Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Blaðsíða 108
102 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
getur þar verið um allmikla hættu að ræða fyrir fólk, sem
að kemur og ekki þekkir mun á misgóðum stöðum á þessu
sviði. Félagið gerði tilraun með að hafa tvennskonar fæði.
Venjulegt Reykjavíkurfæði, með því sniði, sem annars
tíðkast í kaupstöðunum, t. d. kaffi oftar en einu sinni á
dag, og einfalt fæði, án alls íburðar eða óþarfrar eyðslu.
þar var kaffi sparað. Verðlag í hvorum flokki var eftir
tilkostnaði. Fyrsta mánuðinn var ódýrara fæðið um 70 kr.
á mánuði, dýrara fæðið rúmar 80 kr. pá var fæði alment
selt í bænum á 90—100 kr. og jafnvel meira. Á útmánuð-
um eftir að krónan féll í verði, hlaut fæðið að hækka, því
að efni í matinn var keypt jafnóðum. Síðasta mánuðinn
var ódýrara fæðið um 80 kr., en hið dýrara 95 kr. þá var
svipað fæði á sambærilegum stað 110 krónur.
Eftir ástæðum varð fæðið fremur ódýrt, þegar tekið
er tillit til gæða. En þó er vonast eftir að lengra verði kom-
ist. En óhugsandi er þó, að nokkurntíma verði kept við
heimavistir sveitaskólanna, t. d. Hvanneyri, þar sem bæði
er um ódýra mjólk o. fl. sveitavörur að ræða, og landið
leggur hinsvegar til hús bæði til starfrækslunnar sjálfrar
og handa fólki því, er vinnur að matreiðslunni. En í Reykja-
vík verða skólarnir að gjalda húsaleigunnar og dýrleik-
ans í bænum.
Ávinningurinn fyrir skólafólk við slíkt mötuneyti á að
geta verið þrennskonar. í fyrsta lagi að maturinn verði
því ódýrari en ella. í öðru lagi að full trygging sé fyrir
því, að maturinn sé hollur, vel tilbúinn og úr óskemdu
efni. þetta atriði er meira vert en margur hyggur. í þriðja
lagi er maður .ætíð manns gaman. Fyrir námsfólk á líku
reki er ávinningur að því, að hafa einskonar heimili sam-
an. Slík sambúð þroskar menn félagslega engu síður
en nám.
Eins og áður er sagt, er mötuneytið í húsi ungmenna-
félaganna. þangað liggja leiðir fjölmargra ungra manna og
ungra kvenna víðsvegar að af landinu. Sama má segja um
eldra fólkið, samvinnumennina úr sveitunum. þeir eiga líka
oft leið til Re.vkjavíkur án þess að eiga þar frændur eða