Samvinnan - 01.12.1972, Page 31

Samvinnan - 01.12.1972, Page 31
getur orðið samvinnuhreyfingunni ör- lagarík þegar framí sækir, vegna þess að neytendafélögin eru fyrst og fremst á þéttbýlissvæðinu í landinu suðvestan- verðu þar sem fólksfjölgunin er langsam- lega örust. Fari svo að neytendafélögin á Faxaflóasvæðinu verði eftirbátar einka- verzlunarinnar, er vissulega komið útá hálan ís. Fræðslustarf í Noregi Þó aðstæður séu að sumu leyti svip- aðar í Noregi og á íslandi, er neytenda- þátturinn miklu öflugri í norsku sam- vinnuhreyfingunni en þeirri íslenzku, enda er lögð mikil og vaxandi áherzla á neytendafræðslu og þátttöku neytenda í öllum félagsmálum hreyfingarinnar. Stjórn norska samvinnusambandsins (NKL) velur ár hvert fimmtán manna fræðsluráð, þar sem eiga sæti starfsmenn fræðsludeildar, fulltrúar hinna ýmsu svæða í landinu og sambandsstjórnar- menn. Ráðið kemur saman að minnsta- kosti tvisvar á ári, vor og haust, til að ræða fræðslu- og félagsstarfið í hreyf- ingunni, skipulagningu þess, neytenda- fræðslu, störf fræðslunefnda kaupfélag- anna, kostnað við fræðslustarfið og til að semja starfs- og kostnaðaráætlanir fyrir komandi ár. í Noregi eru samtals um 750 kaupfélög með rúmlega 400.000 félagsmönnum. í hverju kaupfélagi er kosin fimm manna fiæðslunefnd sem stýrir öllu fræðslu- starfi í samráði við félagsstjórn. Nefndin gerir starfs- og kostnaðaráætlun fyrir hvert ár, sem lögð er fyrir félagsstjórn til samþykkis, og sér siðan um fram- kvæmdina. Svo skilar hún ársskýrslu til stjórnar og aðalfundar. Leitazt er við að velja fræðslunefndir kaupfélaga þannig, að í þeim sitji jafnan einn starfsmaður félagsins, einn stjórnarmað- ur og ein kona að minnstakosti . Störf fræðslunefnda norsku kaupfélag- anna má greina í eftirtalda liði: 1) að skipuleggja og stjórna fræðslu- starfi kaupfélagsins eftir áætlun sem félagsstjórn hefur samþykkt; 2) að útbreiða samvinnublöð og annað prentað mál hreyfingarinnar eftir fremsta megni; 3) að stunda neytendafræðslu, einkum meðal húsmæðra, sem er fyrst og fremst fólgin í að veita upplýsingar um vöruverð og vörugæði og dreifa öðru upplýsingaefni frá norska sam- vinnusambandinu; 4) að fá sem flesta til að taka þátt í námsflokkum, einkum þó trúnaðar- menn og starfsfólk; 5) að safna nýjum félagsmönnum og halda uppi áróðri með fundum, hús- vitjunum og sérstökum kynningum, ekki sízt í sambandi við opnun nýrra verzlana; 6) að þjálfa starfsfólk, bæði í félagsmál- um og daglegum störfum, með því að hvetja það og styrkja til þátttöku í námskeiðum og öðru fræðslustarfi; 7) að koma á sambandi við önnur félags- samtök, svosem bænda, verkalýðs, kvenna, æskufólks o. s. frv. með það fyrir augum að fá þau til samstarfs og vekja áhuga þeirra á samvinnu- starfi; 8) að halda uppi sambandi við fræðslu- deild norska samvinnusambandsins, við fylkjafélögin sextán sem starfa að fræðslumálum kaupfélaganna í 20 fylkjum Noregs og við ellefu svæðis- fræðslufulltrúa sem starfa á vegum skipulagsdeildar samvinnusambands- ins. Einsog sjá má á þessari upptalningu er um viðtækt og velskipulagt fræðslu- starf að ræða í norsku samvinnufélög- unum, en vitanlega fer árangurinn eftir félögum og fólki sem til forustu velst og svo að sjálfsögðu eftir fjármagninu sem fram er lagt, en yfirleitt er talið eðli- legt að verja 3 %„ af veltu til fræðslu- starfsemi . Hinni eiginlegu fræðsludeild norska samvinnusambandsins má skipta í sex undirdeildir, sem annast neytenda- fræðslu, námsflokkahald, kvikmyndasýn- ingar og fyrirlestrahald, bókaútgáfu, bókasafnsrekstur og æskulýðsstarf. í ó- beinum tengslum við fræðsludeildina eru svo samvinnuskólinn, skipulags- og svæðaskrifstofur og blaðaútgáfa sam- vinnusambandsins. Veigamesta og víðtækasta starf fræðsludeildar felst annarsvegar í nám- skeiða- og ráðstefnuhaldi og hinsvegar í námsflokkastarfi. Er það starf einkum miðað við þrjá hópa, starfsfólk, trúnað- armenn og neytendur. Flest eru nám- skeiðin haldin að frumkvæði fræðslu- deildar, en kaupfélögin geta líka, eitt eða fleiri saman, óskað eftir þeim og leitað aðstoðar við skipulagningu og framkvæmd þeirra. Sömuleiðis eru nám- skeið og ráðstefnur iðulega haldnar í samvinnu við önnur landssamtök. Annað höfuðverkefni fræðsludeildar er að safna nýjum félagsmönnum. Það rækir hún meðal annars með því að láta útbúa og dreifa bæklingum, vegg- spjöldum, gluggaútstillingum, umsókn- areyðublöðum og öðru þvíumlíku. Neytendafræðsla deildarinnar er með- al annars fólgin í útgáfu bæklinga og dreifirita, sem liggja frammi í verzlun- Einn al starfshópunum á neytendaþingi sœnska samvinnusambandsins i Stokkhólmi 20.—23. september 1971. 23

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.