Samvinnan - 01.03.1986, Blaðsíða 6
yrir rúmum áratug var tekinn upp sá siður að hafa
sérstakt mál til umræðu á hverjum aðalfundi
Sambandsins, málefni, sem nauðsynlegt þykir að
fjalla ítarlega um hverju sinni. Byggðaþróun varð fyrsta
efnið, sem tekið var til meðferðar, atvinnulýðræði kom
næst og síðan hvert efnið á fætur öðru. Fræðslumál hafa
til að mynda tvisvar sinnum verið á dagskrá, og í síðara
skiptið, 1977, var samþykkt um þau tímamótaályktun. Pá
var mörkuð skýr stefna í fræðslu- og félagsmálum sam-
vinnumanna fyrir tilstuðlan þáverandi stjórnarformanns
Sambandsins, Eysteins Jónssonar, og henni hefur verið
fylgt með góðum árangri síðan.
*
A næsta aðalfundi Sambandsins verður umræðuefnið:
Samvinnuhreyfíng framtíðarinnar.
Að margra dómi stendur samvinnuhreyfingin á tíma-
mótum um þessar mundir, og gengi hennar í framtíðinni
kann að ráðast af þeim ákvörðunum, sem teknar verða
næstu misserin. Af þeim sökum eru þessar umræður mik-
ilvægar, og með hliðsjón af því hafa þrjár námsstefnur
verið haldnar að undanförnu með stjórnarmönnum og
kaupfélagsstjórum, þar sem málið hefur verið reifað og
6