Fálkinn - 28.06.1965, Blaðsíða 59
um okkur algerlega óháða þeim
flokki að öðru leyti. En við
erum samt sem áður pólitískir,
þ. e. a. s. við látum stjórn-
málin mikið til okkar taka, og
ég held mér sé óhætt að segja,
að stjórnmálamennirnir taki
fullt tillit til okkar.
70 þúsund tonn
af pappír.
Húsið, sem aldrei sefur, er
aðsetur tveggja stærstu dag-
blaða Svíþjóðar. Annað er
morgunblað (Dagens Nyheter),
hitt kvöldblað (Expressen).
Sama fyrirtæki á bæði þessi
blöð, en þau eru algerlega óháð
hvort öðru og slær oft í brýnu
milli þeirra. Hins vegar er öll
vinnsla blaðanna sameiginleg.
Þau eru sett og prentuð í sömu
vélum, enda fer vel á því, þar
sem prentunartími blaðanna
rekst ekki á. Prófarkalestur
bókasafn, myndasafn og blaða-
úrklippusafn, ljósmyndavinnsla
og myndamótagerð, pökkun og
dreifing er sameiginleg. En
slík vinna krefst vitanlega
mikillar skipulagningar. Rétt
hlutfall verður að vera milli
stærðar blaðanna, enda er Ex-
pressén í svipuðu broti og ís-
lenzku blöðin, en Dagens Ny-
heter hins vegar í helmingi
stærra broti. Samanlagt er upp-
lag blaðanna um ein milljón
eintaka, svo að það er ekkert
smáræðis fyrirtæki, sem þarf
til slíkrar prentunar. Enda er
iðnfyrirtæki blaðanna tveggja
hið stærsta sinnar tegundar á
Norðurlöndum. Sem dæmi um
stærð þess má nefna, að það
þarf 38 setningarvélar til að
setja blöðin. Salurinn, þar sem
sjálf prentunin fer fram er 80
metrar á lengd, og hin risastóra
prentvél, sem auðvitað er sjálf-
virk, prentar 280 þús. eintök af
Dagens Nyheter á klukkustund
eða 420 þúsund eintök af Ex-
pressen (helmingi minna brot).
Það tekur því ekki nema um
klukkutíma og 15 mínútur að
prenta allt upplagið af Ex-
pressen, sem er’ útbreiddasta
blað á Norðurlöndúm. Og til
þess að gefa nokkra hugmynd
um lesmáiið má nefna, að papp-
írsnotkun blaðanna nemur 70
þús. tonnum á ári. Prentunin á
Dagens Nyheter hefst klukkan
10.30 á kvöldin, en kl. 9 á
morgnana er byrjað að prenta
Expressen.
Morgunninn
h«=í)gað”r Eyoressen.
Þannig breytir húsið, sem
aldrei sefur, sífellt um svip. Það
eru ýmist blaðamenn eða iðn-
aðarmenn, sem bera hita starfs-
ins. Morgunninn er helgaður
Expressen, hinu létta kvöld-
blaði, sem er vinsælast allra
dagblaða á Norðurlöndum. Það
eru um það bil 170 blaðamenn,
sem vinna daglega að samningu
þessa blaðs. Auðvitað hefst
vinnan raunverulega nokkrum
dögum áður en efni birtist í
blaðinu, en fréttir eru unnar
á eins skömmum tíma og fram-
ast er unnt. Um nóttina sitja
blaðamenn og fara yfir ógrynni
erlendra blaða og vinna úr
fréttasendingum úr fjarritum.
Ritstjórnarskrifstofan er inn-
réttuð með óvenjulegum hætti
og allt skipulagt með hraða í
huga. Hinir skrifandi blaða-
menn eru staðsettir í klefum
umhverfis stórt, opið svæði.
Þar heldur til hin svokallaða
,,miðstjórn“, sem er hjarta
blaðsins. Þaðan koma fyrirmæli
til hinna ýmsu blaðamanna,
hvar sem þeir eru staddir, og
þangað kemur allt efni, sem
skrifað hefur verið. Þar er það
skipulagt, raðað niður og
endanlega frá því gengið áður
en það fer í setningu. f þessari
„miðstjórn" eru starfandi um
20 menn, sem sitja við sér-
smíðuð skrifborð, sem sérstak-
lega eru gerð fyrir þessa vinnu.
Á vegg einum er stór ljósa-
tafla, og á henni er hægt að
fylgjast með framgangi blaðs-
ins, hvaða síður er verið að
setja, hverjar eru fullfrágengn-
ar og hverjar ókomnar. Þetta
er gert til að koma í veg fyrir
allar seinkanir og tafir, sem
eru óhemjudýrar og setja allt
skipulag úr skorðum. Fyrsti
hluti upplagsins er sendur með
flugvél til Norðurlands, en síð-
asti hluti upplagsins kemur í
sölustaði um klukkan 4 síð-
degis.
Síðari hluti dagsins
helgaður
Dagens Nyheter.
Vinnudagurinn á Dagens Ny-
heter hefst einnig snemma, þótt
annasamt sé síðari hluta dags-
ins. Klukkan níu hefst skipu-
lagning dagsins. Hér eru blaða-
mennirnir 190 talsins, þótt ekki
geti þeir allir verið til staðar
á hverjum einasta degi vegna
fría, veikinda, ferðalaga o. s.
frv. Um hádegi taka blaðamenn
að streyma inn á ritstjórnar-
skrifstofurnar, og um tvöleytið
er allt á ferð og flugi. Kúltúr-
deildin og stjórnmáladeildin
halda fund um hálfeitt, og
Framh. á bls. 63.
Húsið, sem aldrei sefur, hið milda hús
tveggja stærstu dagblaða Svíþjóðar, Dagens
Nyheter og Expressen.
Olof Lagercrantz, annar aðalsitstjóri Dagens
Nyheter
Hér er hjarta Expressen, aðsctur „miðstjórn-
arinnar“
Setjarasalur blaðanna tveggja, þar sem 38
setningarvélar glymja allan sólarhringinn.
FÁLKINN
59