Samvinnan - 01.12.1972, Side 48

Samvinnan - 01.12.1972, Side 48
Martha Dodd ÞANNIG MOLUÐUST HEIMSVELDIN Martha Dodd, rithöfundur og dóttir fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Hitlers-Þýzkalandi, skrifaði eftirfar- andi grein í tilefni af því, að 18 ár eru liðin frá gerð Genfarsáttmálans um Víetnam (1954). Svartan mökkinn leggur rúma 10 kílómetra uppí loftið frá nœststœrstu olíubirgðastöð Norð- ur-Víetnama í námunda við Hanoí eftir bandaríska sprengjuá: ás. Myndin var tekin af starfsmönnum bandaríska hermálaráðuneytisins. Víetnam! Víetnam! Aldrei er nógu oft ítrekað, að þetta land sé samvizka mann- kynsins. Það er hægt að mæla gildi manneskju eða þjóðar út frá afstöðu hennar til Víetnams. Ef manneskjan hik- ar við að taka afstöðu, hefur hún þegar glatað nokkru af mennsku sinni. Ef þjóð situr aðgerðalaus eða lætur sér á sama standa eða tekur einungis tillit til sinna eigin þröngu þjóðarhagsmuna, hefur hún þegar rýrnað i gildi og veikzt. Táknmynd af þjáningum Víetnams sýnir þungaða konu hlaupandi í örvænt- ingu eftir veginum, með ótta í augum meðan hún heldur á barni í örmum sin- um, umvafin klístrugu napalmi. Hugsið yður að þetta sé yðar kona eða barn, framtíðarfórnarlömb flísasprengja, pynd- inga og brunasára. Hugsið yður að það sé yðar bær „sem er horfinn", eins og Víetnami hefur komizt að orði, og að það séu sjúkrahús, verksmiðjur, skólar og hús bæjarins sem hafa verið eyðilögð af markvissum sprengjum sem aðeins hæfa „hernaðarlega mikilvæg skotmörk". Hvílik kaldhæðni í málnotkun mannsins. í tíu ár, þrjátíu ár, hundrað ár hafa Víetnamar barizt fyrir sínu dýrmæta fielsi og fullveldi, sem sérhver ný kynslóð metur æ meir. Jafnvel á fyrsta skeiði sprengjuregnsins og eiturefnanotkunar- innar til að útrýma fólkinu í landinu veitti þessi litla þjóð í langan tíma inn- rásarmönnunum viðnám með hjálp hvassra bambusstanga og gildra, bý- flugna, maura og skriðdýra, sem stinga og valda eitrun í óvininum, og með alls kyns hugmyndaríkum heimatilbúnum vopnum og skærustríði sem á sér enga hliðstæðu. Þannig hafa Víetnamar — heiminum til mikillar undrunar — staðizt hinum volduga árásaraðila snúning þangað til þeir fengu nýtízkulegri vopn. Og þeir munu gera það aftur, ef nauðsynlegt reynist. Þvi að þeir hafa fórnað sínu eigin lífi, barna sinna og barnabarna í baráttunni fyrir frelsi. Að minni skoðun fyrirfinnst ekki sá maður, sá ábyrgi hóp- ur, sá flokkur, það vald eða sú þjóð, sem komið geti þeim á kné eða fengið þá inn á nokkuð það, sem stofni fullveldi þeirra í hættu. Alltof mikið hefur tap- azt og alltof mikið hefur unnizt til þess að þeir fæ:u að láta land sitt af hendi, hver sem í hlut ætti og í hvaða tilgangi sem væri. Það er hinum sögufræga hetju- móði þeirra sem þakka ber, að þeir hafa unnið sér rétt til að ákveða sjálfir, hvers konar ríkisstjórn þeir vilja hafa, hvort hún verður róslit, rauð, blá eða græn. 40

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.