Fálkinn - 28.06.1965, Page 10
FÁLKINN
munandi fín og fer það eftir
því, hve mikið þau leggja á
vöruna. Nordiska Kompaniet
þykir fínast, á þeim forsend-
um að það sé dýrast, — en
hver veit nema hvort tveggja
sé þjóðsaga.
Eins og í öðrum borgum
setur kaupmennskan mestan
svip á Stokkhólm, meðan dag-
ur er á lofti. Og það eru ekki
aðeins stóru vöruhúsin, sem
laða að sér vegfarendur held-
ur einnig litlar verzlanir og
ákafir kaupmenn, sem reyna
með skjallyrðum og blíðubrosi
á vör að fá fólk til þess að
kaupa alls kyns óþarfa. En
verði ekkert úr kaupunum er
gamanið úti, hinn bukkandi
búðarmaður er ekki lengi að
verða eins og roð snúið í hund.
Ég þvældist inn í litla búð
i Stokkhólmi í vor þeirra er-
inda að kaupa mér nærpils
úr nælonefni. Það væri naum-
ast í frásögur færandi, ef ég
hefði ekki snúið út þaðan með
pils, sem náði mér niður á
hæla og þau heilræði verzl-
unarkonunnar upp á vasann,
að ég skyldi bregða því ofan
í sjóðandi vatn heima hjá mér,
þá myndi það hlaupa í mátu-
lega stærð. Þetta var því
merkilegra, þar sem fáir vissu
betur en við báðar, að nælon-
föt hafa þá náttúru, að þau
stækka fremur en hlaupa í
þvotti. En það hafa fleiri lent
í svipaðri klípu. Maður, sem
skrifar í dagblaðið Dagens Ny-
heter, komst að því í vetur,
að það væri óðs manns æði
að ætla að kaupa skó á sjálfan
sig í búðum. Það endaði alltaf
með því, að einhverju ónot-
hæfu væri prangað inn á
mann. Aftur á móti pössuðu
honum alltaf skórnir, sem
konan hans keypti á hann,
að honum fjarverandi.
í gamla bænum úir og grú-
ir af svolitlum búðarholum,
þar sem seldir eru kjólgopar
í kjánalegum litum, prjónles
og annar heimilisiðnaður og
kallað list. Ekki þarf um
verð að spyrja. Þarna eru
líka fjölmargar verzlanir, þar
sem á boðstólum er gamall
og þjóðlegur varningur, —
misjafn að gæðum. Þangað
leitar fólk og kaupir silfur-
egg og kertastjaka sér til
gamans. „Djöfulsins drasl er
þetta,“ sagði íslenzk vinkona
mín, sem horfði sínum óspilltu
augum á fordýra forngripi
fyrir innan verzlunarglerið
við Strikið í Kaupmannahöfn.
Kannskí hafði hi'm rétt fyrir
sér?
En þegar kvöldar er verzl-
ununum lokað, og enginn veit,
hvað hann á af sér að gera.
Þeir, sem ætla að steypa sér
út í gjálífið beint af götunni,
lenda í mestu vandræðum.
Eiginleg kaffihús eru sjald-
séð í Stokkhólmi, aðallega er
um að ræða einhvers konar
bakarí með svolitlu plássi
fyrir þá, sem vilja borða kök-
urnar á staðnum og drekka
kaffi með. Þessi bakaríishús
loka öll snemma — eða eins
og búizt sé við, að menn
leiti ekki að kökum úr því.
Þá eru dýrari veitingahús
helztu greiðastaðir, en þeim
er reyndar lokað um mið-
nætti, og upp úr því er naum- 4
ast um annað að ræða en að
fara heim til sín eða annarra.
Því miður er ég ekki fær
um að vísa veginn til beztu ‘
veitingastaðanna í Stokkólms-
borg, — en Óperukjallarinn
er sagður ákaflega hugguleg-
ur matsölustaður, og það sagði
mér stúlka, að fátt smakkað-
ist sér betur en smásíld með
rússneskum kavíar soðin í
kampavíni framreidd á þeim
stað. — Maður nokkur ofan
af íslandi bar mikið lof
á Bellmanskjallarann eða
Gullna friðinn eins og húsið
heitir. Þar skilst mér, að heyra
megi óm af löngu sungnum
vísum, ef menn sperra eyru,
þegar kvöldar, þótt ég hafi
ekki heyrt um það, að þar
hafi verið sungið opinberlega
óralengi.
Ýmsir telja Svía, og þá ekki
hvað sizt höfuðstaðarbúana,
lítt ákomugóða. En það er
mesti misskilningur, að þeir
séu merkilegri með sig en
annað fólk. Þeir eru kann-
ski ekki sérstaklega flírulegir
fyrst í stað, — en það er oft ,
á tíðum mjög þægilegt. Þann-
ig má með lagni komast hjá
þeim hálfkunningsskap, sem
engum skemmtir. Ég hef held-
ur ekki orðið vör við annað
en fólk fyrirgefi það fúslega,
þótt manni fipist í umgengnis-
reglunum — að minnsta kosti,
ef um útlendinga er að ræða,
og að því er virðist, eru ís-
lendingar með mestu útlend-
ingum í Svíþjóð. En þetta er
raunar kaup kaups, því að
Stokkhólmur er framandi fyr-
ir flestum hér heima.
En eitt er illa liðið í Stokk-
hólmi. Það er, að fólk troði
sér fram fyrir aðra í biðröð.
En þar eru alls staðar biðrað-
ir, hvert sem litið er. Það er
biðröð í búðunum, biðröð í
bíóunum, biðröð á strætis-
vagnastöðvunum. Ekki hittast
svo tveir menn fyrir framan
10