Samvinnan - 01.12.1972, Page 68

Samvinnan - 01.12.1972, Page 68
HEIMILIS g g Guðrún q Ingvarsdóttir >3 "S,snmi3H Nú þegar jólin nálgast fer ekki hjá því að' húsmæður fara að hugsa um jólaundirbúning. Sennilega er þetta annasamasti tími húsmæðra, en nútima tækni, kæli- og frystigeymslur, gera húsmæðrum kleift að vera tímanlega í jólaundirbúningnum. Tertubotna og formkökur má baka löngu áður og frysta, einnig má frysta allflestan tilbúinn mat með góðum árangri, hita síðan upp eða borða kaldan. Gæta verður þess að krydda mat sem á að frysta meira, því frostið eyðir kryddbragði. Á þennan hátt getur húsmóðirin dregið úr heimilisönnunum sjálfa jóladagana og notið betur jólanna með fjölskyldu sinni. Þó jól séu aðeins einu sinni á ári má samt ekki gleyma öllum góðum reglum um rétt mataræði. Hér á landi er gamall siður að bera á borð kynstrin öll af kökum og tertum. Engum er greiði gerður með því, því fáir hafa svo sterka sjálfstjórn að geta staðizt íburðarmiklar og góðar kökur séu þær á borðum. En eins og kunnugt er, er það sú hitaeiningaríkasta fæða sem völ er á. Það er gamall siður að bjóða heim gestum tun jólin. í þessum boðum hafa ríkt hin hefðbundnu kaffi- og kökuborð. Hvernig væri að breyta til og bjóða í staðinn glóðarsteikta smárétti með hráum salötum og ávöxtum eða létta ostárétti og spara þannig vinnu ekki síður en hitaeiningar? Á flestum heimilum hafa myndazt venjur með jólamatinn og matseð- illinn því líkur frá ári til árs. Hér koma samt sem áður nokkrar tillögur: T-BEIN STEIK M/BÖKUÐUIVI KARTÖFLUM 4 T-bein steikur salt — pipar smjör Nafnið á þessari steik er tilkomið af því að beinið í miðju kjötstykk- inu er líkt og bókstafurinn T. Öðrum megin við beinið er lundin en hinum megin hryggvöðvinn. Berjið kjötstykkið létt með hendinni, kryddið það með salti og pipar. Steikið á pönnu í smjöri, 4 mín. á hvorri hlið. Berið steikina fram með bökuðum kartöflum. PINNAMATUR 750 g lambalœri 2 paprikur 50 g sveppir 2 laukar 1 tsk salt % tsk pipar smjör eða olía Skerið kjötið í teninga, þræðið það upp á teina til skiptis við græn- metið. Kryddið og penslið með smjöri eða olíu og glóðið. Ætlið einn prjón handa hverjum manni. Berið réttinn fram með hrísgrjónum. TYRKNESKAR LAMBARIFJUR 8 lambarifjur salt — pipar 2 b hrísgrjón 1 laukur 2 b grœnar baunir % b möndlur Sjóðið hrísgrjónin með lauknum, bætið 1 msk af smjöri út í. Steikið rúsínur, möndlur og baunir í smjöri, blandið því saman við hrís- grjónin og laukinn. Glóðarsteikiö rifjurnar, leggið þær ofaná. FYLLTAR SVÍNALUNDIR 2 svínalundir 1 epli 1 b sveskjur 2 sn bacon 1 tsk salt Vi tsk plpar 2 msk smjör dl rjómi Bankið lundirnar, stráið salti og pipar yfir. Afhýðið eplið og skerið í litla bita, takið steinana úr sveskjunum, skerið pöruna af baconinu. Leggið hina yfir, saumið þær saman. Brúnið lundimar í smjöri á pönnu. Hellið vatni yfir og sjóðið í 45 mín. Berið með brúnuðum kartöflum og rauðkáli. OFNBAKAÐAR SVÍNARIFJUR 4 rifjur 50 g smjör % tsk salt Vi tsk paprika 1 laukur 2 stk epli 100 g sveppir 25 g smjör 60

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.