Fréttablaðið - 12.09.2009, Side 94
62 12. september 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. skrafa, 6. 49, 8. þangað til, 9. hluti
kynfæra, 11. forfaðir, 12. rabb, 14.
gimsteinn, 16. hvað, 17. röst, 18.
sprækur, 20. umhverfis, 21. upp-
spretta.
LÓÐRÉTT
1. kvenflík, 3. tvíhljóði, 4. snautaðu,
5. flýtir, 7. bókastóll, 10. æxlunarkorn,
13. kjáni, 15. lappi, 16. gyðja, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. masa, 6. il, 8. uns, 9. leg,
11. ái, 12. skraf, 14. tópas, 16. ha, 17.
iða, 18. ern, 20. um, 21. lind.
LÓÐRÉTT: 1. pils, 3. au, 4. snáfaðu,
5. asi, 7. lektari, 10. gró, 13. api, 15.
sami, 16. hel, 19. nn.
Gylfi Ægisson
Aldur: Ég er 62 ára en lít út fyrir að
vera 43 ára.
Starf: Listamaður.
Stjörnumerki: Sporðdreki (fæddur
sama dag og Richard Burton).
Búseta: Nei, ég er ekki í Búseta.
Fjölskylda: Ég, Jóhanna, köttur og
Schäfer-hundur.
Í vikunni var staðfest að skrautleg ævi-
saga Gylfa kemur út fyrir jólin.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Magnús Þorsteinsson.
2 Sautján.
3 Gilles Mbang Ondo.
„Hann er mjög spenntur fyrir því
að koma hingað, hefur lengi langað
að koma til Íslands,“ segir Davíð
Óskar Ólafsson, einn þriggja fram-
leiðenda kvikmyndarinnar Kónga-
vegur 7 sem Valdís Óskarsdóttir
leikstýrir. Í vikunni var gengið frá
samningum við þýska leikarann
Daniel Brühl um að hann myndi
leika stórt hlutverk í íslensku
myndinni sem fjallar um hvers-
dagsleikann í hjólhýsahverfi.
Brühl hefur skotist upp á
stjörnuhimininn að undanförnu
fyrir frammistöðu sína í Taranti-
no-myndinni Inglourious Basterds
en hann leikur stórt hlutverk í
kvikmynd sem sýnd er inni í þeirri
ágætu mynd. Tökur á Kóngavegi
7 hefjast í næstu viku en myndar-
legt hjólhýsahverfi er nú að rísa
fyrir myndina. Davíð vildi ekki
gefa upp nákvæma staðsetningu á
því svæði af ótta við skemmdar-
verk og þjófnaði. Davíð segir þetta
hafa krafist mikillar skipulagn-
ingar enda sé Brühl stórstjarna í
sínu föðurlandi og ákaflega eftir-
sóttur. Inglourious Basterds hafi
heldur ekki skemmt fyrir fram-
anum. „Hann er í tökum á þýskri
kvikmynd um svipað leyti en við
lögum okkur að þeim tíma. Hann
verður smá tíma með okkur í þess-
ari viku, svo flýgur hann til Berl-
ínar og kemur síðan aftur.“
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
fyrir skömmu er leikhópurinn
Vesturport í stóru hlutverki í
myndinni og einn meðlimur hóps-
ins hafði töluvert mikið um það að
segja að Brühl tók hlutverkið að
sér. „Þannig var með máli vexti
að Nína Dögg Filippusdóttir og
hann voru svokallaðar Shooting
Stars í Berlín 2003 og þar kynnt-
ust þau. Þegar upp kom sú pæling
að fá evrópskan leikara í myndina
stakk Nína upp á honum og hann
reyndist meira en lítið til í að vera
með. Hann hafði lengi langað til að
vinna með Nínu og Vesturporti.“
Davíð viðurkennir að nærvera
Brühls eigi eflaust eftir að liðka
enn frekar fyrir dreifingarsamn-
ingum erlendis og þá sér í lagi í
Þýskalandi þar sem íslensk menn-
ing hefur löngum átt sína aðdáend-
ur. „Þetta skemmir ekkert fyrir
og opnar okkur vissulega ýmsar
dyr fyrir dreifingu myndarinnar
erlendis.“ freyrgigja@frettabladid.is
DAVÍÐ ÓSKAR: DANIEL BRÜHL OPNAR DYR INN Á ERLENDAN MARKAÐ
Inglourious Basterds-leikari
í kvikmynd Valdísar Óskars
Fæðingarstaður-og ár: Barcelona
árið 1978.
Helstu myndir:
Goodbye Lenin (2003)
2 days in Paris (2007)
Bourne Ultimatum (2007)
Inglouriuus Basterds (2009)
DANIEL BRÜHL Í
HNOTSKURN
„Ég var náttúrlega bara í skýjunum þegar við
fundum þessar upptökur. Þær eru algjör dem-
antur,“ segir Bubbi Morthens. Hann komst
heldur betur í feitt þegar myndbrot með tónlist-
argoðsögninni Bing Crosby kom í leitirnar. Þar
semur Crosby lag um Laxá í Aðaldal en eins og
komið hefur fram í fjölmiðlum er Bubbi nú að
leggja lokahönd á heimildarmynd um ána. „Það
er ekki nóg með að hann syngi heldur fer hann
bara algjörlega á kostum. Hann setur í lax
og fiskurinn fær slý á hausinn. Og þá heyrist
Crosby segja; „this guy looks like a hippie“ eða,
þessi lítur út eins og hippi.“
Crosby kom hingað til lands árið 1969 og
heill her af fólki fylgdi honum við hvert fótmál.
Bandarísk sjónvarpsstöð var með í för og tók
myndirnar en Bubbi segir að gömlu Loftleiðir
hafi átt réttinn. „Og þannig fengum við heimild
til að nota myndirnar.“
Varla þarf að hafa mörg orð um hvers
lags goðsögn Bing Crosby er; hann á vin-
sælasta jólalag allra tíma, White Christmas,
en söngurinn um jólasnjóinn hefur
selst í yfir 100 milljónum eintaka.
Bing Crosby er þar að auki þriðji
vinsælasti leikari allra tíma ef
marka má tölur úr miðasölu, aðeins
Clark Gable og John Wayne skáka
honum. Bubbi segir að fleiri
gullmola sé að finna í heim-
ildarmyndinni, þar á meðal
myndbrot með listamannin-
um Guðmundi frá Miðdal. „Og
svo er það náttúrlega rúsín-
an í pylsuendanum, sem eru
myndir af Lee Wulff við veiði
í ánni,“ segir Bubbi en fyrir
þá sem ekki vita, þá er Wulff
þessi algjör frumkvöðull í
fluguveiðiheiminum. - fgg
Bing Crosby syngur fyrir Bubba
SJALDGÆFT MYNDEFNI Meðal þess sem má
sjá í heimildarmynd Bubba Morthens um
Laxá í Aðaldal er sjálfur Bing Crosby að taka
lagið við árbakkann. Á svarthvítu myndinni
kveður Crosby land og þjóð og stígur um borð í
Loftleiðavél eftir velheppnaða veiði í hinni sögu-
frægu á árið 1969.
„Það er búið að vera að vinna í þessu lengi.
Góðir hlutir gerast hægt,“ segir sjónvarps-
kokkurinn Völli Snær. Upptökur hafa staðið
yfir á Snæfellsnesi á nýjum matreiðsluþætti
sem nefnist Delicious Iceland. Um prufu-
þátt er að ræða á enskri tungu og ef hann
fær góðar viðtökur dreifingaraðila stend-
ur til að framleiða heila þáttaröð hér á
landi. Leikstjóri þáttarins heitir Dom-
inic Cyriax og er hinn sami og hefur
búið til matreiðsluþættina vinsælu með
Nigellu Lawson sem hafa verið sýndir í
Sjónvarpinu.
„Það er verið að reyna að gera spenn-
andi efni og vanda sig við það,“ segir
Völli. Eingöngu verða notaðar íslenskar
afurðir í þættinum, sem verður kynnt-
ur á sjónvarpsráðstefnu í Cannes á
næstunni. Þar verður einnig kynnt
heimildarmyndin Living on the
Edge eins og Fréttablaðið greindi
frá á föstudag.
Hinrik Ólafsson hjá Profilm segir að mikill áhugi
sé á þættinum úti í heimi og hafa margir dreifing-
araðilar sýnt honum áhuga. Hann segir að áhuginn
hafi komið þeim geysilega mikið á óvart. „Þetta
er ekkert auðveldur markaður, sérstaklega ekki
núna,“ segir hann. „Við erum í „prósess“ með þess-
um leikstjóra. Hann þekkir þennan matreiðslu-
sjónvarpsmarkað út og inn og hann sér rosalega
mikla möguleika í þessu.“ - fb
Leikstjóri Nigellu stýrir Völla
VÖLLI SNÆR Sjónvarpskokkurinn Völli Snær stjórnar
nýjum matreiðsluþætti sem er í undirbúningi.
NIGELLA LAWSON Dominic Cyriax hefur
leikstýrt matreiðsluþáttunum vinsælu með
Nigellu Lawson.
Óttar Felix Hauksson brosir út að
eyrum þessa dagana enda tókust
09.09.09-tónleikarnir hans,
sem tileinkaðir voru John
Lennon, ákaflega vel. Fullt
var út úr dyrum á Nasa
og góður rómur var
gerður að frammi-
stöðu flytjenda.
Óttar er því lagstur
undir feld þessa
dagana og er
alvarlega að velta því fyrir sér að
halda afmælistónleika til heiðurs
Lennon en Bítilinn hefði orðið 69
ára hinn 9. október næstkomandi.
Afmælisdaginn ber upp á föstudag,
sem hefur löngum þótt prýðilegur
til tónleikahalds.
Stöðvar 2-menn eru
brosmildir eins og Óttar
því skráningin í Wipe-
out hefur farið fram
úr þeirra björtustu
vonum. Bæði Idol
og X-Factor trekktu
duglega að en ekki
í líkingu við þennan
þrautakóng. Þegar
lokað var fyrir skrán-
ingu í gær höfðu rúmlega þrjú þús-
und manns óskað eftir því að fá að
komast frítt til Argentínu. Friðrika
Hjördís Geirsdóttir verður kynnir
þáttanna ásamt Idol-Jóa og Simma.
Popparinn Daníel Ágúst Har-
aldsson og sambýliskona hans,
listakonan Kitty Von Sometime,
eignuðust litla dóttur í fyrradag.
Þetta er annað barn Daníels, sem
á fyrir dóttur úr fyrra sambandi,
en fyrsta barn Kittyar. Víst er að
parið er himinlifandi með hinn
nýja fjölskyldumeðlim, sem mun
án efa láta til sín taka í
listaheiminum
í framtíðinni.
- fgg, sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FP
Með breyttu hugarfari getur þú öðlast
það líf sem þú óskar þér.
NLP er notað af fólki um allan heim sem
hefur náð frábærum árangri í lífinu.
NLP er öflugasta sjálfstyrkingarnámskeið
sem völ er á.
Námskeið í NLP tækni verður haldið
25. - 27.sept. og 2. - 4.okt. 2009
www.ckari.com; Mail: rosa@ckari.com; Sími: 894-2992
Kári Eyþórsson MPNLP
„Hugurinn ber þig alla leið“
- Er sjálfstraustið í ólagi?
- Viltu betri líðan?
- Skilja þig fáir?
- Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu?
- Gengur öðrum betur í lífinu en þér?
- Gengur illa að klára verkefni?
- Er erfitt að höndla gagnrýni?
© cKari.com
STÓRSTJARNA Í
ÞÝSKALANDI
Daniel Brühl er ákaflega þekkt-
ur í sínu heimalandi en hann
lék stórt hlutverk í Taranti-
no-myndinni Inglourious
Basterds sem frum-
sýnd var fyrir nokkru í
íslenskum kvikmynda-
húsum. Brühl og Nína
Dögg Fillippusdóttir
eru vinir eftir að þau
voru Shooting Stars
í Berlín árið 2003
en leikhópurinn
Vesturport verður
í stórri rullu í
myndinni.