Vikan - 28.04.1966, Síða 2
í FULLRI HLVÖRU
ÁstæSulaus eftirgjöf.
Kona sem hefur af því at-
vinnu að hýsa útlenda túrista
fyrir hótel hér í borginni, sagði
mér það á dögunum, að eiginlega
kvörtuðu þeir einna sízt yfir veð-
urfarinu og vegunum. Verðlagið
á Islandi var hinsvegar almennt
undrunar og umkvörtunarefni.
Þeim blöskrar verðlagið á ann-
ars flokks veitingastöðum úti á
landi, en þá fyrst tekur steininn
úr þegar þeir taka leigubíla. Þá
finnst þeim að eigi að rýja sig
inn að skyrtunni, sagði konan.
Ég hef sjálfur tekið leigubíla
í öllum næstu nágrannalöndum
okkar, báðum megin Atlantshafs-
ins og get ekki séð annað en að
verðlag á leiguakstri hér sé orð-
ið með því hæsta sem finna má.
Til dæmis tók ég nokkrum sinn-
um leigubíl úr miðju New York
borgar og út á heimssýningar-
svæðið, en það var að jafnaði
þriggja kortéra akstur. Sá akst-
ur kostaði 3 dali, eða 126 krónur
og þó þykir flest dýrt í Amer-
íku. Það hefði eftir því sem mér
er tjáð, kostað að minnsta kosti
þrefalt meir að taka leigubíl
þessa sömu vegalengd hér.
Meðan venjulegir dauðlegir
menn borga 121% leyfisgjald af
fob-verði, er leigubílstjórum gert
að greiða aðeins 30% leyfisgjald.
Það samsvarar því, að þeir fái
eftirgefið 95% af fob-verði. Ó-
dýrasta gerð af amerískum bíl,
sem kosta mundi mig og þig
300 þúsund krónur, kostar ein-
ungis 230 þúsund fyrir leigubíl-
stjóra.
Þessi eftirgjöf væri eðlileg og
skiljanleg, ef í henni fælist kvöð
um að halda niðri verðlagi á svo
sjálfsagðri þjónustu sem leigu-
bílaakstur er. Enn því er naum-
ast þannig farið; Leigubílstjór-
um er frjálst að haga verðtaxtan-
um eftir eigin höfði enda hefur
ekki staðið á því að hækka hann.
Sú saga hefur gengið, að tekjur
af hverjum leigubíl á ákveðinni
bílastöð í Reykjavík, hafi á síð-
asta ári numið 600 þúsundum.
Það gefur tilefni til að efast um
þörfina á tollaívilnunum.
Það er í rauninni sjálfsagt að
leigubílstjórar ákvarði sjálfir
sinn taxta og standi og falli með ,
því hvort hann þykir ófær eða
bærilegur. En meðan verðlagið
á þesari þjónustu er eins og raun
ber vitni um, þá ætti þeim að
vera vorkunnarlaust að greiða
sömu aðflutningsgjöld af bif-
reiðum og aðrir landsmenn verða
að gera. Mergurinn málsins er,
að leigubílaakstur er sjálfstæð-
ur atvinnurekstur líkt og smá-
iðnaður og varla ástæða til að
styrkja hann sérstaklega.
GS.
O VIKAN 17. tbl.
ÞAÐ VITA MARGIR EN EKKI ALLIR
að Cortina hefur ýraist gírskiptingu í gólfi eða á stýri
að Cortina er fáanleg með sjálfskiptingu
að hægt er að velja um tveggja og fjögurra
dyra ásamt Station
að loftræstikerfið er frábært
að Cortina hefur diskahemla að framan
að Cortina ER f imm manna bíll
að hvernig sem á það er litið, þá borgar það sig, að kaupa Cortina
^ m. KRISTJÁNSSDN H.F.
UMBODIR SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00