Fréttablaðið - 12.09.2009, Qupperneq 40
● Forsíðumynd: Grafíklistaverk eftir Katrínu Ólínu
Pétursdóttur hönnuð. Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar:
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is og Roald
Eyvindsson roald@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur
Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
● heimili&hönnun
● Tinna Gunnarsdóttir iðnhönnuður og vörur
hennar hafa átt miklum vinsældum að fagna
hérlendis undanfarin ár. Tinna sjálf hefur unnið
að hönnun allt frá árinu 1993 og vörur henn-
ar vakið athygli á sýningum víða um heim, svo
sem á húsgagnasýningunni í Mílanó. Vörur
Tinnu eru afar fjölbreyttar, mottur, stólar, snagar
og svo heilu rýmin. Tinna hlaut hönnunarverð-
launin árið 2005, fyrir gúmmímotturnar sem
hún hefur framleitt og hafa verið seldar í Epal
og Kokku en þær hafa notið mikilla vinsælda.
Tinna lærði þrívíddarhönnun í Bretlandi og iðnhönnun á Ítalíu.
Þegar hönnun Tinnu er skoðuð má klárlega sjá áhrif frá sveitinni og
íslenskri menningu en af öðrum eldri verkum hennar má nefna Paint Balls sem eru
kúlulaga eins konar garðstólar en vörur hennar eru alltaf nýstárlegar og óvæntar.
● Katrín Ólína Pétursdóttir er
ekki aðeins einn fremsti hönnuð-
ur okkar Íslendinga, heldur það
sem kannski ekki allir vita, einn
fremsti hönnuður heims. Á þessu
ári hlaut hún hin virtu Forum Aid-
verðlaun fyrir hönnun sína á veit-
ingastaðnum Cristal Bar í Hong
Kong. Verðlaunin eru ein stærsta
norræna viðurkenning sem hægt
er að hljóta á sviði hönnunar og
arkitektúrs. Verk Katrínar eru orðin
þekkt um alla veröld, enda finnast
þau jafnt í Asíu sem Evrópu, og
hún er talin leiðandi í kínverska
list- og hönnunarheiminum. Sem
dæmi um velgengni hennar má
nefna veggspjald sem hún var
beðin að hanna fyrir 41. djasshá-
tíðina í Montreaux í Sviss. Vegg-
spjöldin teljast safngripir og for-
verar hennar í hönnun þess eru
menn eins og Andy Warhol og
Keith Haring. Katrín starfar úti um
allan heim og fyrirtæki sem hafa
framleitt eða sýnt verk hennar eru
til dæmis Rosenthal, Nokia, 100%
Design og hún hefur myndskreytt
Grimms-ævintýri fyrir forlagið Die
Gestalten Verlag í Berlín.
Katrín er iðnhönnuður
að mennt, frá ESDI í París og
fékk vinnu hjá Philippe Starck
nýútskrifuð.
L itlu búðirnar heitir vefsíða sem að öllum
líkindum fer í loftið fyrir
jól en þar verður hægt
að nálgast ýmiss konar
íslenskt handverk og nátt-
úruvörur á einum stað.
Áskell Þórisson, starfs-
maður Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri og
fyrrum ritstjóri Bænda-
blaðsins, stendur að baki
verkefninu en hvað kom
til? „Ég var að leita að ís-
lensku handverki á netinu
og uppgötvaði fljótt að hægt væri að gera betur í að koma því á fram-
færi. Ég fann mikið af misgóðum heimasíðum sem margar áttu það sam-
eiginlegt að erfitt var að nálgast vörurnar á þeim, þótt auðvitað hafi verið
heiðarlegar undantekningar á því. Ég ákvað því að stofna umboðs- og
söluvef og styrkti Vaxtarsjóður Vesturlands verkefnið.“
Framleiðendur íslensk handverks sem búa til vörur sem eiga uppruna
sinn í ríki íslenskrar náttúru geta selt vörur sínar á vefnum og er Áskell
nú að leita að fólki sem vill vera með. „Hver framleiðandi fær gott pláss
og verður hægt að kalla fram upplýsingar um vörur hvers og eins. Lögð
verður áhersla á söguna á bak við vörurnar auk þess sem birt verður
stutt spjall við framleiðendurna en með því er leitast við að gera síðuna
heimilislega.“
Sem dæmi um litlar búðir má nefna litlu ullarbúðina, litlu heilsubúð-
ina, litlu skartbúðina, litlu skrautmunabúðina, litlu matarbúðina, litlu fata-
búðina og litlu tré- og járnbúðina. „Gangi þetta allt eftir þá verður síðan
þýdd á tvö til þrjú tungumál á nýju ári,“ segir Áskell. Hann bendir þeim
sem vilja vera með á að senda póst á netfangið ask@simnet.is. - ve
Íslenskt handverk í
umboðssölu á vefnum
Á vefnum fær hver framleiðandi gott pláss
– sína eigin litlu búð. MYND/ÚR EINKASAFNI Okkar fremstu
KONUR Í HÖNNUN
● Allar hafa þær á undanförnum árum markað djúp spor í sögu íslenskrar hönnunar og
unnið til fjölda viðurkenninga og verðlauna. Þær standa einna fremst meðal íslenskra
kvenna í húsgagna-, grafískri og iðnhönnun. Þær eru Erla Sólveig Óskarsdóttir, Guðrún
Lilja Gunnlaugsdóttir, Katrín Ólína Pétursdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Nýjasta hönnun Erlu Sólveigar er úr línu sem sett hefur verið
í framleiðslu hér á landi og er framleitt fyrir Á. Guðmunds-
son. Erla segist heillast af lífrænum formum, leiðist beinar
línur og form húsgagna hennar taki mið af notagildi.
● Erla Sólveig Óskarsdóttir
útskrifaðist sem iðnhönnuð-
ur úr Danmarks Design Skole
í Kaupmannahöfn og hefur
um áratuga skeið verið okkar
fremsti húsgagnahönnuður
en hún hefur staðið í eigin
rekstri allt síðan hún útskrif-
aðist og húsgögn hennar
verið framleidd víðs vegar um
Evrópu og Ameríku. Af fjöl-
mörgum verðlaunum og viðurkenningum er að taka
en má þar nefna menningarverðlaun Dagblaðsins, Sil-
ver Award, Best of NeoCon 99 World´s Trade Fair, Chi-
cago. Stóllinn Dreki fékk verðlaunin Red Dot Design
Award og IF Product Design Award. Stóllinn Ames hlaut
stærstu hönnunarverðlaun í Kólumbíu 2007. Erla hefur
þrisvar hlotið listamannaverðlaun.
● Verk Guðrúnar Lilju Gunnlaugsdóttur hafa hlotið mikla umfjöll-
un og verið til umfjöllunar í tímaritum sem og bókum um hönnun
á 21. öldinni. Þannig prýða verk hennar til að mynda bækurnar
Forms við Fantasy og Furnish, furniture and Interior Design for
the 21st Century en hún er talin með þeim fremstu erlendis.
Guðrún á ótrúlega fjölbreytta menntun
að baki. Þannig hefur hún lagt stund á
húsgagnasmíði í Iðnskólanum, leikhús-
förðun nam hún í London og var í mynd-
listarnámi við Myndlistarskólann á Akureyri.
Árið 2002 komst hún inn í Design Acad-
emy Eindhoven. Eftir útskrift stofnaði hún hönnunarverkstæðið Stu-
dio Bility ásamt Jóni Ásgeiri Hreinssyni, eiginmanni sínum. Húsgögn
Guðrúnar Lilju þóttu koma inn með ferska strauma rómantíkur eftir
langt tímabil naumhyggju. Guðrún Lilja var valin ein af tíu björtustu vonum
hönnunarheimsins af tímaritinu Art Review og af íslenskum verðlaunum má
nefna Sjónlistarverðlaunin sem hún hlaut árið 2006.
Cristal Bar í Hong Kong
sem Katrín Ólína hannaði
hefur unnið þekktustu
norrænu verðlaun innan-
hússhönnunar og vakið
mikla athygli.
Flower chair
er nýleg hönnun
Guðrúnar Lilju
en húsgögn hennar
minna gjarnan á
náttúruna.
Veggskápurinn
Lauf er eitt það
nýjasta af hönnun
Tinnu. Hann er
unninn úr lökkuðu
stáli og mdf-
plötum.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
12. SEPTEMBER 2009 LAUGARDAGUR2