Fálkinn - 28.06.1965, Blaðsíða 17
SONUR EINRÆÐISHERRANS
Rhadames Trujillo lifir góðu
lífi í Bandaríkjunum, en
eins og mönnum er í fersku
minni, var harðstjórinn fað-
ir hans drepinn í uppreisn
árið 1961. Þann gamla hefur
vafalaust grunað að eitthvað
mundi henda sig og var því
búinn að koma 800 milljón
dollurum til Bandaríkjanna,
og nú nýtur sonurinn Rhada-
mes góðs af. Systir Rhada-
mes var gift Porfiro Rubi-
rosa, sem var svo heppinn
að vera staddur erlendis
þegar uppreisnin hófst. —
Myndin sýnir okkur Rhada-
mes, ásamt konu sinni,
frönsku leikkonunni Daniele
Gaubert, njóta lífsins í út-
reiðartúr. — Til föðurlands
síns, Dómínikanska lýðveld-
isins getur hann aldrei kom-
ið aftur, án þess að stofna
lífi sínu í hættu.
CHRISTINE KEELER
var leikin af ungri enskri leikkonu,
Yvonne Buckingham í kvikmyndinni,
sem á dögunum var gerð um ævintýri
ráðherrans og fyrirsætunnar. Að vísu
þótti myndin heldur léleg, en hinu er
ekki hægt að neita, að þær eru líkar
stöllurnar. Þessar myndir eru allar úr
kvikmyndinni:
1. Rússneski sendifulltrúinn hjálpar
Christine upp úr sundlaug í einu af
hinum frægu samkvæmum, þar sem
þau meðal annars hittust, ráðherrann
og fyrirsætan.
2. Fólk átti það til, að gleyma hinu
sorglega, sem kvikmyndin fjallaði
um, þegar Yvonne Buckingham birt-
ist léttklædd, svo sem myndin sýnir.
3. Eftir sundið var oft leikinn gáska-
fullur leikur í baðstofu samkvæmis-
ins.
4. Yvonne Buckingham er feykilega lík
Christine Keeler, eins og þessi mynd
sýnir vel. Og kannski var það ein-
göngu það, sem olli því, að hún var
valin í hlutverkið?
NÝTT SEX
hefur nú þotið upp á stjörnu-
himin bandarískra kvik-
myndaframleiðenda, og seg-
ir sagan að þetta nýja sex
slái öll hin út, það er að
segja þau ljóshærðu, en eins
og kunnugt er, eru þau „vin-
sælust“. Nafn hins nýja sexs
er Virna Lisi, og hefur það
nú þegar leikið í sinni fyrstu
mynd í Hollywood, og ber
sú nafnið „Hvernig myrða
skal konu sína“, eða eitthvað
í þá áttina. Ekki vantar að
nafnið sé aðlaðandi, ekki
síður en aðalkvenleikarinn,
en mótleikari hennar er
enginn annar en hinn vin-
sæli Jack Lemmon.
FALKINN
17