér í lagi beinast að því að segja frá og lýsa þeim manni sem við er rætt, en aðrar greinar í viðtalsformi flokkast eftir viðfangsefnum sínum. „Þýddar greinar til skemmtunar og fróðleiks“, eftir nafngetna höfunda, eru sem sjá má fyrirferðarmiklar i Morgunblaðinu, og er það margvíslegt efni — ástar- og ævi- sögur Gretu Garbo og Alberts Einstein, svo að eitthvað sé nefnt. Auðvitað birtist í öðrum blöðum miklu meir af þýddu efni en 9da tafla gefur beinlínis til kynna. En þar er sjaldan um að ræða „greinar" i þeim skilningi sem hér er lagður í orðið heldur frjálslegar þýðingar og endursagnir efnisins, oft og einatt án þess að heimilda sé getið. Þótt þýðingar Morgunblaðsins séu iðulega aðfinnslu- verðar mun aðferð þess þó nær lagi en hinar landlægu endursagnir annarra blaða — sem raunar tíðkuðust einnig til skamms tíma í Morgunblaðinu. Á töflu 9 má ennfremur sjá greinar- mun á Alþýðublaðinu og Vísi og öðrum blöðum, að því leyti til hve miklu minna rúm þau ætla „almennu greinaefni" sínu, aðeins 6% af efni þeirra hvors um sig i apríl. Greinaefni Alþýðublaðsins fellur að miklu leyti á þjóðmálasíðu þess. En fyrir- ferðarmestu þættir greinaefnisins, „við- töl“ og „ferðaþættir“ heyra báðir til hinu „létta lesefni“ sem blaðið leggur mesta alúð við. Á 9du töflu má einnig sjá það sem fyrr var sagt um Vísi, að blaðið leggur langmest kapp á fréttaefni sem aflað er, samið eða þýtt á blaðinu sjálfu. Meira að segja má vera að greina- efni Vísis geti einatt reynzt fábreyttara en taflan gefur til kynna. Meira en helm- ingur þess efnis sem hér er sagt að fjalli um efnahagsmál er sem sé ein aðsend grein eftir hinn einkennilega hugmynda- fræðing, Geir Andersen, sem upphófst í blaðinu við stækkun þess i vor, en allt efnið um „félagsmál" er fyrrnefnd grein Þorsteins Thorarensen um læknamálin. Annars birtir Vísir sem fyrr segir viku- lega frumsamda grein um alþjóðamál. Af öðru greinaefni, samkvæmt 9du töflu, sinnir blaðið eiginlega aðeins „menning- armálum" en helgar því efni líka sér- staka síðu flesta daga vikunnar. Menningarmál eru sem sjá má efnis- flokkur sem velflest blöðin leggja veru- lega rækt við — en í orðið er hér lagður þröngur og hefðbundinn skilningur: efni sem fyrst og fremst fjallar um bók- menntir og listir og skyld viðfangsefni. Greinar og umsagnir af þessu tagi voru næststærsti efnisflokkur hins almenna greinaefnis í Morgunblaðinu og Tíman- um, stærstur í Vísi og Þjóðviljanum í apríl 1972. Það er glöggt að á þessu efnis- sviði telja blöðin sig eiga einhvers konar skyldur að rækja. í framhaldi af 9du töflu er í töflu 10 prófað að sundurgreina efni blaðanna um menningarmál í nokkrar helztu efn- isdeildir. Og hér koma yfirburðir Morg- unblaðsins enn gleggra í ljós en áður; meir en þriðjungur af greinaefni blaðsins af þessu tagi þennan mánuð var aðfeng- ið, aðsent og að einhverju leyti þýtt efni. Þetta efni, talið hér í einu lagi undir heitinu „ýmsar greinar“, er vitaskuld af margvíslegu tagi, og meira af menningar- efni blaðsins en hér er talið var aðsent. Ýtarlegar greinar birtust þennan mánuð í Morgunblaðinu um íslenzka tungu og þjóðernismál, arkítektúr og borgarskipu- lag, málefni bókasafna svo að dæmi séu nefnd. Annars er uppistaðan í efni blað- anna um menningarmál meir og minna reglubundnar umsagnir og aðrar greinar um hefðbundin viðfangsefni á sviði „menningarinnar": bókmenntir, leiklist, myndlist, tónlist.. .20 Alþýðublaðið sker sig úr fyrir það hve lítið efni það birtir af þessu tagi. En ekki munar miklu á blöðunum að því leyti, hve mikið rúm þau helgi þessum efnum. Og sá munur sem þó kemur fram á töflunni kann að stafa af hendingu, svo sem hve Vísir skrifaði miklu meira um tónlist, Tíminn meir um leiklist í þessum mánuði en önnur blöð. En þesslegt er að Morgun- blaðið og Þjóðviljinn leggi mun meiri í. Ut Aigbtaís \ Kemur út virka daga 6 blöð (að minsta kosti) til Jóla. Afgreiöila i Bárubúð. kl. .11 árdegis. Kosta áikrifendur 15 au.—Einitök3 au. Opin kl. 11 árd. til kl. 3 síöd._ Talilml 500 (KilNtJórn) MOBGUNBIADID TaUlml 48 (ari;roiði.lu) Rfvkjavllt. 2. nAvc TÍMLV.N' TIMINN [ JLVUHKIDSLA. » Liugivta 4 (BAka* búðinni). {‘•r *r ttkið i mAli áikrifcndum. J. ár. i| Rf jkjáTÍk, 17. man 1917. Alþýðublaðið Geflð tlt fií Alþýðuilokknum. MiBvikudaginn 29. október þlÓÐVILllNN I. ARCANCLR Ut.CARDACINN 31. OKT. 19.V. i. TÖLUBLAD Vinnundi slrttir Islands! Sunicinist Krgit íiialdi og fusisma! Hausar fyrstu ein- taka allra fimm dagblaðanna. 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.