Samvinnan - 01.12.1972, Qupperneq 63

Samvinnan - 01.12.1972, Qupperneq 63
Hér verða engar ályktanir dregnar né lýst niðurstöðum um pólitískt gildi ís- lenzku blaðanna í bráð eða lengd frekar en um önnur efni. En freistandi er að ætla að pólitísku áhrifavaldi blaðanna í daglegri notkun þeirra sé svipað farið hér og annars staðar: að hin beinu póli- tísku áhrif blaðanna séu lítil og illa mælanleg. Enn líklegra en ella virðist þetta af því hve ósjálfstæð, einhæf og frumstæð pólitisk málgögn dagblöð okk- ar eru eins og áður hefur verið lýst. Þar fyrir má sú kenning vel vera rétt, sem rekstur íslenzku dagblaðanna er reistur á, að blöðin séu stjórnmálaflokk- um lífsnauðsyn við okkar stjórnarfar, hin áhrifamestu tæki til að viðhalda ó- breyttu flokkakerfi og flokksræðinu í landinu. Ef sú hugmynd er raunverulega rétt munu Samtök frjálslyndra og vinstri-manna eiga bágt í næstu kosn- ingum — sem unnu frægan sigur 1971 án annarra umtalsverðra málgagna en tveggja fátæklegra vikublaða með fjarska takmarkaðri útbreiðslu. Þá er eina lífsvon þeirra að koma sér upp í millitíðinni eða fá með öðru móti aðgang að starfhæfu dagblaði. En má ekki einn- ig hugsa sér hitt, að nýrri raunhæfri flokksmyndun verði samfara raunveru- lega nýjar baráttuaðferðir í pólitík — sem bæði geti dugað til að afla dugandi flokki fylgis og viðhalda því? Hvað sem því líður verður ekki séð af þessu að það sé rétt, sem einatt er haldið fram, að gildi núverandi dagblaða sé í því fólgið að stuðla að og halda uppi frjálsum umræðum og skoðanamyndun urn þjóðmál og pólitík né hvaðeina ann- að. Þvert á móti. Það má vel vera að hlutverk þeirra, hvers og eins í sinn hóp og allra í senn á markaði kjósend- anna í landinu, sé fyrst og fremst íhalds- samt — þau séu til þess fallin og ætluð að viðhalda föstum óbreyttum hugsunar- venjum í pólitík eins og að sínu leyti um önnur efni á öðrum sviðum. Athugasemdir og tilvísanir: 1) Ritgerð Halldórs Hermannssonar, „The Periodical Literature of Iceland dovvn to the Year 1874. A Historical Sketch", birtist í ritsafninu Islandica, XI, Ithaca 1918. íslenzk þýðing á fyrri hluta rit- gerðarinnar birtist í tímaritinu Hclgafcll, 1945, bls. 206—229, en framhald varð ekki á þýðing- unni. — í minningum Vilhjálms Finsens, Alltaf á heimleið, Reykjavík 1953, er fróðlegur þáttur um upphaf, stofnrn og fyrstu starfsár Morgunblaðs- ins. — Árni Óla hefur gefið út minningar sínar: Erill og fcrill blaðamanns hjá Morgunblaðinu um hálfa öld, Reykjavík 1963. — Annar af elztu blaða- mönnum landsins, Axel Thorsteinsson, tók saman drög að sögu Vísis: Óx viður af Vísi. Dagblað í srxtíu ár, Roykjavík 1971. — í haust kemur loks út rit það sem til var stofnað að tilhlutan Blaða- mannafélags íslands: Vilhjálmur Þ. Gíslason : Blöð og blaðamenn 1773—1944. 2) Sjá grein Þorbjörns Broddasonar, í Samvinnunni 5:1971, bls. 31—33. Nánari greinargerð fyrir rann- sóknum hans í Skírni 1972 bls. 5—28. 3) Sbr. Torbjörn Vallinder: Prcss och politik, Falköp- ing 1971, bls. 7—19. Vallinder talar um „auktori- tár“ og „liberal pressideologi". 4) John Stuart Mill: Frelsið. íslenzk þýðing eftir Jón Hnefil Aðalsteinsson og Þorstein Gylfason . . . Roykjavík 1970, bls. 106—7. 5) Um blaðadauða er ýtarlega rœtt í Lars Furhoff & Hans Hederberg: Dagspressen i Sverige, Stock- holm 1968, kaflanum „Tidningsekonomi och tidn- ingsdöd“, bls. 182—206. Sjá einnig Colin Sey- mour-Ure: The Press, Politics and the Public, London 1968, bls. 95—113, og Vallinder: Press och nolitik, bls. 140—168. 6) I fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1973 er gert ráð fyrir fjárveitingu að upphœð 13.500.000 króna „til kaupa á dagblöðum og aðalmálgagni Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna, svo og til kaupa á kjördæmismálgögnum stjórnmálaflokkanna sam- kvæmt nánari ákvörðun ríkisstjórnarinnar“. — Þetta mun vera sama fjárhæð og endanlega var ráðstafað til blaðanna á árinu 1972. 7) Seymour-Ure byggir athuganir sínar á efni brezkra dagblaða á úrtaki 24 eintaka sem dreifast jafnt á árið, 6 úr hverjum ársfjórðungi, hvern virkan dag vikunnar. Sjá The Press, Politics and the Public, bls. 60. 8) Tveimur fyrri athugunum á efni blaðanna var lýst í greinaflokkum í Alþýðublaðinu 31/7—9/8 1966 og 2/3—25/3 1969. 9) Eftir að offset-prentun blaðsins hófst vorið 1972 var Þjóðviljinn 12—16 blaðsíður að stærð dag- lega: 360—400 dálkar á viku. 10) Ekki er að marka stærðarmun Tímans og Vísis skv. úrtakinu, blöðin voru jafnstór, 416 bls. alls í apríl 1972. Morgunblaðið var á hinn bóginn 856 bls. alls í mánuðinum — svo að stærðarmun- ur blaðanna var í rauninni meiri en fram kemur í úrtakinu. 11) Vallinder: Prcss och politik, bls. 61. 12) Upplýsingarnar í töflu 2 um upplag blaðanna 1972 voru veittar höfundi af ritstjóra eða fram- kvæmdastjóra hvcrs blaðs um sig. Fyrir árið 1969 eru tilfærðar tölur sem fcirtar voru í fyrrgreind- um útvarpsþætti um hag blaðanna sncmma árs 1969. Upplag blaðanna 1966 er áætlað eftir ýms- um heimildum, en þessar tölur munu fara nærri því sem blöðin létu sjálf uppi á þeim tíma. 13) Dagspressen i Sverige, bls. 186. 14) Alltaf á hcimleið, bls. 276—8. 15) Vitanlcga er stundum mjótt á mununum hvað tclja skuli „frétt“ og hvað „grein“ og fer það ekki aðcins eftir efni og frágangi heldur einnig uppsetningu og staðarvali í blaðinu hvernig hvað- eina flokkast. 16) 1969, þegar auglýsingar brugðust Morgunblaðinu, var erlent fréttaefni alls 12% af efni þess, 1966 hins vegar 7%, eða svipað hlutfall og í ár. 17) Á undan var gengin tilraun til að breyta Al- þýðublaðinu í svipað horf og nú er reynt, á rit- stjórnarárum Gísla J. Ástþói*ssonar 1958—1963. Á ritstjórnarárum Gísla mun upplag Alþýðublaðs- ins hafa orðið mest í sögu þess, um það bil 10.000 eintök þegar allra bezt lét. 18) í athugun blaðanna 1969 reyndist almennt greina- efni þeirra, einnar viku í senn í hverju blaði, talið með sama hætti og hér, 8—19% af öllu efni þeirra, röð blaðanna hin sama og í ár. 19) Þorbjörn Guðmundsson: „Morgunblaðið. Aðsend- ar greinar,“ Morgunblaðið 18/4 1972. 20) Tveimur menningarfrömuðum var helgað verulegt efni í blöðum í þessum mánuði, Halldóri Laxness vegna 70 ára afmælis hans, og Jóhannesi Kjarval látnum. Efni blaðanna um Kjarval, þar á meðal „blaðauki um Kjarval“, 4 bls., sem Morgunblaðið birti 26/4, er hér talið með minningargreinum, en greinar um Halldór Laxness teljast eftir efni og gerð „greinar um bókmenntir“ eða „afmælis- greinar". 21) Upplag blaðanna í Roykjavík er á töflu 12 talið vera sem hér segir, samkvæmt upplýsingum tals- manna blaðanna sjálfra: Alþýðublaðið 3000, Morgunblaðið 18.000, Tíminn 6000, Vísir 15.500, Þjóðviljinn 6.500 eintök. 22) Unesco Statistical Year-Book 1966. 23) Um þetta efni ræða bæði Seymour-Ure og Tor- björn Vallinder ýtarlega í fyrrgetnum bókum. Sjá kaflana „The Press and its Readers“ og „The Impact of the Press on tbe Political System“, bls. 26—94 og 264—300 í The Prcss, Politics and the Pufclic; og „Pressens politiska inflytande“, bls. 124—139 í Pr:ss och politik. 24) Prcss och politik, bls. 128—129; Dagspressen i Sverige, bls. 203. Unnur S. Bragadóttir: LEIKTU „Leiktu fyrir mig á langspilið, á langspilið, elsku vinur, og sýndu mér sælu heimsins." „Leiktu fyrir mig á iangspilið, leiktu, hvað sem á dynur, elsku vinur." Hún sat við gráan gluggann og grét vegna hans, þess dána manns, sem myndskreytt gat allt í þokunni. „Leiktu fyrir mig á langspilið, á langspilið, elsku vinur." Rigningin þuldi á rúðunni og rændi hana vökunni. „Leiktu fyrir mig á langspilið, leiktu, hvað sem á dynur, elsku vinur." — 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.