Andvari - 01.01.1931, Page 18
u
Síra Eiríkur Briem, prófessor.
Andvart
áhuga- og framkvæmdamaður og hafði í mörgum fram-
kvæmdum gengið á undan samiíðamönnum sínum. Hann
hvatti mjög sveitunga sina til framtaks í búnaði, en
þóttist litlu fá áorkað, enda gætti meira hjá honum
kapps og aðfinninga en lægni til að hafa áhrif á aðra
og framkvæmdamál héraðsins. Eiríkur fékk mætur á
Ásgeiri fyrir áhuga hans og dugnað, og tók mikið tillit
til þess, er hann lagði til héraðsmála, og jók með því
traust hans og fylgi. Átti Eiríkur mestan þátt í því, að
hann var kosinn alþingismaður fyrir Húnavatnssýslu
1875 ásamt Páli bónda Pálssyni í Dæli.
Erlendur Pálmason var þá bóndi í Tungunesi í Svína-
dal. Hann var mjög hygginn maður og ágætur búmaður
og hafði mikinn áhuga á framfaramálum héraðsins. En
það var einhvern veginn svo, að menn þar í sveitum
ekki kunnu að meta hann eins og vert var, og tóku
minna tillit til þess, er hann lagði til mála, en skyldi. Eiríkur
fann fljótt, hvað í tnanninn var spunnið, og þótti tillögur
hans margar viturlegar og vel hugsaðar. Það var því
oft á fundum um íhugunarverð má!, að Eiríkur leitaði
sérstaklega eftir áliti Erlends og gerðist þá oft til að
slyðja tillögur hans og skýrði fyrir fundarmönnum, hvaða
kosti þær hefðu, öðrum tillögum fremur. Varð það til
þess, að ýmsir Húnvetningar tóku að meta Erlend meira
en áður, og hann varð áhrifaríkari í héraðinu. — Þó
Eiríkur þannig ynni að því að efla betri menn héraðs-
ins til heppilegra framkvæmda, dró hann sig þó ekki
í hlé, né sparaði sig í opinberum málum, ef þörf krafði.
Á þessum árum var Húnaflóa-verzlunarfélagið svo-
nefnda starfandi. Náði það yfir Skagafjörð, Húnaflóa og
ýms héruð vestanlands allt suður í Borgarfjörð. Vegna
þess hve félagið var víðlent, var örðugt að halda uppi
samvinnu milli félagsdeilda, og reis upp mikill ágrein-