Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 78
46 12. september 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Sara McMahon
OKKUR
LANGAR Í
…
Sumarið leið allt of fljótt, eins og segir í kvæðinu, og nú er tekið
við brakandi ferskt haustveður og með haustgolunni fylgja hlýrri
flíkur, þykkar peysur, jakkar, lokaðir skór og vettlingar. Mér finnst
þetta allt gott og blessað því sjálf er ég agalega hrifin af haustinu og
hlýjum fatnaði.
„Layering“ kallast það þegar fólk klæðist mörgum flíkum í einu,
má taka sem dæmi stúlku sem klæðist bol, bómullarpeysu og ullar-
peysu hvert yfir annað. Þetta tískuform hentar verr á sumrin af
því að þá getur orðið afskaplega hlýtt, en er mjög sniðugt á veturna
þegar kuldinn læðist að. Ég er mikill aðdáandi þess að klæðast
„lögum“ og hleð á mig hverri flíkinni á fætur annarri á morgni
hverjum áður en ég held kampakát út í daginn. Þar sem ég klæðist
yfirleitt frekar stórum, víðum flíkum hef ég alltaf dáðst í laumi að
stúlkum sem þora að ganga í þröngum kjólum og eru vel til hafðar,
með uppsett hárið og rósrauðan varalit. Það hefur gerst að mig
grípur eitthvert stundarbrjálæði og ég reyni að leika þennan leik
eftir, fer í háa hæla og mála mig um augun. Að því loknu stend ég
fyrir framan spegilinn um stund og reyni að sannfæra mig um að ég
líti temmilega vel út. En þegar á hólminn er komið er sem brjálæðið
renni af mér og ég átta mig á því að svona get ég ekki látið sjá mig.
Persónulega trúi ég því að besta tískuráðið sé að klæða sig þannig
að manni líði vel í eigin skinni. Sumum líður best í háhæluðum skóm
og fallegum kjólum, öðrum í gallabuxum og flatbotna stígvélum.
Sumir kjósa liti, aðrir vilja einungis svarta tóna. Það er nefnilega
lítið sjarmerandi að horfa á fólk sem teygir og togar í flíkurnar sem
það klæðist vegna þess að það hefur klætt sig út fyrir þæginda-
rammann.
Ætli ég sé ekki ein af fáum sem fagnar vetrinum og þá helst fyrir
þær sakir að ég get nú farið að hlaða á mig flíkum, treflum, sokk-
um og vettlingum á ný. Ég lít án efa út eins og lítill garnhnykill, en
þannig líður mér einna best.
Nú er lag að klæða sig vel
Með komu haustsins er nú
hægt að draga hinar klass-
ísku svörtu flíkur, sem eru
í svo miklu uppáhaldi hjá
íslenskum konum, aftur
fram úr fataskápnum.
Sé mið tekið af haust-
og vetrarl ínum
Gucci, Alexand-
ers Wang og
Haiders Acker-
mann ætlar
leðrið og mótor-
hjólatískan að
halda velli í
vetur. Grodda-
leg mótor-
hjólastígvél,
Dr. Martens,
þröngar legg-
ings og hjóla-
buxur í anda
tíunda ára-
tugarins
verða ríkj-
andi í vetur
í bland við
leður, fjaðrir
og glimmer.
LEÐUR OG HÆLAR
Hönnuðurinn Alexander Wang
sendi frá sér flotta haust- og
vetrarlínu fyrir árið 2009.
DISKÓDÍVA Falleg pallíettuflík
frá Gucci. Litla handtaskan gerir
samsetninguna enn glæsilegri.
Hver segir að
stórar stelpur geti
ekki verið smart?
Þessi stutti kjóll
með göddum
á öxlunum
gæti verið frá
Balenciaga, en
fæst í Evans.
Æðislega
augnskugga
úr nýrri línu
frá Mac sem byggir á
litapallettum þriggja
listamanna.
Þessi föli
litur á
varaglossi
Yves Saint
Laurent fer
fullkomlega
við dökk
augu í vetur.
HETTUKLÆDD OG FLOTT
Þröngar leggings og flottur
jakki frá Alexander Wang.
Hann skaust upp á stjörnu-
himininn fyrir nokkrum
árum, þá nýútskrifaður úr
Parsons-skólanum.
SVART, SVART OG AFTUR SVART FYRIR HAUSTIÐ:
SVART OG SEIÐANDI
GLIMMER OG GLAMÚR
Fyrirsæta klædd í sam-
festing úr smiðju Gucci.
Haust- og vetrarlína
Gucci fyrir árið 2009 er
full af glysi og glans.
FJAÐURMAGNAÐ Þessi
fyrirsæta klæðist hönnun
frá Haider Ackermann.
Fjaðrir og þröngar, svartar
leggings klikka seint.
Í ANDA TÍUNDA
ÁRATUGARINS Hjólabuxur
og mótorhjólastígvél eru ef
til vill ekki praktísk samsetn-
ing, en flott er hún.
> NEW YORK, NEW YORK
Tískuvikan í stóra eplinu hófst í fyrradag
með pompi og prakt. Sýningarnar sem
vöktu mesta athygli til þessa voru hjá
Vena Cava, Max Azria og Elie Tahari. Sýn-
ingar Preen er beðið með eftirvæntingu
en hún verður í dag, laugardag.
á amerískum dögum