Fréttablaðið - 12.09.2009, Page 11
LAUGARDAGUR 12. september 2009 11
LÖGREGLUMÁL Rætt hefur verið
um að öryggisverðir fái heim-
ild til þess að beita varnar-
hundum þar sem starf þeirra
fer fram á fáförnum stöðum.
Hins vegar hefur ekki komið
til tals í dómsmálaráðuneytinu
að öryggisverðir fái heimild
til að beita valdbeitingartækj-
um. Þetta hefur fréttastofa
Vísis eftir Rögnu Árnadóttur
dómsmálaráðherra.
Samkvæmt lögreglulögum er
heimild til valdbeitingar bund-
in við þá sem hafa lögregluvald,
auk fangavarða. Dómsmálaráð-
herra segir að nú standi yfir
vinna um breytingar á lögum um
öryggisþjónustu, sem miði að því
að skilgreina hlutverk lögreglu-
manna og öryggisvarða.
- jhh
Dómsmálaráðuneytið:
Öryggisverðir
noti hunda
LÖGREGLUMÁL Dómsmálaráðu-
neytinu hafa borist framsals-
gögn frá brasilískum stjórn-
völdum vegna
lýtalæknis-
ins Hosmany
Ramos sem
handtekinn var
hér á landi um
miðjan ágúst.
Að sögn Hilm-
ars Ingimund-
arsonar, lög-
manns Ramos,
verður gæslu-
varðhalds krafist yfir honum
síðar í dag. Ramos var dæmdur í
þrjátíu daga fangelsi þegar hann
framvísaði vegabréfi bróður síns
í Leifsstöð og lýkur afplánun
þess dóms á morgun.
Skömmu eftir handtökuna
varð ljóst að brasilísk stjórn-
völd myndu leggja fram beiðni
um framsal Ramos en gögn-
in hafa verið lengi á leið hingað
til lands. Dómsmálaráðuneytið
staðfesti hins vegar í samtali við
fréttastofu Vísis að þau væru nú
komin. - bl
Mál Hosmany Ramos:
Framsalsgögn-
in hafa borist
HOSMANY RAMOS
HEILBRIGÐISMÁL Fulltrúar Sjúkra-
liðafélags Íslands funduðu með
fulltrúum frá heilbrigðisráðu-
neytinu og Landlæknisembætt-
inu í gær. Tilefnið var að lýsa
yfir áhyggjum sínum af ástand-
inu í heilbrigðismálum. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
Sjúkraliðafélaginu.
Í tilkynningunni segir að
áhyggjurnar beinist meðal
annars að því að þegar aukn-
ar byrðar leggist á sífellt færri
starfsmenn skili það sér í verri
þjónustu við skjólstæðinga. Sér-
staklega hafi kvartanir borist
af slæmu ástandi varðandi
hjúkrun aldaðra. - kg
Sjúkraliðafélag Íslands:
Hafa áhyggjur
af ástandinu
FÆREYJAR Fari Íslendingar inn í ESB líður
ekki á löngu þar til við Færeyingar þurfum
að gera upp hug okkar. Spurningin vaknar
strax: hvað gerum við? Þetta mál er svo stórt
að við eigum ekki að leyfa að það verði að pól-
itísku leikfangi. Við eigum að gera þetta upp
við okkur sjálf.
Svo segir í pistli frá Reiðarafélagi Færeyja,
sem er félag skipseigenda; útgerðarmanna.
Margir Færeyingar hafi ekki gert upp við
sig hvort þeir styðji eða hafni aðild að ESB,
enda hafi þeir ekki kannað kosti þess og
galla.
Félagið hafi skoðað áhrifin á sjávarút-
veginn. Styrkir til sjávarútvegs freisti
margra, enda komi ESB-styrkirnir illa við
samkeppnisfærni Færeyinga.
Á hinn bóginn mæli margt í móti. Nýlegt
dæmi sé af ágreiningi um veiðarfæri, þar
sem Frakkar hafi valtað yfir Íra, en Írar
höfðu mótmælt ákveðnum lagabreytingum,
með vísan til þess að þær þýddu að meira
yrði veitt af smáfiski.
„Þetta er umhugsunarvert. Hvað gera
Íslendingar þegar þeir komast í sömu aðstæð-
ur og Írar?“ er spurt í pistlinum.
Leiddar hafi verið líkur að því að hvorki
Íslendingar né Færeyingar fái sérsamninga.
Ákvörðunarvaldið verði í Brussel.
Færeyingar þurfi að skoða hvað þeir vilji
gera í þessum málum, því fyrr, því betra. - kóþ
Færeyskir útgerðarmenn segja ESB-umsókn Íslendinga kalla á að Færeyingar geri upp hug sinn:
Færeyingar þurfa líka að ákveða sig
FRÁ FÆREYJUM Færeyingar fylgjast nánar
með ESB-aðildarumsókn Íslendinga en
margar aðrar þjóðir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Stjórn Heimdallar,
félags ungra sjálfstæðismanna,
skorar á stjórnvöld að gera betur
í samskiptum við erlenda fjár-
festa. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu sem stjórnin sendi
frá sér í gær.
Í ályktun stjórnar Heimdallar
eru stjórnvöld hvött til að huga
vel að erlendri fjárfestingu inn
í landið. Ýmis dæmi hafi komið
upp nýlega þar sem viðbrögð
stjórnvalda við óskum og erind-
um frá erlendum aðilum um að
koma með fjármagn til landsins
hafi verið lítil sem engin, og vald-
ið því að hugmyndirnar renni út í
sandinn. - kg
Ályktun Heimdallar:
Geri betur við
erlenda fjárfesta
Vertu með heimabanka sem sér um fjármálin með þér
Sjálfvirkt heimilisbókhald færir fyrir þig öll útgjöld og allar
tekjur. Snjöll lausn fyrir fjármál heimilisins. Í hvert sinn sem greitt
er með greiðslukorti, reikningur er greiddur eða laun borguð
út birtist færslan sjálfkrafa undir viðeigandi útgjalda- eða
tekjulið. Þú ert með allt sem snertir fjármálin þín á einum stað.
Gott skipulag á fjármálunum sparar þér bæði tíma og peninga,
sem þú getur þá varið í eitthvað annað, til dæmis það sem er
mikilvægast í lífi þínu.
Náðu betri árangri í fjármálunum með sjálfvirku
heimilisbókhaldi Byrs. Kannaðu málið á byr.is.
„Ég vil rækta það
mikilvægasta í lífinu!“
Heimabanki Byrs er með
sjálfvirkt heimilisbókhald
Afþreying
Farartæki
Ferðalög
Fjármál
Heilsa og útlit
Heimilið
Matur
Rekstur
Skóli / námskeið
Annað
30,2%
24,0%
14,6%
11,2%
4,5%
1,1%
3,5%
3,4%
2,6%
4,9%
í heimabanka
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
IK