Fréttablaðið - 12.09.2009, Page 81
LAUGARDAGUR 12. september 2009
Michael Myers snýr aftur, þrátt
fyrir að hafa verið skotinn í and-
litið í síðustu mynd. Myers ætlar
nú ári seinna að drepa systur sína
til að „fullkomna“ fjölskyldu sína.
Afar metnaðarfullt framtak af
dauðum manni að vera.
Rokkarinn Rob Zombie leikstýr-
ir framhaldi sínu af endurgerð
Halloween frá 2007, en sú upp-
runalega úr smiðju Johns Carp-
enter er ein af bestu hrollvekjum
fyrr og síðar. Það er mér hulin
ráðgáta hvernig Zombie fékk að
leikstýra fyrri myndinni þar sem
hann er hræðilegur handritshöf-
undur og leikstjóri. Handritið að
Halloween II er gloppótt og sam-
tölin grátbrosleg, atburðarásin
kjánaleg, spennuatriðin óspenn-
andi og myndin í þokkabót illa
leikin.
Í myndinni er viðhaldið kjána-
legum skrípalátum fyrri Hall-
oween-framhaldsmyndanna og
Friday the 13th-myndanna; það er
sama hvað kemur fyrir skúrkinn,
hann lifir allan fjandann af. Ekki
tekst að skapa neitt jafnvægi milli
skúrksins og fórnarlamba því að
áhorfendur vita að skúrkurinn
mun hafa betur.
Það er alveg á tæru að Hall-
oween II verður meðal verstu
mynda ársins, svo slæm er hún
að það hefði mátt gefa auka-
stjörnu fyrir það eitt að lina þján-
ingar áhorfenda með að vera
hálftímanum styttri.
Vignir Jón Vignisson
Hörmuleg hrollvekja
KVIKMYNDIR
Halloween II
Leikstjóri: Rob Zombie.
★
Ein versta mynd ársins.
Leikkonan Katherine Heigl og eiginmaður hennar,
Josh Kelley, hyggjast ættleiða tíu mánaða gamalt
stúlkubarn frá Kóreu. Náinn vinur hjónanna
sagði ættleiðingarferlið hafa hafist fyrir sex
mánuðum og gangi allt samkvæmt áætlun
ætti því ferli að vera lokið í byrjun næstu
viku. Litla stúlkan heitir Nayleigh og hyggj-
ast Katherine og Josh nefna hana Leigh við
komuna til Bandaríkjanna.
Ættleiðir barn
„Við stefnum að því að ná sömu
tölu og síðast, þúsund manns,“
segir Jóhannes Bachmann, einn
skipuleggjenda Trukkakvölds
Dóra tjakks sem haldið verður á
Spot í Kópavogi í kvöld. Stíf dag-
skrá verður á malarplaninu fyrir
aftan Smáralind í dag. Þar verð-
ur sýningin Trukkar & tæki 2009
þar sem trukkabílstjórar landsins
koma saman og sýna tryllitæki
sín. Almenningi gefst kostur á að
skoða tækin. Ef veður leyfir verð-
ur hægt að láta hífa sig tugi metra
upp í loft í körfu. Ókeypis er inn
á sýninguna og segir Jóhannes að
þar verði eitthvað að finna fyrir
alla aldurshópa.
Jóhannes stendur að skipulagn-
ingu sýningarinnar og skemmti-
kvöldsins ásamt þeim Dóra tjakk,
Ólafi Þór, Gesti Reynissyni og
Herði Aðils. Hann segir að marg-
ir úr þessum geira séu fluttir úr
landi en enn sé nóg af fólki sem
vilji gera sér glaðan dag. „Þetta
er eina dæmið í þessum geira þar
sem eitthvað er um að vera, fyrir
utan árshátíð. Trukkakvöld Dóra
tjakks er algjört eðalkvöld sem
enginn vill missa af.“
Dagskráin er ekki flókin þegar
trukkabílstjórar koma saman. Á
þeirra samkomum kneyfa menn
öl, ræða málin og stíga svo dans
þegar hljómsveitin stígur á svið.
„Við erum svo skemmtileg og
hress. Við látum okkur sömu
hljómsveit og í fyrra duga. Strák-
arnir í Sixties voru æðislegir í
fyrra og nú eru þeir reynslunni
ríkari.“ - hdm
Trukkabílstjórar
gera sér glaðan dag
HRESSIR TRUKKARAR Dóri tjakkur, lengst til vinstri, heldur árlegt skemmtikvöld sitt á
Spot í Kópavogi í kvöld. Jói Bach er annar frá hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Umsjónakennari námskeiðsins er
Elín Jakobsdóttir, fyrirsæta, auk
fjölmargra gestakennara.
Kennt verður einu sinni í viku, einn
og hálfan tíma í senn.
Skráning er hafin í síma 533 4646 og eskimo@eskimo.is
Aldurstakmark er 12 ára.
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 22. SEPTEMBER OG 24. SEPTEMBER.
SJÁLFSTYRKING FRAMKOMA LÍKAMSBURÐUR INNSÝN Í FYRIRSÆTUSTÖRF FÖRÐUN
UMHIRÐA HÚÐAR OG HÁRS MYNDATAKA (10 S/H MYNDIR) TÍSKUSÝNINGARGANGA
FÍKNEFNARFRÆÐSLA LEIKRÆN TJÁNING NÆRINGARFRÆÐSLA
Allir þáttekendur fá Eskimo bol og Maybeline mascara.
Viðurkenningarskjal og 10 sv/hv myndir. Námskeiðinu lýkur með
stórri tískusýningu. Stúlkurnar eru farðaðar fyrir myndatökuna
og tískusýninguna. Emm School of Make-Up sér um förðun.
Leynileikhúsið kennir leikræna tjáningu.
Verð
17.900 kr.
VIÐ KLIPPUM
HERRAMENN
Á ÖLLUM ALD
RI
Bæjarlind 1-3 - 201 Kópavogur - Sími: 554 1414
Jörgen Gunnhildur Jökull