Samvinnan - 01.12.1972, Page 46
tæki upp „nýja“ færanlega íbúð? Yrði
hann þá er tímar liðu opnari fyrir ytri
áhrifum og jafnvel tillitssamari og sam-
vinnuþýðari við umhverfi sitt?
Bein kynning og góður skilningur milli
fólks af mismunandi þjóðarbrotum, sem
við getum nefnt alþjóðlegt samfélag, gef-
ur ekki góða raun aðeins með aðstoð
ferðamála eða með miðlun nútíma fjar-
skiptatækni. Þessu takmaiki er fremur
hægt að ná með samfélagslífi sem nær
yfir lengri tíma en þann sem nemur einu
sumarfríi. íbúar allra landa ættu að geta
dvalið mánuði eða ár án teljandi erfið-
leika sem nágrannar hlið við hlið.
Þess konar alþjóðlegt samfélag er nú
tæknilega mögulegt, en vegna staðnaðra
stjórnmálakerfa og krafna mismunandi
efnahagskerfa, sem standa sem hindrun
í veginum, er það ekki gerlegt í reynd.
Af sömu orsökum eru styrjaldir sprottn-
ar.
Segjum að gerlegt sé að þróa færan-
legar íbúðir, sem myndu auka samskipti
mannfólksins, þá mætti sennilega taka
smám saman úr veginum hindranir á
tilveru alþjóðlegs þjoðfélags.
Hér er lögð til gerð færanlegra eða
svífandi íbúða með þeim eiginleikum er
bíll, skip, flugvél og hús hafa. Þessi ak-
andi, siglandi og fljúgandi ibúð er skoðuð
hér sem eining sem „þróar líf“. En þar
með er „þróun lífs“ skilgreind sem aukin
reynsla, auðgun andans og þar með að-
stoð við hugmyndina um alþjóðlegt sam-
félag.
Pleiri rök styðja þá skoðun, að stefna
beri að því að þróa svífandi húsaskýli:
Ein rótin að valdagræðgi mannsins er
þörfin að eiga sitt eigið landsvæði. í
litlum mælikvarða er það óskin um að
eiga eigin lóð og reisa þar hús sitt. í
stærri mælikvarða eru það tilraunirnar
til að ná valdi yfir öllu yfirborði jarðar
eða a. m. k. hafa bein áhrif á það allt.
Við þekkjum þýðingarmikil söguleg
dæmi um það, að eignar- og valdakröfur
byggja m. a. á þeirri „þörf“ að búa með
fjölskyldu sinni í eigin húsi á eigin lóð
eða að vera „búsettur". Ef við sleppum
hugtökunum „búsettur" og „jarðfast
skýli“, þá getum við líka sleppt „þörfinni“
að eiga land.
Maðurinn ynni hér meira frjálsræði:
hann yrði óbundnari, opnari og jafnvel
hreyfanlegri í hugsun. Með því að skipta
á staðbundnu skýli og svífandi skýli
mundu með tímanum jákvæð persónu-
einkenni mannsins eflast.
Með svífandi skýli þyrfti aðeins að
borga lóðarleigu, eða eins og hér er
seinna fjallað um leigu á „aðstöðu" í
borgarkerfi. Þetta þýðir aukna hag-
kvæmni fyrir manninn; við getum jafn-
vel kallað það meira „frelsi".
Stöðugur straumur inn- og útflytjenda
af þessari gerð um öll ríki jarðarinnar
mundi e. t. v. með tímanum hjálpa til
að breyta núverandi stjórnmálakerfum,
sem eru úrelt vegna valdakrafna sinna,
óbreytanlegrar ideólógiu og sögulegrar
skammsýni, en fá i staðinn alþjóðlegt sí-
breytilegt lífsviðhorf.
Þær stefnur, er nú færast í vöxt, al-
þjóðlegar fyrirtækja- og efnahagssam-
steypur (þótt endurskoða megi takmark
þeirra) ásamt vinnuaðferðum framtíðar-
innar i formi sjónvarpsfjarskipta að við-
bættum vaxandi frítíma, eru e. t. v.
fyrstu merki þess, að myndin af þessum
inn- og útflytjendum, sem hér er lýst,
eigi einhvern tima eftir að verða að veru-
leika.
En athugum nú seinna atriðið í sam-
bandi við áhrif ytra umhverfis á mann-
inn með því að skoða frummanninn.
2. Eftir að hafa endanlega byrjað stöð-
uga dvöl sína i jarðföstu skýli hefur mað-
urinn mótazt af ákveðnum atriðum með
áhrifamiklum afleiðingum:
Svo dæmi sé nefnt: Krafan frá um-
hverfinu um að losa sig ekki við úrgang
sinn þar sem auðveldast er mun hafa
valdið frummanninum vissri taugaá-
reynslu, en hún hefur verið yfirunnin
með framhaldandi þróun. Á þennan hátt
hefur skýlið haft i för með sér þá þörf
að læra og fara eftir vissum siðmenning-
arreglum innan mannlegs samfélags.
Viðbrögð taugaveiklaðra barna, sem
gengur erfiðlega að læra hreinlætisregl-
ur, gera okkur auðveldara að skilja þá
erfiðleika, sem frummaðurinn hefur þurft
að ganga í gegnum á þessari lærdóms-
braut. Þessu sama atriði má einnig gera
sér grein fyrir á víðari grundvelli:
Um hvern einstakling má hugsa sér
svokallað „ég-svæði“. í atferlisfræðinni
(Verhaltenspsycologie, Kinzel) er þessum
svæðum nákvæmlega lýst. Þegar tvær
persónur mætast, skerast tvenn ég-svæði.
Þessi skurður veldur ávallt myndun meira
eða minna flókins ástands: maðurinn
birtir ekki lengur sinn eiginlega innri
mann, heldur er i hlutverki, sem menn-
ing hans þvingar upp á hann (á þessu eru
þó vitaskuld undantekningar). Maðurinn
verður að taka tillit til einstaklinga (ég-
svæða) í umhverfi sínu, ef hann vill
vernda sitt eigið ég-svæði. Þessir erfið-
leikar fylgja manninum vitaskuld stöð-
ugt á þróunarbraut hans. En einnig
koma stöðugt fram nýjar aðstæður, sem
verka á lífssvið mannsins og aðeins er
hægt að yfirvinna með innri baráttu.
Vitaskuld koma þessar aðstæður fram í
mismunandi magni og í mismunandi
formum eftir hverju einstöku menn-
ingarstigi.
Sá, sem ekki hagar sér eins og reglur
menningar hans segja til um, er talinn
óeðlilegur eða hann er fyrirlitinn og hon-
um jafnvel hegnt. Núverandi menningar-
stig vestrænna þjóða hefur í för með sér
mjög fjölþættan skurð ég-svæða og þar
með mjög háa spennu tauga og skilning-
arvita. Mörgum einstaklingum heppnast
betur og öðrum verr að halda jafnvægi
milli sins innra sjálfs og þess hlutverks
sem menning þeirra segir fyrir um.
Að þvi ofansagða athuguðu, getur
hönnun húsa verið eitt af þýðingarmestu
verkefnum siðmenningarinnar, og því
ættu þessi áðurnefndu mannlegu fyrir-
bæri að vera tekin með í reikninginn.
Húsið hefur mikil áhrif á manninn ytra
sem innra, á þróun meðvitundar hans og
sjálfsskilning, en þetta verður ekki ljóst
fyrr en málið er athugað á breiðasta
grundvelli.
Athugum þróunina frá frummannin-
um: Hellirinn sem skýli var oftast eitt
samfellt rými. Seinna var þetta rými gert
fjölbreytilegra til þess að forðast vanda-
mál þau, er ég-svæðin mynda. Óþarft er
að taka það fram að þau voru óþekkt sem
slík á þessum tíma. Skýlinu var síðan
skipt meira og meira niður, unz núver-
andi skiptingu var náð fyrir nokkur
hundruð árum, en hún felst sem kunnugt
er i því, að einstök herbergi eru bundin
við sérstakar andlegar og likamlegar
þarfir mannsins: sofa, elska, elda, borða,
ganga örna sinna, vinna, skemmta sér
o. s. frv.
Enda þótt þessar þarfir séu óneitan-
lega nauðsynlegar enn í dag, er ekki
rangt að spyrja, séu vandamál ég-svæð-
anna athuguð nánar, hvort ekki sé rétt
að skipta vistarverum fyrst og fremst út
frá sjónarmiði ég-svæðanna?
Gerum við það, kemur í ljós að enn
vantar vistarverur fyrir tvær þarfir: í
fyrsta lagi rými þar sem einstaklingurinn
getur dregið sig algerlega í hlé til þess
að ná sér andlega og líkamlega án trufl-
ana frá meðbúendum sínum. Og í öðru
lagi rými þar sem einstaklingurinn getur
tekið upp samband við aðra eftir ósk út
fyrir hóp meðbúenda sinna. Bæði þessi
rými þurfa að vera menningarlega viður-
kennd til að ná tilætluðum árangri.
Augljóst má sýnast, að með þessu er
ekki verið að örva þann andlega veik-
leika, sem felst i óskinni um algera ein-
angrun. Hér er einstaklingnum fremur
gefinn kostur á vali mismunandi snerti-
svæða sem séu innbyggð í skýlið. Hér er
fullkomlega reiknað með nauðsyn þess að
hafa samskipti við sem flest fólk: fái
einstaklingurinn næg tækifæri til að
hvilast andlega og likamlega, ætti einnig
hæfileikinn til að hafa samband við fólk
að eflast.
Reynum nú að draga ályktanir af þess-
um tveim mismunandi hugmyndum, til
þess að geta svarað beint þeim spurning-
um sem varpað var fram i byrjun.
Kröfur um „gildi“ húss
Niðurskipting húss ætti að leyfa mik-
inn fjölbreytileika, hvort sem um hreyf-
anlega eða fasta veggi er að ræða.
Til þess að vinna á móti mikilli tauga-
spennu nútíðar- og framtiðarþjóðfélaga
væri gagnleg skipting húss í þrjá aðal-
hluta:
a) rými fyrir tímabundna einangrun,
b) rými til almennra nota (núverandi
íbúð),
c) rými fyrir samskipti útávið.
Rými a) ætti að hafa fasta aflokandi
veggi. í rými b), sem þjóna skal fjöl-
skyldulífinu, væri séð fyrir öllum líkams-
þörfum. Þetta rými mætti hanna sem
margar misstórar einingar eða sem eitt
stórt rými með færanlegum veggjum.
Rými c) stæði í beinu sambandi við
rými b), því hér er gert ráð fyrir hálf-
opinberu svæði, sem hefur að geyma vist-
arverur eða nægilegt svæði til að koma
þeim fyrir. Rými c) skal vera þannig
hannað, að það sé auðþekkt sem sam-
skiptasvæði.
Burðarveggir ættu ekki að falla saman
38