Fálkinn - 28.06.1965, Qupperneq 56
KVENÞJÖÐIN
3SITSTJÓM: KHISTJANA STEIAGRÍMSDÓTTIll
.............. .....III■lll—IIIIIIIH' li'l itt—i—»
SÆNSKAR UPPSKRIFTIR
Þegar sænskum matreiðslubókum er flett eða matur snæddur um tíma á sænsku
heimili ber aðallega á kjötréttum úr söxuðu kjöti, ýmsum pylsuréttum, það sem
þeir kalla ofnpönnukökur og pönnukökur með ýmiss konar fyllingum í, að ógleymd-
um síldarréttum, en f þá vilja þeir helzt fá „Íslandssíld". Einnig sjáum við þar
fjölda ólíkra brauðtegunda, einkum úr grófu mjöli, en margir finna brauðinu því
til fcráttu, að það er oft nokkuð sætt, en Svíar eru líka mikið fyrir sætar kök-
ur. Svo kannast flestir við lútfisk og saffranbollur, sem er þeirra jólamatur.
KJÖTDEIG í OFIMI
400 g nautahakk
100 g svínahakk
2 soðnar, kaldar kartöflur
Yz dl brauðmylsna
1 % dl mjólk
2V2 dl vatn
1 stórt egg
Salt pipar, paprika
2 msk. rifinn laukur
í bitum ofan á. Sett inn í 200° heitan
ofn, soðinu hellt smátt og smátt yfir.
Áætla þarf um 1 klukkustundar steik-
ingu.
Dálitlu af rifnum osti stráð yfir fyr-
ir lokin. Borið fram með soðnum kart-
öflum, hráu salati og sósu, sem búin
er til úr soðinu.
FLESKPÖIMIMIJKAKA m. OSTI
2 egg
3 dl hveiti
6 dl mjólk
Vi tsk. salt
2 msk matarol.
100 g reykt magurt
flesk eða hangi-
kjöt í bitum
100 g ostur í
bitum.
Venjulegt pönnukökudeig búið til.
Hellt í smurða ofnskúffu. Bakað í heit-
um ofni 250° í V2 klst. Þegar deigið
byrjar að stirna við brúnirnar, er steikta
fleskið eða hangikjötsbitunum dreift
yfir, einnig jafnstórum bitum af osti.
Fullsteikt. Borið fram með soðnu græn-
meti og bræddu smjöri, sem kryddað er
með saxaðri steinselju og sítrónusafa.
KJÖTDEIGSPÖIMIMLKAK/I
Við steikingu:
2% msk. smjörlíki
3-4 gulrætur
10 litlir laukar. jafnir að
stærð
Vi bvítkálshöfuð
5 sneiðar reykt flesk
3-4 dl kjötsoð
Rifinn ostur.
Kjöt, kartöflur, brauðmylsna og
krydd hrært vel saman, vökvanum og
eggi hrært smátt og smátt saman við.
Notuð um 30 cm lengja úr kjötdeiginu,
látin í smurða ofnskúffu.
Flesksneiðunum raðað ofan á.
Grænmetið hreinsað, ein rig laukur-
inn, soðið augnablik. Raðað kringum
k'ötið í ofnskúffunni. Smjörlíki látið
2 egg
2 dl mjólk
2 dl hveiti
V2 tsk. salt
% tsk hv. pipar.
Vi tsk. hvítlauks-
salt •
200 g kjötdeig,
gróft
1 laukur
V2 tsk. salt
V2 tsk. timian
Steinselja
2 msk. tómat-
kraftur
1-2 msk, rifinn ost-
ur.
Egg og mjólk þeytt, hveitinu blandað
saman við, deigið hrært kekkjalaust.
Kryddað. Hellt í smurt, grunnt alumi-
nimót, bakað 12—15 mín. í 200°.
Blandið lauknum í kjötið, einnig kryddi.
Breiðið kjötið yfir kökuna. Tómat-
krafti og rifnum osti dreift yfir. Steikt
áfram um 30 mínútur. Saxaðri stein-
selju stráð yfir.
56
FYLLTAR PÖIMIMUKÖKLR
FYLLTAR PÖNNUKÖKUR.
Dýrari:
2 egg
2 dl rjómabland
2V2 msk. hveiti
1 msk. matarol.
V2 tsk. salt.
Ódýrari:
2 egg
7 dl mjólk
3 dl hveiti
2 msk. matarolía
V2 tsk. salt.
Deigið: Eggin og helmingurinn af
vökvanum þeytt vel. Hveiti og salti
blandað saman við, deigið hrært kekkja-
laust. Afgangnum af mjólkinni hrært
saman við, síðast er matarolíunni eða
sama magni af bræddu smjörlíki hrært
saman við.
Bakaðar pönnukökur á feiti lausri
vel heitri pönnu. Látið pönnukökurnar
kólna, áður en fyllingin er sett í, sem
getur verið aldinmauk (þá er salti
sleppt í uppskriftinni), ef pönnukök-
urnar eru bornar fram sem eftirréttur.
Er þeim þá raðað í eldfast mót og
marengs sprautað á þær. söxuðum
möndlum stráð yfir. Stungið 5—8 mín.
inn í meðalheitan ofn.
Eigi að bera pönnukökurnar fram
sem forrétt eða aðalrétt getur fyllingin
verið margs konar. Fyllingin sett í,
pönnukökurnar vafðar upp, lagðar í eld-
fast smurt mót á sárið, smjörbitum
dreift yfir. Miklu af rifnum osti stráð
yfir. Steikt í heitum ofni nál. 275° í
5—8 mínútur, eða þar til osturinn er
bráðinn og rétt aðeins kominn litur á
þær.
Ábendingar um fyllingar: Sveppa-
jafningur; rækjujafningur með stein-
selju; spínat, jafnað með rjóma og
kryddað með muskati; Aspargus og
skinkujafningur.
FALKINN