Andvari - 01.05.1961, Síða 69
ANDVARI
RIMUR OG RAUNVISINDI
67
próf? Eru ekki settir hér í þýðingarmiklar
stöður menn, sem aðeins hafa lokið
skyldunámi, eða lítið meira. Er hér ekki
fullt af alls konar fræðingum, sem lítinn
námsferil og engin próf hafa að baki í
þeirri fræðigrein, sem þeir kenna sig við?
Það má að vísu segja, að ekki sé allt
fengið með skólagöngu og prófum. Ymsir
kunna að hafa tekið gott próf úr skóla,
en ekki reynzt neinir afburðamenn i sínu
starfi. Aðrir hafa orðið mjög nýtir menn
á sínu sviði, þó að litla skólamenntun hafi
haft, eða þeir hafi ekki lokið prófi. En
á þetta ber að líta sem undantekningar.
Skólamenntun hlýtur alltaf að vera til
bóta, og mælikvarði á hana eru próf.
Þjóðfélagið verður að halda hér uppi
reglu, og sjá um að ekki sé haft rangt
við. Það verður að krefjast tilheyrandi
menntunar og prófa af þeim, sem kenna
sig við sérstakar fræðigreinar. Þjóðfélagið
getur ekki fallizt á nein undanbrögð í
þeim efnum. Ef slakað er á þessum kröf-
um, hætta menn að leggja á sig langt
nám og þung próf. Hinar styttri og léttari
námsbrautir verða látnar nægja. Og þá
er hálfkákið, fálmið og kauðaskapurinn
orðinn alls ráðandi hér á landi.
Svörin við þeim spurningum, sem ég
lagði fram í upphafi greinarinnar, hafa
orðið á þessa leið:
1. Skólagöngunni er ætlað að búa hina
uppvaxandi kynslóð undir lífið, en
þar sem kringumstæðurnar í umheim-
inum breytast stöðugt, verður fræðslan
í skólunum einnig að breytast. Nú
stefnir þróunin til meiri tækni og því
er krafizt meiri þekkingar í raunvís-
indum, en áður var.
2. í íslenzkum skólum er lítið kennt í
undirstöðugreinum raunvísinda, þ. e.
náttúrufræðum. Aftur á móti er alinn
þar upp áhugi á húmaniskum fræðum.
Þessi undirstaða samfara andlegum
slappleika eftirstríðsáranna leiðir meir
og meir til þeirrar andlegu sköpunar
og viðfangsefna, sem bezt verða kennd
við rímnakveðskap.
3. Þessi stefna frá raunvísindum og til
hinna léttari húmanisku viðfangsefna,
ásamt tilslökunum af hendi hins opin-
bera gagnvart þeim, sem ekki fylgja
réttum reglum um sérmenntun og próf,
verður hvort tveggja til þess, að skóla-
gangan nær hér hvergi nærri tilgangi
sínum.