Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Blaðsíða 81
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
75
varð þingmaður 27 ára gamall. Níu ánim síðar var hann
settur yfir héraðið Limoges á Frakklandi. Starfaði hann
þar í 13 ár. Turgot var maður frábær að andlegu og líkam-
legu atgervi og hugsjónaríkur. Var alt í kalda koli í hér-
uðum þeim, er hann átti yfir að ráða, þegar hann kom
þangað. Bændui’nir voru soknir niður í dýpstu örbyrgð;
framtakslausir og fáfróðir, lamaðir af þungum álögum og
gerræði yfirvaldanna. Turgot fékk í lið með sér alla em-
bættismenn héraðsins til þess að rétta við hag bændanna,
Hann lét meta allar eignir þeirra, svo að hægra væri að
miða skattana við gjaldþol manna. Hann vann að því að
fá skattana færða niður, en fátækustu bændur greiddu
enga skatta. Frá fornu fari var það venja, að sveitabænd-
ur urðu að sjá setuliðinu fyrir húsnæði og vistum um
ákveðinn tíma til skiftis. Turgot létti þeirri byrði af
bændum. Lét hann reisa hermannaskála, sem sveitarfé-
lögin kostuðu. Hann beitti sér fyrir ræktun landsins, lét
þurka og græða upp óræktuð lönd, lét byrja kartöflu- og
fóðurrófnarækt og leiðbeindi mönnum í búnaði. Á þessum
árum varð hallæri mikið í mörgum héruðum Frakklands.
Turgot fékk þá ærið að starfa. Kom hann nýju skipulagi
á fátækramál héraðsins, og hvatti til hverskonar líknar-
starfsemi. Vann hann að því með frábærum dugnaði, að
bæta úr hallærinu. Átti hann harðar útistöður við stór-
bændur, er ekki vildu miðla af kornforða sínum. Korn-
mangaramir ætluðu að stöðva alla kornflutninga, sökum
rána og gripdeilda á vegunum, og af f j andskap við Turgot.
En hann lét hart mæta hörðu á báða bóga og vann sigur
á flestum örðugleikum. Turgot varði miklu af eignum sín-
um til þess að rétta við landbúnaðinn í umdæmi sínu og
verjast hallærinu. Jafnhliða embættisverkunum vann hann
fyrir hugsjónir sínar. Sendi hann stjórninni ávarp, og
hvatti hana til þess að gefa kornverslunina frjálsa innan-
lands, afnema alla tolla á inn- og útfluttum landbúnaðar-
afurðum, og nema úr lögum sérréttindi brauðgerðarmanna
og kornmölunarhúsanna. Tillögur hans fengu engan byr
hjá yfirstétt og stjórn landsins, en annars fór svo mikið