Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Blaðsíða 47
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
41
að ganga til þurðar, og síst er það að óttast í jafn ónumdu
landi og ísland er. Miklu fremur — vitum við — standa
þau enn til stórra bóta. parf ekki að lýsa því fyrir kunn-
ugum.
það má vera okkur mikið gleðiefni í öllum örðugleikum
hins yfirstandandi tíma, að vita að við höfum nóg verkefni
og framfaramöguleika einnig þar, og við ættum að nota
þá það verkefnið eins og nokkurskonar hugðarefni til að
létta á okkur þunga og áhyggjum hinna annara viðfangs-
efna.
Eg hefi orðið þess var, að ýmsum mönnum finst
ástæða til að leggja árar í bát hvað snertir alt okkar fram-
farabrask í jarðrækt og búfjárrækt á meðan þessir örð-
ugu tímar standa yfir. En þetta er einmitt öfugt. Aldrei
hefir verið ríkari ástæða til að gera alt, sem hægt er, í því
tilliti, en einmitt nú. Skilst það af mörgu því, sem eg hefi
áður sagt. Hver er og hefir verið tilgangur okkar með
þeirri viðleitni ? Einmitt sá, að gera skilyrðin léttari til að
geta lifað farsællega í landinu, — bæta aðstöðuna, — bæta
lífsskilyrðin fyrir okkur sjálf og niðja okkar. Alt sem gert
hefir verið og gert verður í þá átt, gerir okkur hægara að
standa á móti örðugleikum þessa tíma — og hverskonar
örðugleikum — og rétta við og snúa vörninni í sókn, þegar
um hægist. Ef einhver kynni að líta smáum augum á árang-
urinn af þessari viðleitni okkar, þá skulum við staðnæmast
ögn þar við og líta til baka um nokkur ár.
Um aldamótin síðustu var framleiðsla landbúnaðarins
til viðskifta viö útlönd 1864 þús. króna virði; árið 1913 —
áður en stríðið raskaði öllum verðhlutföllum — var hún
5195 þús. kr. virði. Að vísu liggur þessi hækkun ef til vill
meir í verðhækkun en aukning vörunnar, en áreiðanlega
væri þó ekki orðinn líkt því svona mikill munur, ef ekkert
hefði verið gert að því, að bæta framleiðsluskilyrðin með
jarðabótum, þó hægt þyki hafa miðað
Á annað má líka benda. Nú vinna miklu færri menn
að framfærslu j afnstórs bústofns en áður, og vinna þó með
minni elju. þó hafa útfluttar landbúnaðarvörur nær þre-