Fréttablaðið - 12.09.2009, Page 33
FERÐIN TIL PANAMA
P
anama er að mörgu leyti skemmti-
leg blanda af Rómönsku-Amer-
íku og ýmsum einkennum sem
við þekkjum frá Bandaríkjun-
um. Þjóðtungan er spænska, þó með sér-
staklega sterkri mállýsku sem er fullkom-
lega óskiljanleg við fyrstu kynni. Íbúar eru
þó vanir erlendum hreim og ættu að skilja
hefðbundna spænsku. Annars er enska mjög
almennt tungumál, mun útbreiddari en í
öðrum Mið-Ameríkuríkjum.
Reyndar virðast Panamabúar hafa lært
ýmsan ósiðinn af Bandaríkjamönnum
og minnir margt af því á amerísk áhrif á
Íslandi. Þannig ekur efnað fólk um á allt of
stórum bílum, aðallega stórum glæsijeppum
sem það hefur enga þörf fyrir, ekki frekar
en Jón og Gunna í Garðabænum. Þetta verð-
ur til þess að þrengja að gangandi vegfar-
endum, en lítið tillit er tekið til þeirra sem
eru fótgangandi. Auk þess eru Panamabúar
tillitslausir í umferðinni og því skal fara með
gát, bæði á fæti og í akstri á vegum úti.
Veðurblíða og fullkominn sjór
Panama nýtur einstakrar veðursældar allt
árið um kring. Meðalhitinn rokkar frá 33
upp í 36 stig, þannig að breytingin er nán-
ast engin. Lega landsins rétt norðan við mið-
baug veldur því að sólargangur er svipaður
allt árið og árstíðirnar fjórar þekkjast ekki
nema af afspurn.
Hins vegar skipta Panamabúar sínum
veðrakerfum í tvennt; ýmist er rigningar-
tímabil eða ekki. Hið svokallaða rigning-
artímabil er frá maí og allt fram í október
eða jafnvel nóvember, en þá tekur við tíma-
Fjölmiðlamaðurinn góð-
kunni Þorfi nnur Ómarsson
lagði land undir fót í sumar
og hélt ásamt unnustu sinni,
Ástrós Gunnarsdóttur, til
Panama, þar sem þau dvöldu
í nokkra mánuði. Hér segir
Þorfi nnur frá landinu fjar-
læga sem við Íslendingar
þekkjum svo lítið. FRAMHALD Á BLS. 8
Beint flug til Taílands
Ævintýrin færast
nær Íslendingum
10
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
SEPTEMBER 2009
ferðalög Borgarferðir í haust
Spennandi kostir í boði
BLS 4