Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Page 86

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Page 86
80 Tímarit íslei ',kra samvinnufélaga. mörgum sérréttindum og afnema alla beina og óbeina skatta. Frelsið var samkvæmt lögum náttúrunnar heilag- ur réttur hvers manns, án þess gat hann ekki beitt starfs- kröftum sínum að fullu, sér til heilla og þjóðfélaginu til þrifa. Stjórnin átti ennfremur að láta verslun með land- búnaðarafurðir afskiftalausa. Hún átti að vera frjáls. þá myndi kornið hækka í verði, framleiðslan og verðið verða stöðugra ár frá ári. Bændur gátu fyrst rekið bú sín með alúð og bætt jarðirnar, þegar frelsið var fengið og fjár- hagur sveitanna var kominn í bætt horf, með hærra verði á afurðunum. það var brýnt fyrir bændum, að þeir ættu að yrkja jörðina betur. Stjórninm bar að beita sér fyrir verklegum framkvæmdum í sveit .m. Búauðungar álitu verslun og kaupmensku arðlausa vinnu. Að vísu eru iðnaðarvörur meira virði, en efnið, sem í þær fer, en iðnaðarmaðurinn hefir eytt eins miklu, með- an á vinnunni stóð, sér og sínum til viðurværis, eins og verðaukanum nemur. Starfsemi iðnaðarmanna væri aðeins í því fólgin, að breyta hrávörunni, en þeir framleiddu enga nýja muni. þeir yku ekki meira verðmæti hlutanna, en sem svaraði eyðslu þeirra á auði heimsins. Verðaukinn væri því enginn auðsauki. Líkt mátti segja um iðnað og verslun, er aðeins flyttu vöruna frá einum stað til annars eða útbýttu henni. í verslun skiftust menn á jafnverðmætum hlutum, og því gæti hún ekki aukið auðlegð þjóðanna. Iðnaðar- mönnum og kaupmönnum bar sannvirði iðju sinnar, en ekki meira. Atvinnufrelsi og frjáls samkeppni var nauðsynleg til þess að tryggja það, að þessar stéttir gætu ekki selt varning sinn og vinnu hærra en sannvirði. það þótti skað- legt fyrir þjóðfélagið, ef þessar stéttir söfnuðu auði, eða hefðu meira fé til umráða en þeir þyrftu til þess að vinna úr hráefnunum, eða flytja vöruna til neytendanna. Sá auð- ur væri ranglega fenginn á kostnað þeirra manna, er fram- leiddu þjóðarauðinn. Við það yrði rekstursfé landbúnaðar- ins minna, framleiðslunni og þjóðarauðnum hætta búin. Búauðungar sögðu, að aðalyfirsjón kaupauðunga væri sú að þeir efldu iðnað og verslun á kostnað jarðyrkjunnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.