Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Blaðsíða 84
78
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
þjóðfélaginu til heilla. Ríkið og löggjöfin á að tryggja per-
sónufrelsi manna, atvinnufrelsið og eignarréttinn. Búauð-
ungar voru fjandsamir ánauð og ófrelsi allra stétta, og
öllum afskiftum ríkisins af atvinnurekstri þjóðanna.
Grundvallarkenning búauðunga var sú, að jörðin sé
hin eina auðsuppspretta. þeir töldu því landbúnaðinn þýð-
ingarmesta atvinnuveg hverrar þjóðar. Jarðyrkja og önn-
ur hrávöruframleiðsla (t. d. námugröftur og fiskiveiðar)
voru einu arðsömu atvinnuvegir landanna. Engin önnur
atvinna gaf af sé.r hreinan arð (produit net). þetta átti þó
fyrst og fremst við landbúnaðinn. Gildi hans fyrir þjóð-
íélagið var í því fólgið, að hann gaf jarðeigendum hrein-
an ágóða, þegar hann hafði veitt framleiðendunum lífsupp-
eldi sitt, og allur kostnaður við hann var greiddur. Af þess-
um hreina ágóða var komin öll aukning á auði heimsins.
Hann var uppspretta þjóðarauðsins. Iðnaður og verslun
voru álitnir arðlausir atvinnuvegir frá þjóðfélagsins sjón-
armiði. þeir vora að vísu nauðsynlegir, en þeir gáfu þjóð-
unum engan hreinan arð.
Framleiðslu kölluðu búauðungar það, að ná óunnum
efnum úr skauti náttúrunnar. þeir töldu ekki annað með
til auðs, en afurðir jarðarinnar. Arðsöm vinna sögðu þeir
að væri sú, er skildi eftir afgang, þegar allur kostnaður við
hana væri greiddur. Jarðyrkjan væri eina arðsama vinnan,.
því að hún væri sú eina vinnan, er yki nokkru við auðlegð
þjóðanna.
Búauðungar skifta mönnunum í þrjár stéttir: 1. Jarð-
eigendur. 2. þá, er unnu að jarðyrkju eða annari hrávöru-
framleiðslu. 3. Iðnaðarmenn, kaupmenn og aðra starfs-
menn þjóðanna.
Jarðeigendur hafa stjórn jarðanna á hendi, en selja
þær oft öðrum á leigu. þeir hafa komið jörðunum í rækt
og gert á þeim jarðabætur. þann kostnað eiga þeir að fá
endurgoldinn. Bóndinn verður að framfæra sig og fjöl-
skyldu sína, greiða skatta og annan kostnað af afurðum
búsins. Landsetinn greiðir j arðeigandanum auk þess árlegt
afgjald. því má skifta í tvo hluta: Vexti af höfuðstólnum,