Fálkinn - 28.06.1965, Side 7
krónprins til Grikklands, og
árangur af þeirri ferð varð
mikill sænskur rannsóknarleið-
angur til Asine (nálægt Naup-
lia), og tók krónprinsinn sjálf-
ur þátt í leiðangrinum. Var
uppgreftri haldið áfram árum
saman, og kom þar margt
merkilegt fram í dagsljósið.
Gústaf konungur tók einnig
þátt í sænskum vísindaleiðangri
til Kýpur á árunum 1927—’31.
Aftur kom í ljós hinn mikli
áhugi konungs á fornleifafræði,
er hann tók þátt í uppgreftri
á Ítalíu árið 1957. En á síðari
árum hefur áhugi hans einkum
beinzt að kínverskri fornleifa-
fræði og fornri list Kínverja.
Hann á safn kínverskra forn-
gripa, sem frægt er orðið um
víða veröld.
GÚSTAF ADOLF konungur
heíur endurlífgað fornan
sið að fara svo kallaða „Eiríks-
götu“ um land sitt. Upphaf-
lega var þessi ferð gerð til þess
að konungi yrði vottuð hollusta
í hverri sýslu. Nú á dögum er
þessi ferð gerð í öðru augna-
miði, þ. e. a. s. til þess að færa
konunginn nær þegnum sínum
og gefa honum jafnframt kost
á að kynnast málefnum sýsln-
anna af eigin raun. Svíþjóð er
skipt í 24 sýslur, og enda þótt
konungurinn hafi ekki komizt
yfir þær allar, eru nú einungis
fáar eftir. Einnig hefur Svía-
konungur farið í opinberar
heimsóknir til allmargra la'nda,
svo sem til Danmerkur, Noregs,
Finnlands, íslands, Bretlands
og Hollands.
HIN þunga byrði konung-
dómsins krefst einnig
hvíldar. Vænst þykir konung-
inum um að geta stundað lax-
og silungsveiði í fjallahéruðum
Svíþjóðar. í ágústmánuði ár
hvert leggur hann leið sína til
lítils veiðikofa fjarri alfaraleið-
um, þangað sem ófært er öllum
bílum. Þangað verður aðeins
komizt á hesti éða fótgangandi.
Hann hefur einnig mikið yndi
af garðrækt, enda fer mikið
orð af trjágarðinum við sumar-
höllina á Skáni. Má þar oft sjá
konunginn á hnjánum reyta
arfa eða ræða við garðyrkju-
menn.
GÚSTAF ADOLF konungur
gekk árið 1905 að eiga
brezku prinsessuna Margaretha
af Connaught, en hún andaðist
1920. Áttu þau fimm börn, en
elzti sonur þeirra, Gústaf Adolf
Framh. á bls. 66.
Konunglegur fornleifafræðingur.
Ljósm.: Pressens bild.
Gústaf VI Adolf hefur mikinn áhuga
á garðrækt, og ber garður hans við
sumarhöllina á Skáni þess fagurt vitni.
Ljósm.: Kamerabild.
Hið konunglega cmbætti veitir einnig
tækifæri til hvíldar í kyrrð náttúrunnar.
Ljósm.: Kamcrbild.
FALKINN