Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1987, Page 81

Andvari - 01.01.1987, Page 81
ANDVARI f LEIT AÐ EIGIN SPEGILMYND 79 máluðu öðru fremur sitt innra líf, hið hugverulega og ósegjanlega, og sum hver, þau sem lengst gengu, reyndu að skapa abstrakta veröld úr orðum, veröld sem sneydd væri hlutlægri vísun og hefði gildi í sjálfri sér. í þessu og fleira áttu skáldin samleið með abstraktmálurum, höfðu og mörg hver náið persónulegt samband við þá, einkum í gegnum tímaritið Birting sem fyrst kom út árið 1955, en í það skrifuðu menn eins og Hörður Ágústsson, Þorvaldur Skúlason, Einar Bragi og Thor Vilhjálmsson. Skoðanir þeirra riðu í þverbága við arfbundin viðhorf til lista og bókmennta hérlendis — viðhorf sem kröfðust natúralisma í myndlist og stælingar í skáldskap. Samkvæmt þeim áttu listaverk að líkja eftir hinum þekkta og samþykkta; fráleitt var að hefðbundin táknkerfi væru dregin í efa eða sýnd undir nýju sjónarhorni. „Skáldið er ekki kennari heldur sjáandi og goðsagnasmiður“3, var sagt í Birtingi á þessum tíma. Áður höfðu langflestir rithöfundar samþykkt hina bókmenntalegu fortíð nær umhugsunarlaust. Sérstaðan takmarkaðist við einstök stílbrögð, duttlunga í orðfæri, leik að sjónarhornum, hugmyndaleg blæbrigði, hugsunin að meira og minna leyti ómeðvituð endurtekning, líkust bergmáli. Ritháttur þessara höfunda mótaðist af samskonar siðgæði, sams- konar viðhorfi til eigin hlutverks, markmið þeirra þríþætt: skrifa vel, þ.e. í samræmi við viðurkenndar málvenjur, lýsa mannlífinu á beinan og röklegan hátt, koma siðferðilegu/heimspekilegu erindi á framfæri. Um og eftir 1950 lætur þetta þríþætta boð fyrst undan síga svo um munar. Ný fagurfræði varð til, ný siðfræði líkt og í málverkinu. Framan af mætti hún mikilli andstöðu eins og kunnugt er, talað var um klessuverk og atómljóð, árásir á íslenska menningu. Engu að síður sló hún í gegn með furðu skjótum hætti. Það sem í upphafi var sérviska fáeinna skringimanna varð aðnormi, sérvisku tímans — 6ta áratugarins. Sú skoðun fagnaði sigri — a.m.k. um stundarsakir—að listin væri ekki sníkill á ytri veruleika heldur byggi hún sjálf yfir sérstæðum og fullvirkum veruleik; ennfremur að rannsóknargildi hennar skipti meira máli en sýnigildið, þ.e. hæfi hennar til að kanna áður óþekkt svið og túlka hið innsta í mannssálinni. Það má því með réttu staðhæfa að ákveðin bylting hafi átt sér stað: menn gerðu upp við fyrirmyndir, ortu og máluðu í þeirri trú að þeir væru eigin herrar í list sinni; nýsköpun varð að meginmarkmiði, bæði í málverki og skáldskap. Á báðum sviðum var risið af mikilli frekju gegn hinum hvimleiða þriðja aðila sem áður hafði gefið verkum listamanna lit og lögun. „Veruleiki ljóðs er ekki yrkisefnið sjálft, heldur mynd þess“ segir Einar Bragi í Birtingi 1955: „í góðu ljóði hverfur yrkisefnið í mynd sína, verður hún“4. Og á sama vettvangi skömmu áður gengur Þorvaldur Skúlason enn lengra: „Nonfígúratívt málverk er [... ] eingöngu bygging lita og forma. Milli verksins og listamannsins er enginn þriðji aðili, ekkert mótív handan við myndina“5. Listaverkið átti að vera sérstakur, sjálfstæður formheimur, byggt á milliliðalausri tjáningu; viðleitnin byltingarkennd í íslensku samhengi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.