Andvari - 01.01.1931, Page 95
Andvari
Fiskirannsðknir.
91
að honum. — Ég mældi fitu í 6 síldum, 2 hinum feit-
ustu, 2 meðalfeitum og 2 hinum mögrustu, sem ég fann
og var hún 220/o, 21o/o og 15°/o; en af síld undir 21°/o
vara sárafátt (nýgotin síld aðeins), svo að fitan hefir að
iafnaði verið yfir 20°/o. í síld (um 100 tn.) sem sam-
tímis var veidd á öðrum bát, á sama stað, var meira af
wögru síldinni (blóðsíld) en í hinni, á að gizha 12—15°/o,
en átan var alveg samskonar.
NA-iIIviðri, sem áður er getið um, hafði engin var-
anleg áhrif á síldina; hún veiddist þá daga, bæði í
Mjóafirði og Reyðarfirði (sum tóm, sum full af átu) og
varð vart við Hornið (Barðsneshorn), þó að ekki væri
veður til að veiða hana þar, og hún var þar nóg, þegar
veðrinu slotaði.
Hvalir höfðu engir verið með síldinni í Reyðar-
firði þetta sumar, í Norðfjarðarflóanum aðeins fáeinar
^refnur (margar 1929), höfrungar og hnísur.
Eg hefi nú skýrt frá því helzta, er ég varð vísari um
austfirzku síldina sumarið 1930. Þar var bæði óþroskuð
•nillisíld og fullþroskuð stórsíld (hafsíld) og bar miklu
nreira á henni, því að svo mátti segja að áðurnefndir
^irðir væru »fullir« af henni síðustu viku júlím. og Iangt
iram í ágúst. Ekki gat ég séð, að hún væri frábrugðin
^orðlenzku síldinni í neinu verulegu; hún var sami blend-
,n9urinn af vorgotsíld og sumargotsíld og í svipuðu
íjöldahlutfalli, o: vorgotsíldin í miklum meiri hluta, fæð-
an líkt blönduð og í Húnaflóasíldinni 1929, fitan svipuð
í öllum fjöldanum ekki minni. Ekki leit út fyrir, að
nún hefði hrygnt um sumarið (sem sumargotsíld) þarna
1 fjörðunum, eða úti fyrir þeim, því að hvorki sá ég,
Be neinn af þeim sem ég spurði um það, neina síld
með rennandi æxlunarefnum, né heldur sáust hrogn á
vörpum eða netum. 8. ág. 1929 sá Valdim. Snævarr skóla-