Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1931, Page 50

Andvari - 01.01.1931, Page 50
<16 Síra Eirlkur Briem, prófessor. Aiidviri margvísleg efni. Fylgdist hann til æviloka vel með í nýungum og framförum erlendis og heimsviðburðum á stjórnmálasviðinu; t. d. las hann endurminningar hern- aðar- og stjórnmálamanna í heimsófriðnum jafnóðum sem þær komu og hafði mikla ánægju af að rökræða um atburði ófriðarins og tildrög þeirra. Eiríkur vann sjaldan á helgum dögum, en sótti þá jafnan kirkju, gekk úti sér til hressingar, las nýfengnar bækur, eða stytti sér stundir með viðræðum. Á sunnu* dagskvöldum að vetrinum spilaði hann oft 2—3 stundir, ef völ var á spilafélögum; spilaði hann nær eingöngu vist eða l’hombre. Var hann góður spilamaður og fylgdi spilinu af áhuga og líkaði miður, ef spilamennirnir spil- uðu klaufalega eða fylgdust illa með. Hann var í öllu mikill hófsmaður; við tækifæri neytti hann víns með vin- um sinum, en ávallt í mesta hófi. Eiríkur var fremur hár vexti og beinvaxinn, fyrirmannlegur f sjón og prúðmenni í allri framkomu. Hann var skarpleitur i andliti, sviphreinn, augun skýrleg, gráblá að lit, og með þeim einkennum, sem títt er í Briemsættinni. Á yngri árum var hann dökkjarpur á hár og skeggið rauðleitt, en varð hvítur fyrir hærum á efri árum. Ef hann var þögull eða hugsandi, hvíldi djúpur alvörusvipur yfir andlitinu. En í viðræðum um hugstæð efni birti yfir svipnum og var sem andlitssvipurinn ljómaði af gleði og áhuga. Hann hafði óvenjugott minni, skarpan skilning og var sérstaklega íhugull maður. Komu þessir hæfileikar hans skýrt í ljós í störfum þeim, sem hann leysti af hendi. Hann var mikill fróðleiks- og lærdómsmaður, og gáfum hans var þannig háttað, að hjá honum var þekk- ingin »á vöxtum*. Hún varð honum efniviður til sjálf- stæðra íhugana og frumlegra nýrra ályktana, er báru ávöxt í framkvæmdum hans. Hann var t. d. stærðfræð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.