Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Page 63

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Page 63
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 57 úr sveit, sem byrja nám bamungir, eru í Noregi 6 ára mentaskólar, eins og hér hefir tíðkast. En ef breyting verð- ur gerð á Akureyri vegna efnalítilla gáfumanna, sem vinna fyrir sér sjálfir, yrði skólinn þar bundinn við 5 ár og þungt inntökupróf. Eg vona, að háttvirtir þingmenn vilji líta á þessi rök fyrir því, að breyta Akureyrarskólanum í þessa átt, úr því hægt er að gera það án kostnaðar fyrir ríkissjóð. þetta er nauðsynlegt vegna þess, að fátækir námsmenn úr sveit- um hafa verri aðstöðu nú en áður, eftir þá breytingu, sem gerð var á mentaskólanum, þegar grískan var feld niður og latína minkuð. Mun nú hérumbil loku fyrir það skotið, að gáfaðir og efnilegir menn, eins og háttv. þm. Akureyrar (B. L.) mun hafa talið sig, þegar hann var ungur maður, geti klofið kostnað gegnum skólann. Að lokum vil eg benda á, að ekkert ósamræmi er í því að takmarka stúdentaframleiðslu í Reykjavík, og láta 'sér þó detta í hug, að útskrifa 10—12 árlega á Akureyri. pjóð- inni er lífsnauðsyn, að embættismenn hennar og vísinda- menn séu valdir úr allri þjóðinni. Hingað til hafa álitleg- ustu mennirnir vaxið upp í sveitunum. En dýrtíðin og ald- urstakmark Reykjavíkurskólans er nær því að verða að útilokandi hindrun fyrir þessa menn. Eina úrræðið til að þjóðin geti notið starfskrafta þessara manna, er að breyta Akureyrarskólanum í svipað horf og Norðmenn hafa valið fyrir sína fátæku efnismenn. Að sama skapi má þá tak- marka töluna í Reykjavík, eftir þörf þjóðarinnar. Eg geri ennfremur ráð fyrir því, að skólinn á Akur- eyri gæti vaxið þannig upp, að fult svo mikið tillit yrði tek- ið til þess, að þeir, sem gengju gegnum skólann, hefðu fengið einskonar „super“-gagnfræðamentun, þ. e. a. s. að kenslunni væri þannig fyrirkomið, eins og á sér stað í Eng- landi ,að miklar íþróttir og verklegt nám yrðu samhliða bóknáminu. Eru miklu betri skilyrði norðanlands fyrir vetraríþróttir, t. d. skíða- og skautaferðir, róðra, sigling- ar og ýmsar aðrar útiíþróttir, heldur en í Reykjavík, sem er snjólaus, íslaus og með mjög óstöðuga vetrarveðuráttu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.