Samvinnan - 01.12.1972, Page 65

Samvinnan - 01.12.1972, Page 65
Um miðja 19. öld voru % íbúanna bændur. Skattlagningin var hörð; t. d. fóru 40—50% hrísgrjónauppskerunnar (sem var mikilvægasta framleiðsluaf- urðin) til daímjó. Samþjöppun yfirstétt- arinnar í Tókíó skapaði grundvöll fyrir framvöxt kaupmannastéttar, sem full- nægði lúxusþörfum yfirstéttarinnar gegn af rakstri hrísgrj ónaf ramleiðslunnar. Stærstu markaðirnir voru í Tókíó og Ósaka og þar uxu fram stór og auðug kaupmannafélög. Lénsaðallinn sá þó til þess að hafa ná- kvæmt eftirlit með kaupmönnum. Alls kyns reglugerðir takmörkuðu verzlunina og frelsi kaupmanna (þeim var meira að segja bannað að taka sér nafn, sem líktist daímjó-nafni). En eins og í Evr- ópu varð þróunin ekki barin niður. Mót- setningarnar á milli þarfa hins fram- vaxandi kapítalíska þjóðfélags og þarfa hins staðnaða, íhaldssama lénsríkis urðu æ harðari. Grunnur Tókúgawa-ríkisins tók nú að bresta og skolaðist að lokum burtu með Meijibyltingunni. Frumupphleðslan Áður en við höldum áfram inn í Meiji- rikið, er rétt að við stöldrum við og veltum fyrir okkur spurningunni: Hvern- ig stóð á því, að sú upphleðsla auðmagns, sem átti sér stað í Tókúgawaríkinu, hélzt innanlands, en var ekki flutt úr landi eins og t. d. í Indlandi, þar sem brezku heimsvaldasinnarnir brutu miskunnar- laust niður allan innlendan iðnað — rændu og rupluðu auðæfum landsins og nýttu í uppbyggingu eigin iðnaðar? Fyrst getum við slegið því föstu (og það er mikilvægt þegar við leitum að orsökum japanska „undursins"), að Jap- an er eina landið í Asíu, Afríku og Róm- önsku Ameríku, sem slapp við að verða nýlenda, slapp við það gegndarlausa arðrán og rupl, sem heimsveldin iðka i nýlendum sínum — og fékk þannig möguleika til sjálfstæðrar þróunar. Hverjar eru ástæður þessa? Þær eru eðlilega margar, en eftirfarandi atriði eru líklega þau mikilvægustu: 1) Landið var (er) fátækt að málmum. Gullið t.d., sem lokkaði til Rómönsku Ameriku, var ekki til í Japan. 2) Japanirnir voru fátæk þjóð og til- tölulega fámenn og bauð þessvegna ekki upp á þá markaði, sem t. d. voru fyrir hendi í Kína. 3) Aðrar náttúruauðlindir (en málmar) voru vanþróaðar eða hreinlega ekki til. 4) Aukin samkeppni milli heimsvalda- sinnuðu rikjanna. Það má bæta við fleiri atriðum, en mikilvægara er þó að hafa í huga sam- spilið á milli þessara atriða. Heims- valdasinnarnir tóku ekkl nýlendur ein- göngu sér til gamans. Þeir gerðu (og gera) það til að græða á því. Náttúru- auðlindirnar og markaðirnir, sem lokk- uðu gömlu „klassísku" heimsvaldasinn- ana, voru ekki fyrir hendi í Japan, þ. e. a. s. það var eftir litlu að sækjast; og þegar þar við bættist aukin samkeppni milli heimsvaldasinna um eftirsóknar- verðari landsvæði (en Japan), má ætla að þeir hafi talið ráðlegra að einbeita kröftum sínum annars staðar. Allavega getum við slegið því föstu, að rætur nútímaiðnaðar Japans má finna á 19. öld. Fjármagnið hlóðst upp innan- lands, en lenti ekki í arðránsklóm er- lendra heimsvaldasinna. Meiji-tímabilið Á Tókúgawa-tímabilinu kúguðu daímjó bændurna og rændu framleiðslu þeirra með þungum sköttum. Afraksturinn safnaðist síðan hjá kaupmannastéttinni, sem hlóð upp auðmagni — en það er önnur af höfuðforsendum kapítalism- ans. Kröfur hins framvaxandi kapítal- isma rákust á skipulag lénstímabilsins og veiktu það, sem gerði byltingu samú- rajanna mögulega. Síðasta Tókúgawa- shóguninum var rutt úr vegi í nóvember 1867, og Meiji-ríkið reis upp úr rústum Tógúgawa-ríkisins. Hin höfuðforsenda kapitalismans — öreigastéttin — skapaðist á Meiji-tíma- bilinu með aukinni framleiðni í land- búnaðinum, sem minnkaði vinnuaflsþörf- ina þar og skapaði öreigastétt, hverrar vinnuafl var þakksamlega arðrænt í verksmiðjum kapítalistanna. Forsendur kapitalismans voru nú fyrir hendi, og nú hófst upphleðsla auðmagns- ins fyrir alvöru, og þar lék ríkisapparat Meiji-tímabilsins óvenjustórt hlutverk: 1) Auðmagninu var beint inn í fram- leiðsluna. Útgjöld japanska ríkisins jukust úr 10% af þjóðarframleiðslu um 1880 í 20% í byrjun fyrri heims- styrjaldar. Á árunum 1879—1912 fóru u. þ. b. 20% af opinberum útgjöldum til járnbrauta, skipasmíða, sima og annarra samgangna. 2) Hluti hernaðarútgjalda af heildarút- gjöldum ríkisins jókst úr 10% 1880 í 40% árið 1910. Gróðinn, sem stærstu fyrirtækin báru úr býtum með samn- ingum við hið opinbera, var ótrúlegur. 3) Á áttunda tugi 19. aldar var ríkið stærsti atvinnurekandinn í Japan. Á níunda tugi þeirrar aldar tók ríkið að selja fyrirtæki sín til einstaklinga, og þá fyrst og fremst til stærstu auð- hringanna, sem græddu óhemjulega á kaupunum, þar sem ríkið seldi verksmiðjurnar fyrir aðeins 15—30% af kostnaðarverði og leyfði auk þess afborganir til langs tíma — allt að 30 árum. Á þessu tímabili (Meiji) sköpuðust þannig hin risastóru auðfyrirtæki (zaí- batsu), sem síðan hafa ráðið svo miklu í japanska efnahagslífinu. Semsagt: Rík- ið gekk inn í efnahagslífið og annaðist þær framkvæmdir, sem voru einkaauð- magninu ofviða, og seldi síðan verksmiðj - urnar á gjafverði til stærstu auðhring- anna. Samtímis var verkalýðurinn beitt- ur afarkostum; t. d. var aðeins 2% af ríkisútgjöldunum á árunum 1897—1922 varið til heilbrigðis- og félagsmála. Kúg- unin á verkalýðnum var gegndarlaus; t. d. var verkfallsáróður bannaður með lögum árið 1900, engin lög voru til um vinnuaðstæður (svo sem barnavinnu, lengd dagvinnu o. s. frv.) fyrir heims- styrjöldina fyrri. Heimsstyrjaldirnar Japanir stóðu með bandamönnum í heimsstyrjöldinni fyrri, en tóku engan virkan þátt í bardögum. Þetta hafði mik- ilvægar afleiðingar fyrir japanska iðn- aðinn: Japanir framleiddu hergögn og skip fyrir bandamenn, og þjóðarfram- leiðsla þeirra og iðnaður jukust i stór- um stökkum. Á árunum 1913—1938 jókst heildarframleiðslan um 4% á ári, land- búnaðarframleiðslan um 1,2% á ári og iðnaðarframleiðslan um 7% á ári. Á þessum árum jókst japanska þjóðar- framleiðslan örar en í öðrum iðnvædd- um löndum. Svo dæmi séu tekin, jókst þj óðarf ramleiðsla (brúttónationalpro- dukt, þjónusta o. fl. reiknað með) Japans reiknuð á mann og ár um 2,6%, meðan önnur riki juku hagvöxt sinn mun minna, t. d. Bandaríkin um 0,8%, Bretland 0,7% og Þýzkaland 1,1%. Hin gífurlega aukning útflutnings jók gjaldeyrisvaraforða Japans úr 400 millj- ónum jena árið 1913 í 2.000 milljónir jena árið 1919. Samtímis lækkaði raun- gildi verkamannalauna, þar sem verð- lagið (sérstaklega á hrísgrjónum) hækk- aði óhemjulega. Eftir heimsstyrjöldina fyrri kom kreppan. Stríðsútflutningur fyrir banda- menn og hergagnapantanir þaðan hættu og offramleiðslan varð gífurleg. 1923 urðu auk þess miklir jarðskjálftar, sem eyddu um 100.000 mannslífum og eyðilögðu verðmæti sem samsvöruðu 3—5 milljón- um jena. Fyrirtækin hrundu unnvörpum, en sjálfstæði zaíbatsu jókst. Upp úr heimskreppunni jókst fasisminn, og á fjórða tugi aldarinnar var hergagna- framleiðslan notuð til að draga iðnaðinn úr kreppunni (eins og í Þýzkalandi naz- ismans). Fjöldi verkamanna jókst í sí- fellu (úr 1,8 milljónum 1922 í 2,9 millj- ónir 1937) samtímis því að bændur voru flæmdir af jörðum sínum. Staða japönsku fasistanna í heims- styrjöldinni síðari ætti að vera öllum kunn og verður því ekki rakin hér, en eyðileggingin i Japan var gifurleg. Um fjórðungur allra bygginga eyðilagðist, stærsta hluta verzlunarflotans var sökkt, og Japan tapaði nýlendum sínum í Man- sjúríu, Kóreu og á Formósu. Árin eftir heimsstyrjöldina síðari Japan lá í rúst. Keppinautarnir, þ. e. heimsvaldasinnar í ríkjum bandamanna, létu kne fylgja kviði. Atómsprengjunum á Híróshíma og Nagasaki var fylgt eftir með bandarískri yfirstjórn — SCAP (Supreme Commander of the Allied Powers) á árunum 1945 til 1952. Ráðstafanir SCAP árin eftir heims- styrjöldina voru umfangsmiklar. Það átti að minnka vald zaibatsu, bæta hag bænda; löggjafarvaldið var sett í hendur Dieten („alþingis") og mikil áherzla lögð á, að japanska herveldið gæti aldrei risið upp að nýju, þ. e. a. s. iðnaðurinn átti að fá að framleiða sem samsvaraði 87

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.