Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1947, Side 86

Andvari - 01.01.1947, Side 86
82 Sigurjón Jónsson ANDVARI að það er nærri ómögulegt að meta til fullnustu, hve mikið Jæknisfræðin á þeim að þaklía. Fram yfir miðja 17. öld hafði enginn hugmynd um, livað sjúkdómar væru í sjálfu sér né hvað þeim ylli. Það var mikils- vert sliref áleiðis, er tveir ílaJsliir vísindamenn, Ronomo og Cestoni, sýndu fram á það 1687, að kláðinn (þ. e. faraldurs- kláðinn, Scabies) væri af völdum örsmárra maura, er græfu sig inn í húðina, tímguðust þar og breiddu sýlcina út með því að slvríða af sjúlcum á lieilbrigða. Þetta var fyrsta slvipti, sem sérstölc orsöle til sjúkdóms var leidd í ljós, og fyrsta skipti, sem skýring var gefin á þvi, bvernig sjúkdómur bærist frá manni til manns. Fáeinir menn, sem voru einni eða fleiri öldum á undan samtíð sinni, fluttu nýjar kenningar um smitun sjúkdóma og útbreiðslu af völdum eitraðra agna eða lofttegunda, eða jafn- vel ósýnilegra lífvera; en þessar kenningar féllu í grýtta jörð og náðu engu fylgi, enda skorti sannanir með öllu. Réttur skilningur á smitandi sjúkdómum hlaut að bíða þess, að ó- sýnilegar lífverur fyndust og einhver þekking fengist á eðli þeirra. Leeuwenhock, hollenzkur bjúgglerjafágari á 17. öld, fann upp samsetta smásjá, er eygja mátti bakteríur í. Hann er stundum nefndur faðir bakteríufræðinnar, en réttara væri að kalla hann ljósmóður hennar. Hann var einn af mikilhæfustu uppfundningamönnum, sem nokkurn tíma hafa uppi verið. Uppgötvun ókunnra meginlanda hefur verið talin Kólumbusi og Magellan til gildis, en Leeuwenhock opnaði mannlegri þekkingu lieilan, áður ókunnan heim. En meira þarf til að vera bakteríufræðingur en að vita, að bakteriur eru til, og þess vegna cr hæpið að kalla Leeuwenhock föður bakteríufræðinnar. Þann heiður á Pasteur með réttu, því að hann gerði bakteríufræðina að vísindagrein á dögum foreldra vorra, sem nú erum rosknir orðnir. Hann gerði það, þegar hann færði órækar sannanir fyrir því, að gerlar og sýklar eiga foreldri, eins og alll annað, sem lífi er gætt. Meðan því var trúað, að þessar verur kviknuðu sjálf-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.