Andvari

Volume

Andvari - 01.05.1961, Page 58

Andvari - 01.05.1961, Page 58
56 HANNES PÉTURSSON ANDVARl ólíkt. Ástmey Jónasar var ,,die ferne Ge- liebte", líkt og ástmey Beethovens, hann hafði meira að segja ekki kynnzt henni nema lítið eitt, sbr.: hefði ég betur hana þekkt / sem harma ég alla daga. Þegar Jónas hugsar um ást sína, búa kvæði hans jafnan yfir sama hugblæ: söknuði, hann sér horfna og skammvinna æsku- ást sína í hillingum. Hjá Heine víkur þessu allt öðru vísi við. Idann hefur átt sér margar ástmeyjar og tilfinningalíf hans er á stöðugu róti, hann er ýmist grátklökkur eða hatrammur í þeirra garð, sakar þær um fláttskap við sig og her þeim fleira þess kyns á brýn, í stuttu máli: ást Heines er margþætt, Jónasar einþætt. M. a. af þessum ástæðum hefur kveðskapur Jónasar ekki orðið fyrir áhrif- um af þeim ljóðum Heines, þar sem gráti og hlátri er fléttað saman. Þá er fátt sem bendir til þess, að Jónas hafi tekið að tileinka sér önnur einkenni Heines fyrr en á seinustu árum sínum, enda þótt hann hafi lesið hann áður, sbr. það sem þeir Fjölnismenn segja um Heine í fyrsta árgangi ritsins. Enda þótt sú skemmtilega lýsing sé frá árinu 1835, tekur hún ekki af skarið um, hversu kunnugur Jónas hefur þá verið verkum Heines. Svo mikið er víst, að nær allar Fleine-þýðingar sínar gerir Jónas eftir kvæðum, sem birtust í Neue Gedichte 1844, eða ári fyrir dauða Jónasar. Raun- ar gat Jónas hafa kynnzt einhverjum af þessum kvæðurn fyrr, því sum Iiöfðu birzt í Ferðamyndum (Reisebilder) og er svo vitaskuld um þýðingarnar sem komu í Fjölni 1843, ári áður en sjálf hókin kom á markaðinn suður í Flamborg, en bókinni kynntist Jónas síðan skömmu eftir útkomuna og þýðir þá allmörg kvæði til viðbótar og hefur krotað til hliðar við þýðingarnar í handritinu: Neue Gcdichte, Hamburg 1844, svo það bendir til þess, að hann hafi ekki snúið þcim á íslcnzku fyrr, enda þótt hann hafi sennilega kynnzt þeim áður, þar sem þau cru m. a. úr kaflanum Neuer Fruhling, sem birzt hafði fyrst 1830 í Ferðamyndum. Um svipað leyti og Jónas tekur að þýða Heine að marki, yrkir hann kvæðaflokk- inn á Sjó og landi, öðru nafni Annes og eyjar. Það eru 12 smákvæði, öll jafn löng, þrjú erindi hvert og hátturinn alls staðar sá sarni. Óhætt mun að fullyrða, að það séu þessi kvæði, sem ruddu Heine braut inn í ljóðagerð vora, þar sem hann hefur stungið upp kollinum við og við síðan allt fram á síðustu ár, löngu eftir að bcinna áhrifa hans er hætt að gæta í heimalandinu. Fjöldinn allur af mönn- um hefur þýtt eftir hann kvæði, reyndar með heldur misjöfnum árangri, og sum skáld hafa bókstaflega sniðið bækur sínar eftir ljóðabókum Fleines, eins og Dags- brún Jónasar Guðlaugssonar er dæmi um. Ég tel að ekkert erlent ljóðskáld hafi lengur eða í ríkara mæli sett svip sinn á íslenzkan kveðskap en Heine, á ég þá einkum við Ijóðstíl hans. Mun ekki fjarri lagi að líkja áhrifum Heines á sum ljóð- skáld vor við áhrif I lemingways á yngri skáldsagnahöfundana nú um skeið. Báðir hafa borið með sér nýjan stíl og nýjan anda, hvor á sinn hátt. Síðustu kvæðabækur, sem að veru- legu leyti draga dám af ljóðagerð Heines, eru bækur Þórbergs Þórðarsonar, Hálfir skósólar (1915), Spaks manns spjarir (1917), Hvítir hrafnar (1922) og Illgresi eftir Órn Arnarson (1924), en þegar þcssar bækur komu út, voru liðin um það hil hundrað ár frá því Heine orti ljóðin í Buch der Lieder, en elztu kvæðin þar eru frá því um 1814, þar á meðal Die zwei Grenadiere, Skotliðarnir tveir, og var Heine þá 17 ára gamall (f. 1797). Kvæði Þórbergs og Arnar eru að einu leyti meira í anda Heines en kvæðaflokk- urinn Annes og eyjar, sem hratt Heine-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.