Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.05.1961, Qupperneq 63

Andvari - 01.05.1961, Qupperneq 63
andvaiu 1>ÝZK ÁHRIF Á ÍSLHNZKAR BÓKMENNTIR 61 íslenzkar bókmenntir en á fyrri helmingi 19. aldar, meðan Kaupmannahöfn fóstr- aði blómann úr hinum ungu mennta- mönnum vorum. Þá var auðvelt fyrir þá að fylgjast með því, sem nýtt var af nál- inni í landinu fyrir sunnan þá, bæði í bókmenntum, listum og vísindum. Síðan þá hcfur margt breytzt, Ameríka er orðin stórveldi, sem haft hefur mjög víðtæk áhrif á íslenzku þjóðina, en um leið hefur slaltnað nokkuð á tengslum við hin gömlu menningarlönd Evrópu, nerna helzt í málaralist. Margir helztu heim- spekingar Vesturlanda, sem nú eru uppi, eru að vísu Evrópubúar, en íslenzkar bók- menntir hafa aldrei verið ýkja heim- spekilegar, svo áhrifa þessara manna gætir vart hér um slóðir. A þessari öld hafa Franz Kafka (d. 1924) og Rainer Maria Rilke (d. 1926) haft áhrif langt út fyrir hið þýzka mál- svæði. Virðist mér a. m. k. einn íslenzkur höfundur hafa orðið fyrir nokkrum áhrif- urn frá Kafka, annaðhvort beint eða óbeint, er það Geir Kristjánsson. Helzta leikritaskáld Þjóðverja á þess- ari öld, ásamt Gerhart Hauptmann (d. 1946) er Bertolt Brecht (d. 1956). Hann er mjög sósíalistískur höfundur. Áhrifa hans virðist ekki hafa gætt hér enn sem komið er. Hann hefur skapað nýjan stíl í leikritagerð, hinn epíska leikstíl, og hef- ur ritað margar mjög skarplegar athuganir um leiklist. Þeir þýzkir höfundar síðustu áratuga, sem bezt munu kunnir hér af þorra manna, eru sennilega Stefan Zweig (d. 1942) og Erich Maria Remarque (f. 1898). Þeir eiga sér hér allstóran lesendahóp. Eftir Remarque hafa komið út á íslenzku nokkrar bækur, og er Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum ein þeirra, sem þýdd var þegar 1930. Eftir Zweig hefur verið þýtt nokkru meira, m. a. fjórar af hinum frægu ævisögum hans um stórmenni sög- unnar, en nú síðast hin merka bók hans Welt von gestern, Veröld sem var, ógleymanleg menningarsöguleg lýsing Mið-Evrópu frá því um 1880—1940. Þessir höfundar hafa þó ekki sett svip sinn á íslenzkar bókmenntir, svo mér sé kunnugt. * Hér að framan hef ég lítillega gert grein fyrir þýzkum áhrifum á íslenzkar bókmenntir. Ég hef stiklað á stóru; af skiljanlegum ástæðum einkum fjallað um rómantíska tímabilið, sem er það skeið bókmenntasögunnar, þegar beinna og óbeinna þýzkra áhrifa gætir mest í Evrópu. Síðan þá hefur engin bók- menntastefna risið upp í Þýzkalandi, sem hefði nándar nærri eins víðtæk áhrif í öðrum löndum. Eftir síðari heimstyrjöld hefur Þýzka- land fremur verið þiggjandi en veitandi á sviði skapandi bókmennta. En óðum er að færast þróttur í vestur-þýzkan skáld- skap. Ef til vill er þess ekki langt að bíða, að fram komi ný þýzk skáld, sem megi sín mikils í hinum alþjóðlega bók- menntaheimi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.