Samvinnan - 01.12.1972, Side 55

Samvinnan - 01.12.1972, Side 55
efni, myndasögur, stjörnuspá o. s. frv. Að öðru leyti þarfnast efnisskiptingin í töflu 1 varla frekari skýringa.13) í töflum 3—7 er nánari grein gerð fyrir efni blaðanna, hvers um sig, vikuna 10— 16/4 72, efnið talið í dálkum. En vert er að ítreka það sem áður er sagt að taln- ingin er ekki nákvæm enda ekki miðað að öðru en leiða í ljós nokkra helztu efnis- flokka blaðanna og nokkurn veginn það rúm sem þeim er ætlað 1 hverju blaði. Tafla 8 sýnir hins vegar hvernig aðal- efni blaðanna, fréttir og greinar, 52—67% af öllu efni þeirra (1), skiptist hlutfalls- lega eftir helztu efnisflokkum. Þessi skipt- ing er sjálfsagt ósköp svipuð viku fyrir viku og frá ári til árs í flestum blöðum. Eins og eðlilegt mun þykja skipar inn- lent fréttaefni fyrirrúm i blöðunum, meira en helmingur fréttanna í öllum blöðum. Áreiðanlega vilja öll blöðin og leitast líka við að vera vönduð, fjölbreytt og á- reiðanleg fréttablöð, hvert eftir sínum mætti og með þeim áheizlumun í meðferð fréttanna sem henta þykir í hverju blaði um sig. Efalaust telja þau sig, hvert um sig, hafa einhverjum lágmarks-skyldum að gegna um fréttaflutning af tilteknum efnissviðum. En af þessu leiðir líka að fréttaefni blaðanna verður óhjákvæmi- lega svipað ef ekki samt og jafnt frá degi til dags, enda munu allir sem blöð lesa kannast við það hve samhljóða þau geta reynzt, þar sem ekki kemur pólitík í spilið. En er virkilega þörf fyrir fimm dagblöð til að segj a sömu fréttirnar hvert eftir öðru og öll á eftir bæði útvarpi og sjónvarpi — þótt með einhverjum á- herzlumun sé? Innlendra frétta er sumpart aflað á ritstjórn blaðanna í Reykjavík og sum- part af fréttariturum úti um land, en sumt er aðsent efni sem blöðunum berst sjálfboðið, sumpart lítilsvert en sumt forsíðuefni. Óhj ákvæmilega hljóta blöð- in að sækja innlendar fréttir sínar að verulegu leyti á sömu mið, sem sjálfsagt eru margan dag ausin til grunna, dag- legar aflafréttir, fréttir af þingi og úr borgarstjórn, afbrota- og slysafréttir o. s. frv. Og daglega halda alls konar að- iljar fréttafundi með blaðamönnum sem einatt er sagt ýtarlega frá í öllum blöð- um auk útvarps og sjónvarps. Hér er ekki reynt að sundurgreina fréttir blaðanna eftir efni þeirra og gerð né grafast fyrir um sjálfstæða fréttameðferð i hverju blaði fyrir sig. Væri það gert kynni aö koma á daginn að æðimikill hluti dag- leg.a frétta, t. a. m. í Morgunblaðinu sem birtir mest af innlendum fréttum eins og öðru efni, væri efni sem blöðunum berst tilbúið og birt er lítt eða ekki breytt. En að þessari fréttaöflun og frá- gangi þeirra til prentunar vinnur fjöldi fólks á öllum blöðum. Má nærri geta hver vinnusparnaður og hægðarauki væri að því ef til væri innlend fréttastofa sem annaðist að mestu fasta daglega frétta- öflun fyrir öll blöðin í senn. Og þá gætu blöðin í staðinn kosið sér einhver tiltekin fréttasvið til meðferðar hvert og eitt og sinnt þeim miklu ýtarlegar en þau anna nú öllum fréttaefnum í einu. Fyrir utan beinar fréttir i blöðum flytja þau vitanlega mikið af öðru fréttaefni, ýtarlegri frásagnir af atburðum og fram- kvæmdum en rúmast í daglegum frétt- um, fréttaviðtöl og greinar um daglegt lif og störf, baksvið fréttanna. Sé allt innlent fréttaefni blaðanna talið saman þessa viku reynist það í Morgunblaðinu 17% af öllu efni blaðsins (3), 24% í Tím- anum (4), 24% í Þjóðviljanum (5), 29% í Alþýðublaðinu (6) og 24% í Vísi (7). Hið innlenda fréttaefni hygg ég að sé minna í Morgunblaðinu þessa viku en oftast endranær, en annars er hlutfallstala þessa efnis svipuð í öllum blöðum og frá ári til árs, 24—27% 1969, 21—27% 1966. Af þessu tagi eru t. a. m. ýtarlegar frá- sagnir af atvinnulifi í kauptúnum á Suð- urlandi i Tímanum í þessari viku ásamt viðtölum við heimamenn. Morgunblaðið birti m. a. viðtöl við fulltrúa á mengun- arráðstefnu í Reykjavík og heila syrpu af viðtölum við blinda menn og sjóndapra, en það efni gekk þá í öllum blöðum vegna fjársöfnunar sem yfir stóð. Þjóðviljinn birti fréttaviðtöl um ýmis efni á bak- síðu ásarnt frásögnum og greinum um verkalýðsmál. í Vísi birtist auk annars fréttaefnis daglega eða því sem næst sérstök síða sem einkum fjallar um fjöl- skyldu- og neytendamál (,,inn-síðan“) — efni sem sjálfsagt mætti vanda betur til en gert er í Vísi, en er líka meira vert en venjulegar tízkufréttir og kvennasíður eins og þær tíðkast á við og dreif i öllum blöðunum. Öll sem eitt birta blöðin meiri íþrótta- fréttir en almennar erlendar fréttir, 5—11% af öllu efni þeirra fjallar um í- þróttir. En auk hinna beinu frétta birta blöðin einnig aðrar og einatt ýtarlegri frásagnir af erlendum tiðindum og þýdd- ar og frumsamdar greinar um alþjóða- mál. Sé hið erlenda fréttaefni, beint og óbeint, talið saman með sama hætti og innlent fréttaefni blaðanna áður, reyn- ist það vera tæplega 6% af öllu efni Morgunblaðsins þessa viku, 6% í Tíman- um, 12% í Þjóðviljanum, 9% í Vísi. Alþýðublaðið birti svo sem engar er- lendar fréttir (6, — þeir fáu dálkar sem þó mældust eru að mestu „frétta“mynd- ir), engar greinar um alþjóðamál og varla neitt af því tagi sem hér er nefnt frétta- frásagnir. Á hinn bóginn birtir blaðið mikið af ýmiskonar þýddu efni „til skemmtunar og f*óðleiks“. Svipað efni, sumpart e. t. v. með einhverjum frétta- keim, en einatt hið aumasta slúður, er að vísu altítt í öllum blöðum — fastir dálk- ar helgaðir því í Morgunblaðinu („fólk í fréttunum“) og Tímanum („í spegli Tím- ans“), en Þjóðviljinn birtir viðlíka efni („erlend syrpa“) í bland við annað frétta- efni, meðtalið því hér að framan. Eins og í Alþýðublaðinu eru þýddar slúðurfréttir (,,nú-síðan“) mjög verulegur hluti af greinaefni Vísis (7). í 8. töflu er þetta efni allstaðar meðtalið eiginlegu erlendu fréttaefni blaðanna. Erlendar fréttir blaðanna eru allar að kalla komnar frá örfáum erlendum fréttastofum (NTB, AP, Reuter), þýddar viðstöðulaust eftir fjarriturum blaðanna, en erlendar fréttafrásagnir þýddar og endursagðar eftir erlendum blöðum og tímaritum. Um sjálfstæða úrvinnslu og meðferð hins erlenda fréttaefnis er sjaldan að tala. Undantekning er, þótt það beri við, að Morgunblaðið sendi fréttamann erlendis þegar mikið þykir á seyði, en einsdæmi um önnur blöð. En frumsamið efni sem blöðunum berst er- lendis frá er yfirleitt ekki fréttaefni. Nú er fréttaflutningur ekki eina og ekki einu sinni helzta verkefni dagblaðs á tímum fljótvirkari fjölmiðlunar •— held- ur fréttaskýring og umræða fréttanna, þess sem er að gerast á vettvangi dags- ins. Gott blað hlýtur að vera vettvangur skoðanamyndunar og skoðanaskipta um alþjóðamál og erlend tíðindi ekki síður en innlend. Áður fyrr birti Morgunblaðið mikið af þýddum og endursögðum fréttafrásögn- um, en í seinni tíð leggur það sig einkum eftir þýddum greinum nafngreindra höf- 47

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.